Fréttablaðið - 19.12.2002, Side 47

Fréttablaðið - 19.12.2002, Side 47
FIMMTUDAGUR 19. desember 2002 FÓLK Yoko Ono ætlar ekki að höfða mál gegn Paul McCartney vegna brota á höfundaréttarreglum vegna bítlalaga, að sögn tals- manns hins aðlaða tónlistar- manns. Nokkur umræða hefur verið um málið í erlendum fjöl- miðlum um að Ono sé að höfða mál gegn McCartney. Ástæðan ku vera sú að nafn Lennons hefur ávallt verið haft á undan sem höf- undur laga, þ.e. Lennon-McCartn- ey. Á nýrri tónleikaplötu sinni, Back in the US, sneri McCartney þessu hins vegar við. Talsmaður tónlistarmannsins sagði það fjar- stæðu að málaferli væru í upp- siglingu. Hann segir McCartney hafa viljað rétta við hlut sinn sem höfund laga Bítlanna. McCartney gerði svipað á tónleikaplötu sem hann gaf út með hljómsveitinni Wings árið 1976. ■ Ono og McCartney: Engin málaferli LENNON OG ONO Lífseigar vangaveltur um bítlalögin. Imbakassinn eftir Frode Øverli Vá! Hver var hraðinn á þessum? Veit það ekki!Þetta er hárþurrka! BÆKUR Sverrir Stormsker hefur vakið athygli með hvössum en háðskum pistlum sínum í morgun- sjónvarpi Stöðvar 2 síð- ustu mánuði. Hann hefur nú gefið pistlana út í bók- inni Hugvekjur og Hroll- vekjur, ásamt öllum öðr- um pistlaskrifum sínum á árabilinu 1990 til 2002. Hann segir útgáfuna meðal annars vera við- bragð við miklum utanað- komandi þrýstingi. Sverrir hikar ekki við að hrista upp í fólki í skrifum sínum, talar enga tæpitungu og segir nánast hvern einasta pistil hafa valdið einhverju fjaðrafoki en í greinunum minnir hann meðal annars á að „Jesú fæddist í fjár- húsjötu, ekki þeirri ríkisjötu sem prestarnir vilja vera á“, heldur því fullum fetum fram að áfengið hafi „áhrif, ekki bindindispostul- ar“, og að þegar loksins verði búið að fjarlægja flugvöllinn í Vatnsmýri treysti hann „borgar- skipulagssérfræðimeisturunum fullkomlega til að klúðra þessu svæði svo að heildarómynd borg- arinnar raskist ekki“. „Ég hef verið spurður mikið að því hvernig standi á því að ég geri svona mikið af því að skjóta á menn og málefni í stað þess að segja hlutina fallega og á jákvæðu nótunum. Mér finnst það bara ekki vera hlutverk pistlahöfunda. Þeir eru nálastungulæknar og eiga að finna og pota í veiku punktana. Ég reyni að gera það með glott á vör. Uppskurðinn og umskurðinn eiga svo aðrir að sjá um. Pistlahöfundar eiga ekki að nudda bakið og gefa blowjob. Það er til meira en nóg af flokkshollu fólki í þjóðfélaginu sem sér um það. Þeir sem kunna ekki við mín- ar aðferðir geta huggað sig við að bókin er ekki gefin út nema í 700 eintökum.“ ■ Hugvekjur Sverris Stormsker: Gefur út krass- andi greinasafn SVERRIR STORMSKER Ræðir vændi, handtöku Ástþórs Magnús- sonar og allt þar á milli í pistlunum sem hann hefur nú gefið út á bók: „Þrælarnir eru nefnilega ekki inná súlustöðunum heldur inná Alþingi og í Ráðhúsinu. Þessir þrælar vanahugsunarinnar halda að vandamálin leysist með því að banna kannabis, banna einkadans, afmá súlu- staði og fjölga pappalöggum.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.