Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 4
4 19. desember 2002 FIMMTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ertu búin(n) að kaupa jólatré?
Spurning dagsins í dag:
Heldur þú að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri nái inn á þing í kosningun-
um í vor?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
34,8%
30,4%Nei
16%
JÓLATRÉ
Fæstir eru búnir
að kaupa jólatré
enda enn fimm
dagar til jóla.
Er með gervitré
18,8%Verð ekki með tré
Já
Styrmir fangaður í Breiðdalsvík og fluttur suður með flugvél:
Presturinn vildi hafa storkinn áfram
DÝR Storkurinn Styrmir, sem
haldið hefur til í Ásunarstöðum í
Breiðdalsvík að undanförnu, var
fangaður af starfsmönnum Nátt-
úrufræðistofnunar í gær. Flogið
var með hann suður frá Egils-
stöðum í gærkveldi og var honum
komið fyrir í nýjum heimkynnum
sínum í Húsdýragarðinum í
Laugardal þar sem hann mun
dvelja í vetur.
Einar Sveinbjörnsson hjá um-
hverfisráðuneytinu sagði litlu
hafa munað að tekist hefði að
fanga Styrmi í fyrradag. „Það
voru lagðar fyrir hann átta síldar
í storkabúrið góða. Ein síldin var
tengd við spotta og átti hleri að
lokast þegar Styrmir gleypti
hana. Vandamálið var að storkur-
inn át allar síldarnar nema þessa
einu. Hann er greinilega skynug-
ur storkur, hann Styrmir,“ sagði
Einar.
„Storkurinn var hér og vildi
ekki fara. Sjálfur sá ég hann
aldrei enda ekki að horfa á eftir
honum,“ sagði séra Gunnlaugur
Stefánsson, sóknarprestur í Hey-
dölum. „Það er alltaf sama sagan
með allt sem gengur vel hér fyr-
ir austan og er aðlaðandi að þá
vilja menn flytja það suður. Ég
skil ekki hvers vegna storkinum
ætti að líða betur fyrir sunnan en
hér,“ sagði presturinn.
„Storkurinn hefur haldið til á
Ásunarstöðum og þar er gott fólk
sem hefði hugsað vel um hann,“
sagði séra Gunnlaugur, sem telur
ekki að koma storksins í Breið-
dalinn á aðventunni eigi sér
hliðstæðunni í Biblíunni: „Ég
minnist þess ekki að það sé mikið
um storka í Biblíunni,“ sagði
presturinn. ■
Borgin tvígreiddi
verðlaunin
Verðlaunafé á Stuttmyndadögum í Reykjavík skilaði sér ekki. Menning-
armálastjóri greiddi verðlaunahöfum vinninga þó búið væri að því einu
sinni. Óhefðbundin embættisfærsla til að bjarga klúðri skipuleggjanda.
KVIKMYNDIR Menningarmálastjóri
Reykjavíkurborgar þurfti að
grípa í taumana og beita óhefð-
bundnum aðferðum til að bjarga
Stuttmyndadögum sem haldnir
voru í Reykjavík í
september frá
hneyksli. Jóhann
Sigmarsson, kvik-
myndagerðarmað-
ur og skipuleggj-
andi Stuttmynda-
dagana, greiddi
aldrei út verð-
launafé til sigur-
vegara í keppni
um bestu stutt-
myndirnar þó svo
Reykjavíkurborg
væri búin að
styrkja hann til þess. Var því grip-
ið til þess ráðs að greiða verð-
launaféð út aftur með samningi
um að því yrði skilað þegar og ef
Jóhann greiddi út féð.
„Þetta var afskaplega óheppi-
legt og leiðinlegt því Stuttmynda-
dagarnir hafa lengi verið mikil
lyftistöng fyrir stuttmyndagerð í
höfuðborginni,“ segir Signý Páls-
dóttir, menningarmálastjóri
Reykjavíkur, sem sá aumur á sig-
urvegurunum þegar þeir báru sig
upp við hana vegna þessa. „Þá
voru þeir búnir að eltast við Jó-
hann með litlum árangri. Ég fann
til með þeim og greip til peninga
sem hér eru í varasjóði,“ segir
Signý.
Ekki var nóg með að Jóhann
Sigmarsson hefði ekki greitt út
verðlaunin sem hann hafði fengið
hjá borginni heldur hafði hann
minnkað þau um helming frá því
sem auglýst hafði verið fyrir
keppnina. Upphaflega áttu fyrstu
verðlaun að vera 200 þúsund
krónur, önnur 100 þúsund og þau
þriðju 50 þúsund. Þegar til kast-
anna kom voru þau orðin 100 þús-
und, 50 þúsund og 25 þúsund krón-
ur. Að auki áttu vinningshafar að
fá 25 þúsund krónur fyrir sýning-
arrétt í sjónvarpi:
„Ég greiddi vinningshöfunum
líka þessar 25 þúsund krónur en
ég er með samning um að endur-
heimta féð þegar Jóhann greiðir
það sem honum ber,“ segir Signý
Pálsdóttir.
Það var kvikmyndafélagið
Loftur sem sigraði á Stuttmynda-
dögum í Reykjavík með myndinni
Leitin að týnda arabanum.
eir@frettabladid.is
Svæðisskrifstofa fatlaðra greiði skaðabætur
fyrir sinnuleysi:
Einhverfur maður
áreittur um árabil
DÓMSMÁL Tæplega fertugum manni,
sem meðal annars er einhverfur,
hafa verið dæmdar 500 þúsund
krónur í bætur vegna vanrækslu
Svæðisskrifstofu fatlaðra. Móðir
mannsins á að fá bættan 850 þúsund
króna lögmannskostnað.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
kemur fram að ítrekað hafi komið til
árekstra milli mannsins og annars
vistmanns á sambýli þar sem þeir
bjuggu. Manninum hafi liðið veru-
lega illa og nauðsynlegt verið að stía
þeim tveimur í sundur þar sem hann
sé afar viðkvæmur fyrir áreiti.
Svæðisskrifstofunni hafi borið að
grípa strax í taumana.
Ekki var þó fundin viðunandi
lausn fyrr en að minnsta kosti fjór-
um til fimm árum eftir að grípa
hefði þurft til aðgerða. „Allan þenn-
an tíma mátti stefnandi sæta áreiti
af hálfu vistmannsins sem í ljósi fötl-
unar stefnanda verður að telja ólög-
mæta meingerð gegn friði og per-
sónu hans,“ segir héraðsdómur. ■
GUÐNÝ HRUND KARLSDÓTTIR
Sveitarstjórinn bindur vonir við jólaköttinn.
Norðausturkjördæmi:
Jólaköttur-
inn frá
Raufarhöfn
SVEITARSTJÓRNARMÁL Raufarhafnar-
búar hafa eignað sér jólaköttinn.
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar-
stjóri á staðnum, skrifar grein um
tengsl kattarins við héraðið á
heimasíðu Raufarhafnarhrepps:
„Nú hefur það fengist staðfest.
Jólakötturinn er frá Raufarhöfn,
undan miklu kyni grimmlyndra
katta,“ segir sveitarstjórinn á
heimasíðunni. „Forfaðir hans var
kallaður Hrollur. Talið er að Hrollur
og kona hans hún Grimma hafi kom-
ið hingað með víkingaskipi fyrir um
1000 árum. Ekki hefur fengist stað-
fest hvort Hrollur og Grimma eru
ættuð frá Noregi og hafi laumast
um borð á einhverjum viðkomustað
víkinganna.“
Raufarhafnarbúar binda miklar
vonir við jólaköttinn og telja ekki
ólíklegt að hann eigi eftir að auka
ferðamannastrauminn á staðinn.
Ekki náðist í Guðrúnu Hrund Karls-
dóttur í gær þar sem hún var stödd
á fundi á Þórshöfn á Langanesi. ■
Waldorfskóli:
Fram-
kvæmdir
stoppaðar af
SKIPULAGSMÁL Framkvæmdir við
uppbyggingu nýs Waldorfskóla í
Lækjarbotnum hafa verið stöðvað-
ar. Hafin var bygging timburhúss á
steyptum grunni þrátt fyrir að
Kópavogsbær hafi aðeins heimilað
hús á léttari grunni.
Handverkstæðið Ásgarður, sem
Waldorfskólinn rak fyrir fatlaða í
Lækjarbotnum, gjöreyðilagðist í
miklum bruna í desember í fyrra.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var það fyrir tilviljun sem
bæjarstarfsmaður komst á snoðir
um byggingarframkvæmdir
Waldorfskólans þegar hann átti leið
um svæðið í október.
Eftir að framkvæmdir voru
stöðvaðar óskaði Walfdorfskólinn
eftir því við byggingarnefnd Kópa-
vogsbæjar að byggingin fengi að
rísa. Svo þyrfti að verða til að hægt
yrði að sinna námskeiðahaldi Ás-
garðs og handavinnukennslu
Waldorskólans.
Í erindi Waldorfskólans til bygg-
ingarnefndarinnar segir að bruninn
í fyrra hafi verið „félags- og tilfinn-
ingalegt áfall þeim 80 sálum sem
fram undir brunann höfðust hér við
virka daga árið um kring.“
Byggingarnefndin staðfesti
framkvæmdastöðvunina. ■
KOMINN MEÐ EINTAK
Fulltrúi Írlands, John Deady, nær þarna í
eintak af vopnaskýrslu Íraksstjórnar. Hann
fékk bara styttu útgáfuna, líkt og Norð-
menn, Sýrlendingar og fleiri.
Utanríkisráðherra
Noregs:
Vill óstytta
skýrslu
ÖRYGGISRÁÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Jan Petersen, utanríkisráðherra
Noregs, krefst þess að fá í hend-
urnar óstytta útgáfu af vopna-
skýrslu Íraksstjórnar.
Noregur er eitt þeirra fimmt-
án ríkja, sem sæti eiga í Örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna. Ein-
ungis fastaríkin fimm, það er
Bandaríkin, Bretland, Rússland,
Frakkland og Kína, fengu
skýrsluna í hendur óstytta, alls
12 þúsund blaðsíður. Fulltrúar
hinna tíu ríkjanna fengu í gær
eintak sem einungis er tæplega
þrjú þúsund síður.
Bandaríkin hafa fjarlægt úr
skýrslunni allar upplýsingar um
gerð gereyðingarvopna, sem
ekki mega komast í hendur
þeirra, sem hugsanlega ætla sér
að búa til slík vopn. Einnig hafa
verið fjarlægð úr skýrslunni
nöfn þeirra fyrirtækja sem
Írakar hafa átt í vopnaviðskipt-
um við.
Auk Noregs og fastaríkjanna
fimm eiga Sýrlendingar fulltrúa í
Öryggisráðinu, ásamt Máritíus,
Mexíkó, Singapore, Búlgaríu,
Kamerún, Kólumbíu og Írlandi. ■
STORKURINN STYRMIR Á SUÐURLEIÐ
Styrmir náðist eftir að hafa verið lokkaður í
sérstakt búr þar sem búið var að koma fyr-
ir æti. Þegar hann var kominn inn var
kippt í snæri og við það féll aftur hleri.
AP/SU
ZAN
N
E PLU
N
KETT
SIGNÝ PÁLSDÓTTIR
Menningarmálastjóri Reykjavíkurborgar harmar hvernig til tókst á Stuttmyndadögum.
„Þetta var
afskaplega
óheppilegt og
leiðinlegt því
Stuttmynda-
dagarnir hafa
lengi verið
mikil lyftistöng
fyrir stutt-
myndagerð
í höfuðborg-
inni.“
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Fertugum manni voru dæmdar 500
þúsund krónur vegna vanrækslu Svæðis-
skrifstofu fatlaðra.