Fréttablaðið - 19.12.2002, Page 29

Fréttablaðið - 19.12.2002, Page 29
FIMMTUDAGUR 19. desember 2002 8 . 9 0 0 Sigurjón Kjartansson, útvarpsmaður: Hræðist breytingar Jólahátíðin í fyrra gekk ekkistórslysalaust í garð fyrir Sig- urjón Kjartansson í fyrra. Þannig var mál með vexti að sjálf jólamál- tíðin, hinn árlegi hamborgarhrygg- ur á aðfangadag, mislukkaðist. „Það var brimsaltur hamborg- arhryggur,“ segir hann og enn má heyra djúpa sorg í rödd hans. „Ég gerði þau mistök að kaupa þann hrygg sem einhverjir sérfræðing- ar hjá DV eða Mogganum mæltu með. Þeir sögðu að það væri besti hryggurinn. Þetta verður í síðasta skipti sem ég fer að ráðum sér- fræðinga í þessum efnum. Hér eft- ir treysti ég bara konunni minni.“ Hann segist þó ekki muna hvaða tegund þetta var og það kemur ekki til mála að skipta yfir í rjúp- urnar í ár, þrátt fyrir slæmt ham- borgarhryggsár í fyrra. „Ég er lítið fyrir að gera tilraun- ir. Sérstaklega á svona degi.“ Hann hræðist því breytingar á aðfanga- degi jóla. Sigurjón er þriggja barna faðir, segist eiga „þrjá brjálæðinga“, og árlega tekur fjölskyldan á móti gestum í mat á aðfangadagskvöld. Sigurjónssynir eru á aldrinum 3 til 11 ára. „Það er afar mikil fjöl- skylduskemmtun á mínum bæ. Við fáum í heimsókn fólk konunnar minnar og gleðjumst,“ segir Sigur- jón að lokum. ■ SIGURJÓN KJARTANSSON Lenti illa í hamborgarhryggnum í fyrra. Mælir ekki með því að fólk fari að ráði svokallaðra „sérfræðinga“ í vali á jólamatnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.