Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 19. desember 2002 Ég er á öðru ári í læknisfræðiog fór í fyrsta prófið 11. des- ember,“ segir Halla Viðarsdóttir. „Ég fer bara í 2 próf og það seinna verður núna á föstudaginn.“ Höllu hefur gengið ágætlega í prófun- um eftir því sem hún best veit en hún er þó farin að hlakka mikið til að komast í frí. „Það verður jólaglögg hjá okkur læknanemum 21. desember og ég fer örugglega þangað til að halda upp á próflok- in.“ Hjá Höllu hefur allt snúist um prólesturinn síðustu vikurnar og enginn tími gefist til jólastúss. „Systir mín er búin að redda mér aðeins með því að kaupa fyrir mig jólagjafir en annars verð ég ör- ugglega á síðustu stundu og alveg fram á Þorláksmessu að klára inn- kaupin.“ Halla játar að þar sem hún sé ekki flogin úr hreiðrinu enn sjái mamma alfarið um smákökubakstur og annan jóla- undirbúning á heimilinu og því þurfi hún ekki að hafa áhyggjur af slíku. Halla situr við lestur ýmist á Þjóðarbókhlöðunni eða í Lækna- garði og segir að það fari lítið fyr- ir jólastemningunni þar á bæjum. „Það er auðvitað ekki mjög jóla- legt hérna en ég er samt komin í smá jólaskap. Annars eru flestir vinir mínir í prófum eins og ég. Kærastinn minn er reyndar að klára prófin í dag en ég er samt ekki alveg ein eftir.“ Halla hefur verið að vinna í jólafríinu undanfarin ár en að þessu sinni ætlar hún að taka sér frí. „Ég verð í fríi til 6. janúar og ég ætla bara að slaka á og taka því rólega. Annars er aldrei að vita nema maður skelli sér norður á Akureyri á skíði ef það kemur ein- hver snjór.“ ■ Á síðustu stundu með jólagjafainnkaupin Halla Viðarsdótt- ir er farin að hlakka til þess að prófunum ljúki enda ætlar hún að taka sér frí frá bæði skóla og vinnu og eiga náð- uga daga með fjöl- skyldunni yfir jólin HALLA VIÐARSDÓTTIR Fer í síðasta prófið á laugardaginn og tek- ur námsbækurnar með sér á kaffistofuna til að nýta hverja stund til lestrar. GVENDUR DÚLLARI Fallegar jólagjafir - með sál Silfurkertastjakar, silfur kaffi- og tesett, silfurstaup og bakki, útskorin vegghilla, útskorin bókahilla, 12–14 manna borðstofuborð. Íslandskort anno 1650, málverk, myndir, plattar og að sjálfsögðu mikið úrval góðra bóka til að gefa og njóta um jólin, m.a. Ferðafélag Íslands ’28-’80 frump. m/k í glæsi- bandi, Ísl.sjávarhætti, tölusett glæsiband, Laxness, Strandamenn, Bergsætt o.fl. o.fl Opið til kl. 22 til jóla Gvendur dúllari - góður í gjöfum Fornbókaverslun með meiru Klapparstíg 35 • s. 511 1925

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.