Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.12.2002, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 27.12.2002, Qupperneq 23
Það ætti ekki að koma neinum áóvart að annar kafli í Hringa- dróttinssögu, „The Two Towers“, fór rakleiðis á topp bíóaðsóknar- listans í Bandaríkjunum á fyrstu viku sinni. Nýja myndin bætti að- sóknarmet fyrri myndarinnar um einhver 25% og gagnrýnendur hrósa flestir myndinni hástöf- um. Á Þorláks- messu var myndin komin í 8. sæti yfir bestu myndir allra tíma á Internet Movie Database. Fyrri myndin situr þar í fjórða sæti. Rokkrisarnir í Metallica ætla aðleika á tónleikahátíðunum í Reading og Leeds næsta sumar. Sveitin er við það að gefa út nýja breiðskífu og mun því líklegast verða afar fyrirferðamikil á næsta ári. Þeir hafa til dæmis þegar stað- fest að þeir munu koma fram á Hróarskelduhátíðinni næsta sum- ar. Sjálftitlaður konungur poppsins,Michael Jackson, lenti í efsta sæti lista People Magazine yfir „Lúða ársins 2002“. Árið sem er að líða var ekki það besta fyrir hann. Hann lenti snem- ma á árinu í skot- hríð fjölmiðlanna eftir að hann réðst á Sony-útgáfuna, sem hann kallaði „kynþáttahatara“ og sagði að hefði reynt að gera allt til þess að plata hans myndi ekki seljast vel. Hann komst svo aftur í fréttirnar þegar fyrrum umboðs- maður hans kærði hann fyrir samningsbrot. Síðasta fjölmiðla- málið var svo þegar hann tók upp á því að sveifla sex mánaða gömlu barni sínu fram af svölum á fimm- tu hæð á hóteli í Berlín. Leikkonan Kim Cattrall, semleikur Samönthu Jones í sjón- varpsþáttunum „Sex and the City“, hefur skilið við eiginmann sinn. Hún henti honum út og hélt því fram að hann væri með kynlíf á heilanum. Eiginmaðurinn fékk hana til þess að taka þátt í útgáfu bókarinnar „Satisfaction: The Art of the Female Orgasm“ í fyrra og var víst að undirbúa útgáfu fram- haldsbókarinnar. Cattrall var víst orðin leið á öllu kynlífstalinu enda ætti hún að fá nóg af því í vinn- unni. Leikstjórinn Quentin Tarantinohyggst gera kvikmynd þar sem Vega-bræðurnir, Vincent Vega úr „Pulp Fiction“ sem John Travolta lék og Vic Vega sem Michael Mad- sen lék í „Reservoir Dogs“, birtast á ný. Myndin ger- ist skiljanlega á undan hinum tveimur þar sem piltarnir létu lífið í myndunum. Næsta mynd leikstjórans heitir „Kill Bill“ og mun skarta Umu Thurman í að- alhlutverki. Tarantino ætlar að klára að skrifa handrit „The Vega Brothers“ snemma á næsta ári og búist er við því að myndin fari í tökur næsta sumar. Leikarinn John Travolta undirbýr því endurkomu sína í „svalheima“ á nýjan leik. 23FÖSTUDAGUR 27. desember 2002 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 2.20, 3.30 5.45, 7, 9, 10.30 og 12.30 GULLPLÁNETAN kl. 2,4 og 6 ísl. tal Sýnd kl. 4. 8 og 11.30 VIT 482 b.i. 12 ára m/ísl. tali 2, 3 og 5 VIT 498 HARRY POTTER m/ísl. tali 2, 5 og 8 VIT468 GULLPLÁNETAN enskt tal 7, 9 og 11 VIT499 GHOSTSHIP 11 og 12.50 VIT487 KNOCKAROUND GUYS kl. 2, 4, 6, 8 og 10. EN SANG FOR MARTIN kl. 4 og 8 JAMES BOND 2.30, 5.30, 8.30 og 11.10 EARNEST 2, 6 og 10 Sýnd kl. 2.30, 6.30 og 10.30 JAMES BOND 8 og 11

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.