Fréttablaðið - 19.12.2002, Side 2

Fréttablaðið - 19.12.2002, Side 2
2 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR Einar Karl Haraldsson tók þátt í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjavík og er talinn koma til álita í fimmta sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjör- dæmanna. Rætt hefur verið við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að hún taki fimmta sætið á framboðs- lista Samfylkingarinnar og veitti Ingibjörg jákvætt svar við þeirri umleitun í gær. Vel. Það hefur alltaf verið eindregin skoðun okkar að það myndi styrkja listann og Sam- fylkinguna. SPURNING DAGSINS Hvernig líst þér á borgar- stjóra í fimmta sætið? DÓMSMÁL Hálfþrítugur karl- maður var í gær dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir í fyrra. Rúmlega tvítugur piltur var dæmdur í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir þátt- töku í einni árásinni. Eldri maðurinn var fjórum sinnum dæmdur fyrir líkams- árásir á árunum 1997 til 2000. Daginn fyrir fyrstu árásina í fyrra var honum veitt reynslu- lausn. Þetta þótti Héraðsdómi Reykjavíkur sýna einbeittan og styrkan brotavilja mannsins. Sérstaklega er tiltekið að árásir hans beinist að höfði fórnar- lambanna. Fyrsta árásin í fyrra var gerð við Umferðarmiðstöðina í maí. Þar réðist eldri maður- inn á hálffertugan mann og sló hann niður. Afleiðingarnar fyrir fórnarlambið eru meðal annars varanleg tvísýni vegna skertrar hreyfigetu á auga. Næst kinnbeinsbraut mað- urinn sextán ára pilt á Lækj- artorgi í júní. Sameiginlega árásin var gerð í ágúst. Þá réðust hinir dæmdu saman með höggum og spörkum að hálffertugum manni í miðbænum. Eldri maður- inn sparkaði síðan í fórnarlambið þar sem það lá ósjálfbjarga á jörðinni. ■ Ofbeldismaður aftur í fangelsi: Líkamsárás daginn eftir reynslulausn LITLA-HRAUN Hálfþrítugur maður sem fjórum sinnum áður hefur verið dæmdur fyrir ofbeldisverk sín er á leið á Litla-Hraun aftur eftir þrjár líkamsárásir í fyrra. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Hann segir enga hefð fyrir því að Ingibjörg Sólrún standi við orð sín. Guðlaugur Þór: Ingibjörg þreytt á borgar- málunum STJÓRNMÁL „Mér líst mjög vel á að Ingibjörg Sólrún taki sæti á lista Samfylkingarinnar,“ segir Guð- laugur Þór Þórðarson, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og frambjóðandi á lista flokksins til alþingiskosninga í vor. „Við erum ekki sammála um marga hluti en skoðanir okkar fara saman í því að Samfylkingin eigi ekki að vera bæði í ríkisstjórn og borgarstjórn. En það er að vísu vegna ólíkra sjónarmiða því hún segir það hættulegt lýðræðinu að sami flokkur stjórni bæði landinu og borginni.“ Guðlaugur segir að ef hún ætli að beita sér fyrir að Samfylkingin fari ekki í ríkisstjórn þá sé það frábært. „Mér finnst það ekki við hæfi að velta henni upp úr því að hún standi ekki við orð sín því það er engin hefð fyrir því að hún geri það. Þetta kemur mér því alls ekki á óvart enda er ekki annað að sjá en hún sé orðin þreytt á borgar- málunum.“ ■ FÍKNIEFNI Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega sextugan Þjóð- verja fyrir að hafa 24. október flutt hingað til lands í ágóðaskyni tæplega eitt og hálft kíló af kóka- íni. Með því hafi Þjóðverjinn brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þykir sýnt að hinum ákærða hafi verið ljóst að kókaín- ið hafi að verulegu leyti verið ætlað til sölu hér á landi. Efnið flutti Þjóðverjinn falið innan- klæða og fannst það eftir komu hans með flugi frá Kaupmanna- höfn. Annar Þjóðverji er nú í haldi lögreglunnar í Reykjavík og er sá á sextugsaldri. Reyndi hann 7. nóvember síðastliðinn að smygla inn til landsins níu hundruð grömmum af amfetamíni og um hálfu kílói af hassi. Maðurinn var handtekinn og í framhaldinu voru tveir Íslendingar um þrítugt handteknir grunaðir um að eiga aðild að málinu. Gæsluvarðhalds- úrskurður sem hafði verið fram- lengdur yfir Þjóðverjanum og öðrum Íslendingi rennur út á morgun. ■ Þjóðverji ákærður fyrir kókaínsmygl: Rannsókn á öðrum Þjóðverja stendur yfir HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Ríkissaksóknari fer fram á að Þjóðverjinn verði ákærður til refsingar. Þá er þess kraf- ist að umrætt kókaín verði gert upptækt. ÍBÚÐABYGGÐ VIÐ REYKJALUND Stefnt er að því að koma fyrir íbúðabyggð norðan, austan og suðaustan við Reykjalund í Mos- fellsbæ. Skipulags- og byggingar- nefnd Mosfellsbæjar hefur sam- þykkt þetta. Nefndin fellst ekki á að komið verði fyrir íbúðarsvæði vestan Varmár. Ferðaþjónusta: Greiði inn hlutafé DÓMSMÁL Gísla Erni Lárussyni lögmanni hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið gert að greiða Allra handa hf. 4,4 miljónir króna vegna vangreidds hlutafjár í sameiginlega hlutafélagið Arct- ic-ferðaþjónustuna hf. Félagið tók við skuldbindingum Emerald Air-flugfélagsins hér á landi vegna flugleiðanna milli Kefla- víkur og Belfast og London. Rekstur Arctic-ferðaþjónust- unnar varð afar skammlífur, að- eins rúmur mánuður. Útkoman var verulegt tap. ■ Árni Þór og Alfreð: Vilja ekki tjá sig STJÓRNMÁL „Ég vil ekki tjá mig neitt um málið eins og sakir standa. Frá Ingibjörgu hef ég ekki heyrt og því vil ég ekki ræða þetta mál fyrr en á morgun (fimmtudag),“ sagði Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórn- ar og efsti maður vinstri grænna á Reykjavíkurlistanum, þegar hann var spurður um viðbrögð sín við þeirri ákvörðun Ingi- bjargar að bjóða sig fram til Al- þingis. Alfreð Þorsteinsson, borgar- fulltrúi og framsóknarmaður, neitaði einnig að tjá sig um málið. ■ INNLENT Staðgreiðsluhlutfall á næsta ári: Nær óbreytt SKATTAR Staðgreiðsluhlutfall á næsta ári verður 38,55% saman- borið við 38,54% á þessu ári. Hækkun á milli ára verður 0,01%. Tekjuskattur á næsta ári verð- ur 25,75%, sá sami og á yfirstand- andi ári. Meðalútsvar á næsta ári verður 12,80%, hækkar um 0,01% frá því sem nú er. Af 105 sveitar- félögum ætla 64 að innheimta hámarksútsvar, 13,03%, en 4 sveitarfélög verða með lágmarks- útsvar, 11,24%. Áætlað er að 126 milljarðar króna verði innheimtir með staðgreiðslu á næsta ári. Þar af renna um 64 milljarðar króna til sveitarfélaga en um 62 millj- arðar til ríkissjóðs. ■ STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, vonast til þess að framboð Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur borgarstjóra í fimmta sæti á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður ríði baggamuninn í barátt- unni um að koma ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks frá völdum. Að þessu leyti standi S a m f y l k i n g i n frammi fyrir sögu- legu tækifæri. „Við þær aðstæður er nauðsynlegt að allir leggist á árar, að um borð sé skipað öllum þeim sem best kunna að fara með vopnin í baráttunni við ríkis- stjórnina.“ Möguleikar borgarstjóra að ná inn á þing eru miklir að mati Öss- urar. „Síðasta skoðanakönnun, þar sem Samfylkingin var í 32% yfir landið, bendir til þess að ein- ungis vanti herslumuninn að við vinnum 5. sæti í Reykjavík norð- ur.“ Hann segir engan betur til þess fallinn að ráða úrslitum um að það takist en borgarstjóra. „Það er ákaflega mikilvægt að jafn sterkur stjórnmálamaður og Ingibjörg Sólrún skuli með þess- um hætti sýna þá trú sem hún hefur á sigurmöguleikum Sam- fylkingar. Það má segja að með þessu sé búið að leiða fram allar helstu stórskyttur Samfylking- ar.“ Ingibjörg Sólrún tók mun vægar til orða en Össur þegar hún ræddi við fjölmiðla í gær. Hún kvaðst hafa tekið jákvætt í beiðni Össurar en ekki gefið end- anlegt svar. Skilningur Össurar á viðræðum þeirra er sá að hún hafi gengist inn á að taka fimmta sætið. Leitt hefur verið getum að því að ástæðan fyrir mismunandi túlkun þeirra í gær sé sú að borg- arstjóri var ekki búin að ræða við borgarfulltrúa Reykjavíkurlist- ans þegar hún og Össur ræddu saman, hún hafi viljað láta líta út fyrir að málið væri opnara en svo að hún væri búin að ákveða fram- boð. Málið var rætt á meirihluta- fundi R-lista í gærkvöldi og vörð- ust samherjar Ingibjargar í borg- arstjórn allra svara þegar leitað var eftir áliti þeirra. Össur og Ingibjörg Sólrún lögðu bæði áherslu á að þing- framboð hennar sé til þess fallið að treysta borgarmálaumræðu og viðhorf Reykjavíkurlistans innan Alþingis. Sjálf lýsti Ingi- björg því sem helstu ástæðu sinni fyrir að taka stökkið nú, borgarmálaumræðan hefði í auknum mæli færst inn í þingsal. brynjolfur@frettabladid.is SAMAN Á FRAMBOÐSLISTA Ingibjörg Sólrún segir að þótt hún taki fimmta sæti á lista Samfylkingar standi hún við vil- yrði sem hún hefur gefið borgarbúum um að vera borgarstjóri áfram á þessu kjörtímabili. Borgarstjóri getur riðið baggamun Össur Skarphéðinsson bindur miklar vonir við framboð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra fyrir Samfylkinguna. Hann er von- góður um að hún nái á þing og að fella megi núverandi ríkisstjórn. „Það má segja að með þessu sé búið að leiða fram all- ar helstu stór- skyttur Sam- fylkingar.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.