Fréttablaðið - 27.12.2002, Page 28
28 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
JÓHANN HLÍÐAR HARÐARSON
Þarf hugsanlega að „koma út úr skápnum“
hvað varðar flugeldana þegar börnin
eldast.
Jóhann Hlíðar
Harðarson:
Fer á huggu-
legheitunum
inn í nýja árið
GAMLÁRSKVÖLD „Ég elda góðan mat
fyrir fjölskylduna, bræður mína
og þeirra fjölskyldur og móður
mína, þetta eru um það bil tíu
manns,“ segir Jóhann Hlíðar
Harðarson, fréttamaður á Stöð 2.
„Ég fer á eina brennu og svo í
Öskjuhlíðina til að horfa á flug-
eldana lýsa upp Reykjavík. Þetta
með Öskjuhlíðina kom til eftir að
við fluttum í Hlíðarnar.“
Jóhann segir einu hefðina
varðandi matseldina þá að hefðin
sé engin. „Ég ákveð matseðilinn
meðan ég melti jólarjúpurnar,“
segir hann og viðurkennir að hann
sé mikill flugeldamaður. „Ég nota
þá afsökun að þetta sé allt fyrir
börnin gert, það versnar í því þeg-
ar þau fara að eldast, þá neyðist
maður til að koma út úr skápn-
um,“ segir Jóhann hlæjandi.
Eftir flugeldana á miðnætti fer
Jóhann heim og fær sér kaffi og
koníak og fer á huggulegheitun-
um inn í nýja árið. ■
SVERRIR STORMSKER
Flugeldaglaður á gamlárskvöld eftir að
hafa etið hefðbundið hangiket.
Sverrir Stormsker:
Sama gamla
hangiketið
GAMLÁRSKVÖLD „Hefðir á gamlárs-
kvöld? Já, já, við borðum,“ segir
Sverrir Stormsker. „Ég og mitt
fólk, það er okkar hefð. Hvað við
borðum? Sama gamla hangiketið,
það er núna að verða um 40 ára.“
Sverrir viðurkennir að hann
fari hamförum í skoteldunum um
áramótin. „Ég skýt á hverju
gamlárskvöldi,“ segir Sverrir „og
skýt mikið.“ ■
Nei! Mér er slétt-
sama hva›a leikur
er! Taktu fletta af!
Djö...! Gó› tilraun, pabbi! En
vi› náum seinni hálf-
leik hjá ömmu ef vi›
höldum 350 km me›-
alhra›a!
Hvar hefur verið gengið
til góðs... og hvar ekki
Stjörnurnar líta um öxl á áramótum
Það skiptast á skin og skúrir hjá fræga fólkinu eins og öðrum dauðlegum. Á
áramótum er venja að líta yfir farinn veg og skoða árið sem er að líða. Það
gera stjörnurnar líka.
Þrátt fyrir að Vinona Ryder fáiað meðaltali 5 milljónir doll-
ara fyrir leik sinn í kvikmynd var
hún staðin að búðarhnupli í des-
ember árið 2001. Árið sem er að
líða hefur því verið vont fyrir
Vinonu, sem hefur margoft þurft
að mæta fyrir rétti og útskýra af
hverju hún borgaði ekki fyrir
Gucci-dressið, Marc Jacobs-bol-
inn, Dolce & Gabbana-töskuna,
hárbandið og sjö pör af sérhönn-
uðum sokkabuxum, sem er hluti
af því sem hún hafði á brott með
sér úr versluninni Beverly Hills
Saks í Hollywood. Góssið mun
hafa verið að andvirði 5,600 doll-
ara. Til að bíta höfuðið af sköm-
minni birtist leikkonan á forsíðu
tímaritsins W í bol með áletrun-
inni: Bjargið Winonu, og komst
þar með endanlega í flokk fár-
veikra og „dysfunctional“ leik-
ara. Winona var dæmd til að inna
af hendi 480 stunda samfélags-
þjónustu og vonir standa til að
leikkonan fullorðnist og þroskist
á nýju ári. ■
BÚÐARHNUPL
Aumingja Vinona hef-
ur ekki átt sjö dagana
sæla og spurning
hvort frami hennar í
kvikmyndum er end-
anlega fyrir bí.
Vinona Ryder:
Hundfúlt ár
Jennifer Aniston:
Blómstraði sem
aldrei fyrr
FRIENDS-LEIKKON-
AN SKEMMTILEGA
JENNIFER ANISTON
Vann marga sigra á ár-
inu og sannaði að hún
getur jafnt leikið
drama og grín.
Þegar Jennifer Aniston var senthandrit að kvikmyndinni The
Good Girl, og boðið að leika fýldu,
stríðhærðu og sérlega „ó-Rakelar-
legu skrifstofustúlkuna í mynd-
inni, var hún sannfærð um að
handritið hefði lent hjá rangri
leikkonu. Þegar hún hafði áttað
sig þáði hún hlutverkið og þykir
hafa staðið sig sérstaklega vel,
meira að segja hefur Óskarinn
verið nefndur í sömu andránni.
Aniston var með verðlaun í
farteskinu þegar hún hélt heim af
Emmy-verðlaunahátíðinni og
óhætt að segja að árið hafi verið
henni hliðstætt, en hún þjáðist
lengi vel af óöryggi og segist á
tímabili hafa verið sannfærði um
að hún yrði aldrei annað en geng-
ilbeina.
Meðleikarar hennar skilja ekk-
ert í óöryggi stúlkunnar og Matt-
hew Perry segist ekki geta hugsað
sér neitt sem Aniston ráði ekki
við. „Ég held hún hafi ekki
blómstrað neitt sérstakleg þetta
ár,“ segir eiginmaðurinn, Brad
Pitt. „Hún hefur alltaf verið stór-
kostleg, það er bara fyrst núna
sem heimurinn er að vakna og
átta sig á því.“ ■
Sara Jessica Parker ljómaði einsog sól á árinu sem er líða, en
hún fékk þann draum sinn upp-
fylltan að verða þunguð og eign-
aðist myndarlegan strák í lok
október. Óléttan kom þó aðeins
niður á aðdáendum The Sex sand
The City, því fimm þættir af
þrettán voru blásnir af. Sara
Jessica er ein af fáum kvik-
myndastjörnum sem er lukkulega
gift, en eiginmaður hennar til sjö
ára er leikarinn Matthew Broder-
ick. Hún segir fæðinguna standa
upp úr því sem gerðist á árinu.
„Ég var með hríðir í átta klukku-
stundir,“ segir Jessica, „en það
var þess virði. Ég er reyndar sí-
þreytt, en þessi reynsla hefur
kennt mér að meta mömmu mína.
Hvernig fór hún eiginlega að með
átta stykki?“ spyr Jessica, sem
segir það forréttindi að fá að vera
örmagna vegna umönnunar
barns.
Upptökur á sjónvarpsþáttun-
um hefjast að nýju í mars á
næsta ári, en þá undir nýju nafni,
Bassinets and the City. En móð-
urhlutverkið verður ekki til þess
að hlutverk Söru Jessicu breytist
í þáttunum. „Hún verður áfram
sú sem eyðir öllum sínum pening-
um í skó,“ er haft eftir framleið-
anda þáttanna, Michael Patrick
King. ■
NÝBÖKUÐ MÓÐIR
Er örmagna af þreytu
eftir barneign, en þó
alsæl.
Sara Jessica Parker:
Fæðing sonarins
merkilegust
Eminem má muna sinn fífilfegri sem „mesta sjokk“
Bandaríkjanna síðan Elvis var og
hét. Hann er nú orðinn þrítugur,
ábyrgur faðir sem býr í fínu hver-
fi í Dretroit. Grannarnir þekkja
hann hvorki sem Eminem eða
Slim Shady, heldur undir nafninu
sem honum var raunverulega gef-
ið, sumsé Marshall Mathers. Í
nóvember síðastliðinum sló hann í
gegn sem leikari í kvikmyndinni 8
Mile, sem byggir reyndar laus-
lega á ævi rapparans sjálfs, og
fjallar um strák sem rís upp úr fá-
tæktarslömminu. Eminem fékk
dúndur dóma fyrir frammistöð-
una og þótti túlka berskjaldaða og
óörugga aðalpersónuna af næmni
og mýrkt.
Eminem skoraði líka í tónlist-
inni því þrátt fyrir að The Mars-
hall Mathers LP, sem kom út árið
2000, hafi kostað ramakvein og
áköf mótmæli til dæmis lessa og
homma sem sögðu rapparann
haldinn viðurstyggilegum for-
dómum. Þrátt fyrir það seldist
síðasti diskur hans, The Eminem
Show, í sjö milljónum eintaka. Þó
kannski sé helst til langt gengið að
líkja Eminem við sætan bangsa
eins og slúðurdálkahöfundurinn
Maureen Dowd gerði í The New
York Times er greinilegt að rapp-
arinn grófi sem hefur hneykslað
milljónir er að eldast „illa“ og all-
ur að mýkjast. Sem kannski opnar
honum leið að þotuliðinu í Hollý,
en þangað hefur hann svarið að
komast.
„Ég er að ala dóttur mína upp
og verð að vera góð fyrirmynd,“
útskýrir rapparinn, en mörgum
finnst að minna hafi nú mátt gagn
gera. ■
EMINEM
Þykir hafa átt gott ár, en
áhangendum hans líst
ekki á hvað töffarinn er
að verða ráðsettur.
Eminem:
Mýktist upp á árinu
JÓLABARN
Rohitash Singh, sem er eins árs gömul,
einbeitti sér að því að drekka úr pela á
meðan jólin gengu í garð á Indlandi. Þrátt
fyrir að meirihluti Indverja séu hindúar
halda fjölmargir upp á jólin með margvís-
legum hátíðarhöldum.