Fréttablaðið - 27.12.2002, Side 6

Fréttablaðið - 27.12.2002, Side 6
6 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR STJÓRNVÖLD VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Hvað nefnist jólaávarp páfa? Hvað hefur Stoke leikið marga deildarleiki í röð án þess að vinna? Hver var borgarstjóri næst á undan Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur og hversu lengi? SVÍÞJÓÐ Lína langsokkur er níu ára. Astrid Lindgren hugsaði sér hana þannig. Yfirlýsingar hennar þessa efnis hafa greinilega ekki náð eyrum leikfangaframleið- enda í Kína. Fyrir jólin streymdu inn í sænskar leikfangaverslanir Línu langsokksdúkkur fram- leiddar í Kína. Þetta væri ekki í frásögur færandi, nema af því að dúkkan er í gegnsæjum nærbux- um með brjóst og lendar sem standa Barbí nær, en hún mun vera töluvert eldri en níu ára. Afkomendur Astrid Lindgren eru æfir yfir dúkkunni. „Þetta er eins langt frá hugmyndinni um Línu langsokk og hugsast getur,“ segir dóttursonur Lindgren, Nils Nyman. Hann segir dúkkuna gerða án samþykkis og vitundar ættmennanna og það sé alvar- legt. Dúkkan hefur verið fjarlægð úr dótabúðum í Svíþjóð og seld- ist illa að sögn. Framleiðsluleyfi mun hafa fengist frá fyrirtæki sem fer með höfundarrétt Lind- gren. Fjölskyldan hefur boðað að farið verði í hart við fyrir- tækið. ■ Gemlufallsheiði: Piltar í bílveltu LÖGREGLA Fjórir piltar sluppu án teljandi meiðsla þegar þeir óku út af og veltu bíl sínum á Gemlu- fallsheiði, milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar, í fyrrinótt. Sjúkrabílar fluttu drengina á spítala en þeir fengu fljótlega að fara heim. Bíll þeirra er stór- skemmdur og óökufær. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði voru piltarnir á leið til Þingeyrar við Dýrafjörð þegar óhappið varð. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu liggur orsök þess ekki fyr- ir. Ekki leikur grunur á ölvun- arakstri. ■ CAPE CANAVERAL, AP Hvernig stendur á því að fáninn blaktir þegar enginn vindur blæs á tunglinu? Þetta er ein þeirra spurninga, sem efasemdarmenn um tunglferðir hafa spurt. Þeir spyrja líka hvers vegna engar stjörnur sjást á myndum frá tunglinu. Voru þær kannski teknar upp í myndveri í Nevada- eyðimörkinni? Í þrjá áratugi hefur banda- ríska geimferðastofnunin NASA látið spurningar sem þessar sem vind um eyrun þjóta. Stofnunin hefur aldrei svarað þeim, sem halda því fram að tunglferðirnar hafi verið tómur blekkingarleik- ur. Þessar efasemdir fóru reynd- ar ekki hátt framan af, þótt þær mætti finna í bókum og á vefsíð- um. En á síðasta ári var fjallað um efasemdarmennina á vin- sælli sjónvarpsstöð í Bandaríkj- unum. Í framhaldi af því réð NASA til sín rithöfund til þess að skri- fa bók, þar sem helstu spurning- unum yrði svarað. Bókin átti ekki síst að nýtast nemendum og kennurum, enda koma víst einatt upp heitar umræður um málið í kennslustundum. Fljótlega hætti NASA reynd- ar við. Stofnunin telur betra að hunsa efasemdirnar með öllu. En rithöfundurinn, James Oberg, ætlar að halda ótrauður áfram og skrifa bókina. Hann telur ekki vanþörf á. ■ Hafnarfjörður: Deilt um einka- framkvæmd BÆJARMÁL Meirihluti Samfylk- ingarinnar í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar hefur ákveðið að fres- ta framkvæmdum við byggingu nýs íþróttahúss og sundlaugar á Hörðuvöllum. Sjálfstæðismenn gerðu einkaframkvæmdarsamning um uppbyggingu á svæðinu þegar þeir voru í meirihluta í bæjarstjórn. Samfylkingin hef- ur ætíð verið mótfallin einka- framkvæmd og hyggst nú skoða aðrar leiðir til að sinna brýnni þörf fyrir auknu sundlauga- rými. Sjálfstæðismenn vilja hins vegar að upphaflegum áformum verði fram haldið. ■ Samfylking þarf Ingibjörgu Sólrúnu Jón Baldvin Hannibalsson er hæstánægður með vendingar Ingibjargar Sólrúnar sem hann telur vera eina mótvægið við Davíð. Segir ekkert um eigin hugrenningar varðandi fimmta sætið í Reykjavík suður. STJÓRNMÁL „Ingibjörg Sólrún er það sem Samfylking þarf,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Íslands og fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, um boðað þing- framboð Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra í fimmta sæti á lista Samfylkingar í norðurkjördæmi Reykjavíkur. Meðal stuðnings- manna Jóns Baldvins hefur verið rætt að heppilegast væri að hann tæki fimmta sætið í Reykjavík suð- ur. Ámundi Ámundason, einn trygg- asti stuðningsmaður Jóns Baldvins, segir að til að stilla upp hinu endan- lega stórskotaliði, beggja vegna Miklubrautar, vilji menn sjá Jón Baldvin í framboði. „Þá vil ég ekki að hann drepist úr leiðindum í Helsinki,“ sagði Ámundi við Frétta- blaðið. Jón Baldvin segir að enginn hafi nefnt framboð við sig. „Ef Ámundi vill eitthvað gera fyrir mig þá mætti hann senda mér föðurland svo ég komist af í fimb- ulkuldanum hér í Finnlandi. Mig vanhagar ekki um neitt annað og Ámi má senda þetta í póstkröfu,“ segir Jón Baldvin sem reyndar er metsöluhöfundur eftir að bók hans, Tilhugalíf rann út eins og heitar lummur fyrir jólin. Aðspurður um það hvernig hon- um lítist á hugmyndina um að fara í fimmta sætið í Reykjavík suður segist hann kjósa að tjá sig ekki um það mál og ítrekar að enginn hafi við sig talað. Jón Baldvin segir ljóst að Ingi- björg Sólrún muni valda straum- hvörfum með þátttöku sinni í lands- málunum. Ingibjörg Sólrún sé tví- mælalaust eina mótvægið við Davíð Oddsson forsætisráðherra og því fagnaðarefni að hún skuli stíga þetta skref. „Það er staðreynd að hún er í raun leiðtogi jafnaðarmanna á Ís- landi. Með því að vinna Reykjavík þrisvar og sameina stjórnmálaöfl vinstra megin við miðju hefur hún unnið kraftaverk sem er ekki ein- leikið, Þetta hefur hún gert í and- stöðu við öflugasta talsmann valda- kerfisins og það undirstrikar að hún hefur óvenjulega hæfileika, meðal annars til að halda saman óstýrilátu liði. Þetta er það sem vinstri menn þurfa á að halda,“ segir Jón Bald- vin. Hann segist ekki hafa áhyggjur af óánægju Vinstri grænna og fram- sóknarmanna vegna vendingar borgarstjórans. „Menn eiga bara að lesa jólabæk- urnar og hugsa málið,“ segir Jón Baldvin sem heldur að þessu sinni jól á sínum nýja pósti í Helsinki. Á Þorláksmessu ætlaði hann að halda boð fyrir nýja vinnufélaga þar sem Bryndís, kona hans, ætlaði að hafa skötu á boðstólum en þá kom babb í bátinn. „Ég var með boð fyrir fulltrúa utanríkisráðuneytisins og ætlaði að bjóða upp á skötu og hákarl. En pósturinn týndi sendingunni. Það varð til bjargar hve fljót Bryndís er að hugsa því hún sauð hangikjöt og bauð upp á það heitt,“ segir Jón Baldvin. rt@frettabladid.is MEÐ FULLAR HENDUR FATA Fyrstu útsölurnar eftir jól hófust strax að morgni annars í jólum. Bretland: Útsölurnar hafnar MANCHESTER, AP Jólasteikin var rétt farin að sjatna í mögum margra Breta þegar fyrstu útsölurnar eft- ir jól hófust. Fjöldi fólks safnaðist saman í verslunarmiðstöðunni Trafford Centre í Manchester í Englandi í gærmorgun. Útsölurnar þar hófust klukkan sjö að morgni til á annan í jólum. Hleypa þurfti fólki inn í fataverslunina Next í hollum svo mikil var aðsóknin í vörur sem boðnar voru með helmingsaf- slætti. Þegar 300 manns voru komnir inn í verslunina biðu enn 200 manns eftir að vera hleypt inn. ■ Hagnast á klúðri: Síbrota- manni sleppt við refsingu DÓMSMÁL Síbrotamanni sem braust inn í bát á Dalvík og stal þaðan lyfjum var ekki gerð sér- stök refsing vegna málsins. Héraðsdómur Norðurlands- eystra segir ástæðuna þá að rannsókn hafi dregist af óút- skýrðum ástæðum og að maður- inn hafi ekki notið réttarfars- legs hagræðis sem hefði verið í að mál hans væri sameinað öðr- um málum. Maðurinn sem er 28 ár gam- all hefur hlotið 19 refsidóma frá árinu 1996, meðal annars ítrek- að fyrir þjófnaði. Síðast var hann dæmdur í mars á þessu ári í 60 daga fangelsi fyrir að aka án ökuréttinda og fyrir fíkni- efnabrot. ■ SETTUR RÁÐUNEYTISSTJÓRI Halldór S. Kristjánsson hefur verið settur ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu í allt að hálft ár frá áramótum. Halldór hefur verið staðgengill Jóns Birgis Jónssonar ráðuneytis- stjóra sem hefur fengið leyfi frá störfum. TÍU ÁRA ENDURBÓTUM LOKIÐ Nýtt og endurbætt húsnæði Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga hefur verið vígt. Gagngerar endurbætur hafa staðið yfir í tíu ár, eða frá 1992. Nýtt þjónustuhús var byggt og eldra húsnæði endurbyggt. ALLIR GREIÐA LEIGU Allir íbúar á sambýlum fatlaðra greiða húsaleigu frá og með áramótum samkvæmt reglugerð sem tek- ur gildi 1. janúar. Íbúarnir eiga rétt á húsaleigubótum. SVIÐSETT Í KVIKMYNDAVERI? Edwin Aldrin geimfari stendur við banda- ríska fánann 20. júlí 1969. Neil Armstrong tók myndina. Sumir eru sannfærðir um að geimfarar hafi aldrei farið til tunglsins. AP /N EI L AR M ST RO N G , N AS A JÓN BALDVIN HANNIBALSSON Föðurlandslaus í Helsinki fagnar hann komu Ingibjargar Sólrúnar í landsmálin. „Það er stað- reynd að hún er í raun leið- togi jafnaðar- manna á Ís- landi“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G O NÍU ÁRA? Astrid Lindgren hugsaði sér Línu langsokk sem níu ára stelpuskott. Framleiðendur Línu Langsokksdúkku hafa greinilega aðrar hugmyndir. Bandaríska geimferðastofnunin NASA: Vill ekki svara efasemdarmönnum Línudúkka veldur reiði: Langsokkur verður langkroppur Miðbær Akraness: Ný verslun- armiðstöð AKRANES Bæjaryfirvöld á Akra- nesi hafa ákveðið að lóðaúthlutun til Gnógs ehf. skuli gilda til 15. mars. Fyrirtækið hyggst reisa verslunarmiðstöð í miðbæ Akra- ness. Auk 7.500 fermetra verslunar- miðstöðvar er ráðgert að reisa tvær tíu hæða blokkir með 80 íbúðum á Skagaverstúninu. Áætl- aður kostnaður er um 1,5 milljarð- ur króna. Skipulags- og umhverfisnefnd Akraness hefur óskað eftir því að verkefnið verði unnið í samráði við nefndina. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.