Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 22
19. desember 2002 FIMMTUDAGUR
JÓL Jólin eru landsmönnum afar
dýr. Milljarðar króna fara í mat,
drykki, skraut, jólatré og jóla-
gjafir svo eitthvað sé nefnt.
Kreditkortafyrirtæki landsins
velta nokkrum milljörðum á þess-
um tíma. Velta eins þeirra á
janúartímabilinu í fyrra nam 9,5
milljörðum, sem er tveimur millj-
örðum meira en í venjulegum
mánuði. Kreditkortatímabilið
hefst venjulega átjánda hvers
mánaðar en janúartímabilið hefst
þann 6. desember og stendur til
10. janúar. Búast má við að veltan
sé önnur eins hjá öðrum kortafyr-
irtækjum auk þess sem fólk stað-
greiðir oft vörurnar. Því má áætla
að velta jólanna hlaupi á tugum
milljarða.
Fréttablaðið leitaði til fólks á
öllum aldri og forvitnaðist um hve
miklu það teldi sig eyða í jólagjaf-
ir í ár. Misháar tölur voru nefndar.
Allt frá 10 þúsund krónum upp í
70 þúsund. Gjafirnar eru einnig
mismargar, frá tveimur og upp í
rúmlega 20. Að meðaltali eyðir
þetta fólk um 29 þúsund krónum í
tólf gjafir, eða um 2.500 krónum í
hverja gjöf. ■
JÓL „Ég legg mig í líma við að eyða
sem minnstu um jólin og reyni að
hafa gjafirnar sem hagkvæmast-
ar en skemmtilegar,“ segir Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona. „Ég
keypti allar jólagjafirnar á útsöl-
unum í janúar. Ég er ekki með
tískugjafir, þær eru frekar tákn-
rænar og skemmtilegar.“
Sigrún gefur rúmlega 20 gjaf-
ir í ár og telur að þær kosti um 30
þúsund krónur. Hún segist hafa
lítinn tíma í jólastúss vegna söng-
starfsins og er ánægð með að
hafa lokið við gjafirnar svo
snemma.
„Það léttir heilmikið á jólunum
að eiga ekki eftir að kaupa gjaf-
irnar. Þá get ég líka notið þess að
ramba um bæinn á Þorláksmessu
og skoða mannlífið.“
Aðspurð hvað henni þætti um
að fólk eyddi hundruðum þúsunda
í gjafir sagði Sigrún: „Það er kom-
ið út í vitleysu, þetta er ekki til-
gangur né boðskapur jólanna.“ ■
DIDDÚ
Keypti jólagjafirnar á útsölu í janúar. Segir það létta mikið á stressinu í kringum jólin og
sér fram á að geta rölt um bæinn á Þorláksmessu.
Sigrún Hjálmtýsdóttir:
Keypti jóla-
gjafirnar í janúar
JÓL „Ég eyði ótrúlega litlu í jóla-
gjafir í ár, kringum tíu þúsund
krónur,“ segir Þórey Edda Elís-
dóttir stangarstökkvari. „Það
tíðkast ekki að gefa stórar jóla-
gjafir í minni fjölskyldu.“
Þórey Edda og litli bróðir
hennar hafa tekið höndum saman
um jólagjafakaupin í ár. Hún
segist gefa um tíu gjafir, sem
þýðir um þúsund krónur á gjöf.
Hún gefur aðeins nánustu ætt-
ingjum, en sleppir vinunum.
Sjálf segist hún fá sex gjafir.
„Mér finnst jólagjafakaupin
vera komin út í miklar öfgar,“
segir stangarstökkvarinn og ít-
rekar að fjölskylda sín hafi
aldrei gefið stórar gjafir á jólun-
um. ■
Þórey Edda Elísdóttir:
Tíðkast ekki að
gefa stórar gjafir
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Gefur nánustu ættingjunum jólagjafir.
Jón Mýrdal Harðarson:
Fólk á
að eyða í
sjálft sig
JÓLA „Ég eyði 15 þúsund krónum í
jólagjafir í ár. Mér finnst það al-
veg nóg,“ segir Jón Mýrdal Harð-
arson, útvarpsmaður á Radíó
Reykjavík. „Ég gef tvær gjafir í
ár, kærasta mín fær eina og af-
gangurinn fer í bjór handa sjálf-
um mér.“
Margir myndu telja það vel
sloppið að eyða 15 þúsund krónum
í jólagjafir. Jón Mýrdal segir að
systkini hans og foreldrar eigi nóg
af peningum svo þau geti keypt
sínar eigin gjafir. „Mér finnst að
fólk eigi að kaupa sínar eigin gjaf-
ir því þá verður enginn svekktur,“
segir Jón Mýrdal. „Sjálfur býst ég
við þremur gjöfum: einni frá
kærustunni, svo fæ ég eina Macin-
tosh-dós og nærbuxur frá mömmu
og svo frá sjálfum mér.“
Aðspurður hvort honum fyndist
fólk eyða of miklu í gjafir sagði
Jón: „Fólk hefur ekki efni á þessu
og það yrðu allir hamingjusamari
ef þeir ættu pening í febrúar en
eyddu í honum ekki í Visareikning.
Svo eru líka útsölur í janúar.“ ■
JÓN MÝRDAL HARÐARSON
Útvarpsmaður á Radíó Reykjavík ætlar að
eyða 15 þúsund krónum í jólagjafir í ár.
Honum finnst það meira en nóg.
Misjafnt hvað fólk eyðir miklu í jólagjafir:
Jólaveltan
hleypur á
milljörðum
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta vöruúrval á fermetra.
Öðruvísi ljós, styttur, myndir, föt, rúmteppi, dúkar, púðar og húsgögn.
Mikið úrval skinnavöru t.d. ekta mokkaskinnsjakkar frá 15 þús.
Heitasta búðin í bænum
Njóttu þess
að vera til
um leið og
þú hugar að
heilsunni.
Leiðin að bættri líðan
Engjavegi 6 • 104 Reykjavík
Sími 561 6990