Fréttablaðið - 27.12.2002, Síða 30

Fréttablaðið - 27.12.2002, Síða 30
30 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR DÝRT Er stoltur Vesturbæingur Bjarni Felixson á afmæli í dag. Hann er upp- alinn Vesturbæingur. Varð sjö sinnum bikar- meistari í fótbolta og er stoltur af viðurnefn- inu „Rauða ljónið.“ AFMÆLI Bjarni Felixson, íþrótta- fréttamaður, er 66 ára í dag. Hann ætlar ekki að gera neitt sérstakt í tilefni dagsins. „Ég hef sjaldan eða aldrei haldið upp á afmælið. Það hefur fallið inn í jólin og það er mjög þægilegt,“ segir Bjarni. „Þegar ég var yngri var haldið upp á það. Þá var það mjög gott því ég fékk auka dag á jólunum. Fékk uppáhaldsmatinn minn á þriðja í jólum.“ Bjarni er uppalinn og afar stolt- ur Vesturbæingur. Hann hóf menntagönguna í Miðbæjarskólan- um en tíu ára fluttist hann yfir í Melaskólann. Þá tók Gagnfræða- skólinn við Hringbraut við og síðar Gagnfræðaskóli Vesturbæjar, þar sem hann lauk landsprófi. Þá lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist Bjarni þaðan árið 1955. Nánasti vinur Bjarna og sessu- nautur á menntaskóla árunum var Friðrik Ólafsson, stórmeistari og skrifstofustjóri Alþingis. Auk hans voru Birgir Ísleifur Gunnarsson og Guðrún Helgadóttir í bekk með Bjarna. Bjarni segist ekki hafa verið mikill skákmaður líkt og Friðrik félagi hans, þótt hann væri þó oft bendlaður við hana. „Í næsta húsi við okkur bjó Guðmundur Ágústs- son sem var skákmeistari mikill. Þangað sóttu allir skákmeistarar bæjarins þekkingu. Kannski var það út af vináttu minni við Friðrik að ég fór snemma að hjálpa til á skákmótum. En skákmeistari er ég ekki.“ Bjarni fékk snemma áhuga á íþróttum. Hann segir að í næsta nágrenni hafi hálft KR-liðið búið. „Ég byrjaði að æfa fótbolta sjö ára gamall þegar KR fékk enskan þjálfara. Síðan gerðist ég frjáls- íþróttamaður og æfði þær sem drengur en fór að stunda fótbolt- ann af kappi ellefu eða tólf ára,“ segir Bjarni sem lagði skóna á hill- una árið 1968. Hann varð sjö sinn- um bikarmeistari, eitthvað sem fáir eða enginn hefur leikið eftir. Bjarni fékk snemma viðurnefn- ið „Rauða Ljónið“, þegar hann var eldrauðhærður og þótti harður í horn að taka. „Þeir gáfu mér þetta viðurnefni félagarnir í fótboltan- um. Ég er afar stoltur af því viður- nefni,“ segir Bjarni Felixson, af- mælisbarn. kristjan@frettabladid.is AFMÆLI Almar Örn Hilmarsson varnýverið ráðinn forstjóri Aco Tæknivals. Almar er aðeins 29 ára gamall og trúlega með yngri forstjórum á landinu. „Aldurinn segir nú ekki allt,“ segir Almar. „Ég er gömul sál og þrjóskur og fastheldinn á marga hluti.“ Almar sem hefur áður unnið sem framkvæmdastjóri Banana ehf. samþykkir ekki að tölvur úreldist hraðar en ávextir. „Það hefur hægst á þeirri þróun,“ segir hann. „Tæknibyltingin ekki jafn hröð og hún var.“ Áhugamál Almars snúast um íþróttir, tónlist, veiðar af öllu tagi og kvikmyndir. „Ég hef gaman af íþróttum en eingöngu sem áhorfandi. Uppáhaldstón- listin er rokk og hip hop og eig- inlega allt nema klassík. Mig dreymdi um að verða rokk- stjarna þegar ég yrði stór, en það átti ekki fyrir mér að ligg- ja.“ Almar lærði þó barnungur á bassa, en lagði hann fljótlega á hilluna. Hann hefur brennandi áhuga á skot- og stangveiðum þó ekki hafi hann haft erindi sem erfiði á rjúpnaskytteríum í haust. „Ég fór fjóra ferðir og kom alltaf tómhentur heim. Ég hafði ekkert upp úr þessu nema kulda og vosbúð,“ segir hann svekktur. En jólunum var bjarg- að þar sem pabbi hans og bræð- ur eru hittnari. Forstjórinn ungi nýtur þess líka að horfa á kvikmyndir í frí- stundum. „Þær verða þó að eiga eitthvað skylt við raunveruleik- ann. Ég hef ekki gaman af fjar- stæðukenndum bíómyndum.“ Nýja starfið leggst mjög vel í Almar. „Þetta er gríðarlega spennandi, hér er fullt af góðu og fersku fólki. Starfsmenn hér innanhúss eru ljósárum á undan mér í tölvuþekkingu, en ég treysti því fullkomlega að þeir séu þeir færustu á sínu sviði.“ Almar Örn er í sambúð með Brynhildi Stefánsdóttur. ■ Almar Örn Hilmarsson er nýr forstjóri Acos Tæknival. Persónan Dreymdi um að verða rokkstjarna BJARNI FELIXSON Bjarni hóf störf sem hlutamaður á Ríkisútvarpinu veturinn 1968 þegar enska knatt- spyrnan hóf göngu sína í sjónvarpi. Hann varð fastur starfsmaður árið 1974, eitthvað sem hann ætlaði aldrei að gera. Bjarni starfaði áður við verslun, skrifstofustjórnun og sem vélsmiður. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að Björn Bjarnason og Alfreð Þorsteinsson eru perluvinir Leiðrétting ALMAR ÖRN HILMARSSON Var flugeldasjúkur sem barn, breytti rakett- um og sprengdi leikföngin sín í loft upp. Það hefur elst af honum, en hann er nú orðinn forstjóri aðeins 29 ára gamall. Porche 911 Carrera hjá BílabúðBenna. Kostar 8.900 þúsund krónur; átta milljónir og níuhund- ruð þúsund krónur. Skemmtileg týpa með einstökum eðliskostum: 320 hestöfl, 6 strokka. Viðbragð: 5,2 sekúndur upp í 100. Bremsun: 100 niður í 0, 2,6 sekúndur. 6 gíra. 18 tommu felgur. Leðursæti. Spól- og skriðvörn. Dýrgripur á hjólum með öllu. Kostakaup fyrir þá sem geta og vilja. FÓLK Í FRÉTTUM Samgönguráðuneyti SturluBöðvarssonar sendi út þau tíðindi að ráðuneytisstjórinn, Jón Birgir Jónsson hefði fengið sex mánaða leyfi frá og með 1. janúar. Sú kenning er uppi að ráðuneytisstjórinn muni ekki snúa aftur til síns gamla starfs. Embætti vegamálastjóra er á lausu eftir áramót en fregnir hafa verið af því að Sturla ráð- herra hafi litið starfið hýru auga en síðan hrokkið undan. Nú er hvíslað um það í kerfinu að Jón Birgir eigi að hreppa hnossið. Talsvert er um það talað með-al útgerðarmanna að Krist- ján Ragnarsson, formaður og framkvæmdastjóri, hverfi ekki tómhentur frá LÍÚ á næsta ári. Kristján er einhver öflugasti talsmaður útgerðarmanna og hefur þjónað sambandi sínu allt frá miðri síðustu öld. Í starfs- samningi hans var ekki kveðið á um lífeyrisgreiðslur honum til handa og því þurfti að kippa í liðinn. Því var samið við Krist- ján um það að sambandið greid- di honum vegleg eftirlaun. Nokkur urgur er innan LÍÚ vegna þessa og einhverjir reiknimeistarar hafa fundið út að lífeyrissamningurinn kosti sambandið 70 milljónir króna. En í höfuðstöðvum LÍÚ neita menn að staðfesta upphæðir og samningurinn er aðeins á vitorði örfárra aðila sem sátu í fram- kvæmdaráði þegar samið var við þáverandi framkvæmda- stjóra. Hvernig heldurðu ljósku upp-tekinni? (Sjá hér fyrir neðan). Hvernig heldurðu ljósku upp-tekinni? (Sjá hér fyrir ofan). Urbi et Orbi, til borgarinnar og heimsins. 16, frá 22. september. Árni Sigfússon, þrjá mánuði. 1. 2. 3. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.