Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 19.12.2002, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 19. desember 2002 Monica Lewinsky: Of flekkuð fyrir Ítali FÓLK Vindlastelpan hún Monica Lewinsky er ekki samboðin ítölskum sjónvarpsáhorfendum að því er virðist. Lewinsky átti að koma fram í ítalska spjall- þættinum Domenica In síðast- liðinn sunnudag á einni af RAI- stöðvunum, ítalska ríkissjón- varpinu. Ráðherrar úr hægri stjórn Berlusconi forsætisráð- herra, þar á meðal upplýsinga- ráðherrann, kvörtuðu sáran yfir því að bjóða ætti siðsömum áhorfendum upp á að fylgjast með stúlku með flekkað mann- orð. Þess má geta að stöðluð sviðsmynd í ítölskum skemmti- og spjallþáttum er hópur föngu- legra stúlkna íklæddra litlu öðru en bikinum eða álíka illa hylj- andi klæðnaði. ■ STUÐBOLTI Fjórum sinnum fleiri mættu í strandpartí Fatboy Slim en áætlað var, eða um 250.000 manns. Fatboy Slim: Ekki annað strandpartí FÓLK Svo virðist vera sem plötu- snúðurinn Fatboy Slim fái ekki að endurtaka leikinn og halda heljarmikið strandpartí í enska strandbænum Brighton. Síðast- liðið sumar stóð drengurinn fyr- ir ókeypis strandpartíi þar sem 250.000 ungmenni mættu til að skemmta sér, fjórum sinnum fleiri en búist var við. Borgaryf- irvöldum og íbúum Brighton var ekki skemmt. Fjöldinn teppti al- menningssamgöngur og al- menna umferð og bæjarstarfs- menn og skipuleggjendur partísins voru fleiri daga að tína ruslið eftir gamanið. Borgar- yfirvöld hafa lítinn áhuga á að endurtaka leikinn næsta sumar en útiloka þó ekki að halda slíka hátíð síðar meir. Fatboy Slim, skírður Norman Cook, viður- kennir að þetta hafi verið full- mikið af hinu góða en er til í að halda annað partí ef hann fær leyfi íbúa Brighton. ■ MONICA LEWINSKY Ítalir kalla yfirleitt ekki allt ömmu sína í siðamálum en Monica Lewinsky þótti ekki nógu siðleg fyrir sjónvarpsáhorfendur. ÍMYNDIÐ YKKUR AÐ VERA FÍLL Í TÆLANDI Sundbolafyrirsætan Imogen Bailey situr hér nakin fyrir og heldur á skilti sem á stendur „Ímyndið ykkur að vera fíll í Tælandi.“ Myndatakan er hluti af herferð gegn misnotkun fíla í Tælandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.