Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 19.12.2002, Qupperneq 33
33FIMMTUDAGUR 19. desember 2002 Myndlistamennirnir Bryndís Brynjars- dóttir, Elsa Soffía Jónsdóttir, Hilmar Bjarnason og Þórdís Þorleiksdóttir sýna málverk, þrívíð form og hljóðverk í Banka- stræti 5 (fyrrum húsnæði Íslandsbanka). Sýningin stendur til 23. desember og er opin mánud.-laugard. kl. 13-18. Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu 18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar Geir sýnir málverk, teikningar og lágmyndir frá ýms- um tímabilum. Sýningin stendur út des- ember og verður opin frá kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga. Einar Hákonarson og Óli G. Jóhannsson sýna verk sín í Húsi málaranna við Eiðis- torg. Í nýjum sýningarsal í Húsi málaranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar Þorláks- son, Guðmundur Ármann, Jóhanna Bogadóttir og Kjartan Guðjónsson. Sýn- ingin stendur til 23. desember og er opin frá 14 til 18 fimmtudaga til sunnudaga. Sýning á frummyndum Brians Pilkington úr bókinni Jólin okkar stendur yfir í Hafn- arborg. Sýningin stendur til 22. desember. Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg skartgripaverslunarinnar Mariellu á Skóla- vörðustíg 12. Sýningin stendur til 5. janú- ar. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýn- ingin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unn- in á þessu ári sérstaklega fyrir sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgrímskirkju er haldin í boði Listvinafélags Hallgrímskirkju og stendur til loka febrúarmánaðar. Sýningin Heimkoman eða: heimurinn samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin samanstendur af málverkum og ljós- myndum danska myndlistarmannsins Martin Bigum frá árunum 1997-2002. Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur sýningu á verkum sínum í Kaffitári, Banka- stræti 8. Sýningin er opin frá 7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar. Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkonurn- ar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunn- arsdóttir vinna saman undir nafninu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur til 22. desem- ber og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Sýning á jólamyndum teiknarans Brians Pilkington stendur yfir í Kaffistofu Hafnar- borgar. Sýningin er opin alla daga og lýkur 22. desember. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá- myndir og skúlptúra sem unnin eru í anda jólanna í Kompunni, Kaupvangsstræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin stendur til 23. desember og er opin alla daga frá klukkan 14 til 18. Í Hafnarborg stendur yfir sýningin “Sam- bönd Íslands“, alþjóðleg sýning með þátt- töku erlendra listamanna sem hafa heim- sótt Ísland og íslenskra listamanna bú- settra erlendis. Sýningin stendur til 22. febrúar. Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur, Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil, stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 22. desember. Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi. Opið 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýndar verða myndskreytingar úr nýút- komnum barnabókum. Sýningunni lýkur 6. janúar 2003. Hildur Margrétardóttir myndlistarkona sýnir nokkur óhlutbundin málverk á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. janú- ar. húsinu. Stærsta sýning á íslenskri samtímalist stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru eftir 1950 og spannar sýningin árin 1980- 2000. Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokilis sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka. Sýn- ingin heitir „Orbital Reflections“. Allir eru velkomnir. Flökt - Ambulatory - Wandelgang er sam- sýning Magnúsar Pálssonar, Erics Ander- sens og Wolfgangs Müllers í Nýlistasafn- inu. Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum Vatns- stígs 10. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýningu á íslensku landslagi unnið í gler í Galleríi Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafn- arborg. Sýning á bútasaumsverkum eftir 10 kon- ur stendur nú yfir í Garðabergi, félagsmið- stöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í Garða- bæ. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. Leður- og rúskinns- jakkarnir komnir St. 2x-8x Pantanir óskast sóttar sem fyrst VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, s. 551 5425 Sýningin Milli goðsagnar og veruleika er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í Amman og er ætlað að varpa ljósi á heim araba. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykjavíkur- minningar en myndirnar tók Guðmundur um miðja síðustu öld í Reykjavík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um og endurvekur draumsýnina um hið full- komna samfélag. Hún leggur fram hug- mynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfellsnesi. Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of my Vanity“ sem útleggst á íslensku „Helgi- dómur hégóma míns“ í Gallerí Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið svokallaða IVD (intensive vanity disorder) eða hé- gómaröskun en það heilkenni verður æ algengara meðal þeirra sem temja sér lífs- stíl Vesturlandabúa. Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn- ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa- vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs- son. Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn- ingu sem Edward Fuglö heldur í Norræna

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.