Fréttablaðið - 19.12.2002, Page 16
16 19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 RÚV
Handboltakvöld
18.00 Sýn
Sportið með Olís
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
19.15 DHL-Höllin
Karfa karla (KR - Haukar)
19.15 Sauðárkrókur
Karfa karla (Tindastóll - ÍR)
19.15 Stykkishólmur
Karfa karla (Snæfell - Keflavík)
22.30 Sýn
Sportið með Olís
23.00 Sýn
HM 2002
(Bandaríkin - Portúgal)
KÖRFUBOLTI Michael Jordan, leik-
maður Washington Wizards, skor-
aði 30 stig þegar lið hans bar sig-
urorð af Atlanta Hawks í NBA-
deildinni í körfubolta í fyrrakvöld
með 109 stigum gegn 99. Þetta var
hæsta stigaskor Jordan á leiktíð-
inni.
Náði kappinn þar með að bæta
fyrir slaka frammistöðu sína á
sunnudag þegar hann skoraði að-
eins 2 stig á 40 mínútum í leik
gegn Toronto Raptors. Hefur
hann aðeins einu sinni áður á ferl-
inum skorað jafn fá stig í leik. „Ég
vil ekki að neinn haldi að ég geti
ekki skorað,“ sagði Jordan eftir
leikinn. „Ég get skorað ef mig
langar til.“
Michael Finley skoraði 33 stig
og tók 13 fráköst fyrir Dallas Ma-
vericks sem vann Indiana Pacers
118:97. Þetta var stærsta tap
Pacers á leiktíðinni. Mavericks
náði þar með að hefna fyrir tap
gegn Pacers þann 28. nóvember
sem batt enda á 14 leikja sigur-
göngu liðsins í deildinni.
Shaquille O’Neal skoraði að-
eins 17 stig og Kobe Bryant 15
fyrir meistara L.A. Lakers sem
steinlágu fyrir Minnesota Tim-
berwolves, 96:80. ■
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Luci-
ano, sem lék með ítalska félaginu
Chievo undir fölskum formerkj-
um, snýr aftur í ítölsku deildina í
janúar en þá verður leikbanni yfir
honum aflétt.
Luciano tók upp nafnið Da
Conceicao Silva Eriberto árið 1996
skömmu áður en hann gekk til liðs
við brasilíska félagið Palmeiras.
Sagðist hann jafnframt vera 16 ára
gamall þegar hann var í raun og
veru tvítugur. Tveimur leiktíðum
síðar gekk hann til liðs við ítalska
liðið Bologna og færði sig síðan um
set til Chievo þar sem hann stóð
sig vel í fyrra á frábærri fyrstu
leiktíð liðsins í Serie A-deildinni.
Luciano, sem nú er orðinn 27
ára gamall, sagðist hafa notað
fölsk skilríki til að eiga betri
möguleika á að gerast atvinnumað-
ur í knattspyrnu. „Þegar ég heyrði
það sem mig hafði dreymt um að
heyra grét ég,“ sagði kappinn í ný-
legu viðtali. „Frá og með deginum
í dag er ég á lífi að nýju. Frá og
með janúar get ég spilað með mitt
eigið nafn aftan á treyjunni og
loksins get ég sagt að ég, Luciano,
sé orðinn knattspyrnumaður.“
Leikbannið átti að gilda þar til í
maí á næsta ári. Ítalska knatt-
spyrnusambandið ákvað hins veg-
ar að aflétta því frá og með 24. jan-
úar eftir að banninu hafði verið
áfrýjað. Luciano nær því að leika
síðari hluta keppnistímabilsins á
Ítalíu. Hann var einnig settur í
leikbann af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu, FIFA, en talið er lík-
legt að því banni verði nú aflétt. ■
Luciano, leikmaður ítalska liðsins Chievo:
Snýr aftur í janúar
undir réttu nafni
CHIEVO
Samherjar Luciano hjá Chievo fagna marki Oliver Bierhoff í leik gegn Piacenza um
helgina. Leikurinn endaði 3:0 fyrir Chievo, sem er í fjórða sæti ítölsku deildarinnar.
MADRID, SPÁNI, AP Mia Hamm frá
Bandaríkjunum og Brasilíumað-
urinn Ronaldo hafa verið valin
knattspyrnumenn ársins af Al-
þjóðaknattspyrnusambandinu,
FIFA. Þetta var annað árið í röð
sem Hamm hlýtur nafnbótina en í
þriðja sinn sem hún fellur í skaut
Ronaldo.
Þýski framherjinn Birgit Prinz
og kínverski miðjumaðurinn Sun
Wen lentu í öðru og þriðja sæti á
eftir Hamm. Þýski markvörður-
inn Oliver Kahn og Frakkinn
Zinedine Zidane lentu aftur á móti
í næstu sætum á eftir Ronaldo.
Hamm, sem leikur með banda-
ríska liðinu Washington Freedom,
er þrítug að aldri. Hún hóf lands-
liðsferil sinn aðeins 15 ára gömul
og hefur skorað 136 mörk fyrir
bandaríska landsliðið. Hún er tví-
mælalaust þekktasta knatt-
spyrnukonan í heiminum í dag.
„Ég er afar þakklát fyrir að
vera hérna. Hinar tvær stúlkurn-
ar eru afar hæfileikaríkar,“ sagði
Hamm á blaðamannafundi eftir
verðlaunaafhendinguna.
Hún vann gullverðlaun á
Ólympíuleikunum í Atlanta árið
1996 með bandaríska landsliðinu
og fjórum árum síðar vann hún
silfurverðlaun í Sydney. Auk þess
hefur Hamm unnið heimsmeist-
aratitilinn tvisvar með landslið-
inu, árin 1991 og 1999. Á HM árið
1995 vakti hún mikla athygli þeg-
ar hún spilaði sem markvörður
gegn Danmörku eftir að banda-
ríski markvörðurinn var rekinn af
leikvelli. Hjálpaði hún liði sínu að
vinna leikinn og um leið brons-
verðlaunin á mótinu.
Hamm missti af byrjun þessar-
ar leiktíðar vegna hnémeiðsla og
gat ekki spilað fyrr en í júní með
liði sínu í WUSA-deildinni í
Bandaríkjunum. Hún sneri sterk
til baka og skoraði m.a. sigur-
markið fyrir bandaríska landslið-
ið í leik gegn Kanada um sæti í
næstu heimsmeistarakeppni sem
haldin verður í Kína á næsta ári.
Ronaldo, Zidane og Kahn sátu
vinstra megin við Hamm á blaða-
mannafundinum. „Ég fyllist lotn-
ingu að sitja við hliðina á þessum
leikmönnum. Þetta er mikill heið-
ur og sannarlega draumur sem
hefur ræst. Í Bandaríkjunum
höfum við reynt að auka veg
knattspyrnunnar. Að segja fólki
frá þessari stund verður frá-
bært,“ sagði knattspyrnukona
ársins. ■
Þekktasta
knattspyrnu-
kona í heimi
Mia Hamm og Ronaldo valin knattspyrnu-
menn ársins. Hamm hlaut nafnbótina í annað
sinn í röð. Hún hefur tvisvar orðið heimsmeist-
ari með bandaríska landsliðinu. Hóf landsliðs-
feril sinn 15 ára gömul.
RONALDO OG MIA
Mia Hamm og Ronaldo halda á verð-
launagripunum eftir að hafa verið kjörin
leikmenn ársins. Athöfnin var haldin í
Madrid á Spáni.
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
Jordan skoraði 30 stig fyrir Wizards:
„Get skorað ef
mig langar til“
JORDAN
Michael Jordan reynir að brjótast
framhjá Shareef Abdur-Rahim, leikmanni
Atlanta Hawks.
AP
/M
YN
D