Fréttablaðið - 30.11.2002, Page 48
Fátt er skemmtilegra en að fara ídýragarð. Virða fyrir sér undur
náttúrunnar í nærmynd og hlusta á
skrýtin hljóð. Sérstaklega er górill-
an spennandi á bak við skothelt gler.
Eða þá að snerta skrápinn á nas-
hyrningnum og fílsrana. Svo ekki sé
minnst á hoppandi apa með banana.
Því er það miður að Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra skuli ekki
vera áhugamaður um innflutning á
framandi dýrum. Það þýðir að við
fáum seint almennilegan dýragarð.
Guðna er til efs að krókódílar,
lamadýr og strútar eigi eftir að
pluma sig hér á landi. Hvað þá úlf-
aldar á Dalvík. Og það má svo sem
til sanns vegar færa. En íslenski
hesturinn, smalahundurinn og sauð-
kindin eiga seint eftir að veita okk-
ur þann unað sem dýragarðsferð
gerir. Það vantar þetta skrýtna og
geggjaða.
Þess vegna gríp ég til þess ráðs
að fara í Sundhöllina við Barónsstíg
þegar ég finn fyrir dýragarðsþörf-
inni. Helst vel ég tímann skömmu
fyrir kvöldmat og tek stefnuna
beint í nuddpottinn. Þar sitja yfir-
leitt karlmenn með ráð undir rifi
hverju. Komnir yfir miðjan aldur og
hafa margt reynt. Og vilja segja frá
því.
Um daginn fóru þeir á þvílíkt
flug að mér leið eins og í dýragarði.
Ég fékk fyrirlestur um alla helstu
bassasöngvara veraldar og nokkrir
barítónar fylgdu með. Þeir skýrðu
hvers vegna Steingrímur Joð væri
kommi. Það átti að hafa gerst á
kappræðufundi í Laugaskóla í
Reykjadal. Handaband forsetans og
Björgólfs á dögunum var einnig
krufið með skírskotun í styttri út-
gáfuna af Hafskipsmálinu. Og svo
var á það bent og samþykkt með
lófaklappi að hagfræðingar á Ís-
landi hefðu aldrei rekið fyrirtæki.
Barasta aldrei.
Eftir svona baðferð sér maður
veröldina í nýju ljósi og lofar sjálf-
um sér að mæta sem fyrst aftur.
Svona svipað og eftir ferð í dýra-
garðinn. Alltaf jafn gaman. Alltaf
jafn skrýtið. Enda ætti mannskepn-
an að eiga sitt eigið búr í hverjum
dýragarði sem vill rísa undir nafni.
Gæti verið heitur pottur með mið-
aldra karlmönnum.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
55
4
1
1/
20
02
Sjálflýsandi
afsláttur
25% afsláttur
af útiseríum* um helgina.
*Slönguseríur undanskildar
Loksins komnir aftur
Dillandi jólasveinn 16". 1.990 kr.
Dansandi jólasveinn m/saxafón. 2.990 kr.
Útiseríur
bláar, glærar, rauðar og mislitar.
Útiseríur, lítil grýlukerti
bláar, glærar, rauðar og mislitar.
Dýragarður
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni