Fréttablaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Hlaðinn búnaði!
Volkswagen Crafter
Tilboðsverð
4.830.000 kr.
Volkswagen Crafter sendibíll. Sjálfskiptur.
Atvinnubílar
HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · Volkswagen.is
án vsk.
IÐNAÐUR Hópur manna undir for-
ystu Ólafs Joshua Baldurssonar
bílahönnuðar undirbýr opnun
þróunarmiðstöðvar og bílaverk-
smiðju hér á landi. Fyrirhugað er
að þróa, hanna og framleiða ofur-
sportbíla sem fengið hafa nafnið
Viking Union.
Ólafur hefur unnið við bíla-
framleiðslu tvo síðustu áratugi,
meðal annars fyrir bílaframleið-
andann Koenigsegg þar sem hann
bar ábyrgð á samsetningu véla. Á
síðustu árum hefur hann unnið
í Bretlandi við hönnun sportbíla
og mótorhjóla, meðal annars fyrir
fyrirtækið Supercars System við
sérsmíði sportbíls.
Áætlanir fyrirtækisins Viking
Union Auto Motive, sem Ólafur
stýrir, er að þróa, hanna og fram-
leiða mjög dýran sportbíl undir
nafninu Viking Union sem væri
tveggja manna götubíll með yfir-
byggingu og einrýmishönnun úr
koltrefjum. Gangi áformin eftir
verður þetta fyrsti bíllinn sem
framleiddur er á Íslandi fyrir
almenna notkun og í raun og veru
fyrsta íslenska bílamerkið. Í upp-
hafi er ætlunin að framleiða um
10-14 bíla á ári, eða um það bil einn
á mánuði. Framleiðsla yfir 60 bíla
á ári kallar á mun strangari fram-
leiðslureglur.
Að mati Ólafs eru á Íslandi góðar
aðstæður til að hanna, þróa og jafn-
vel smíða bíla á Íslandi. „Fyrir mér er
Ísland óskaland fyrir þetta verkefni,
ekki bara fyrir sérstöðu þess heldur
einnig að hér eru þær aðstæður sem
til þarf,“ segir hann. Hann segir að
áhugi sé hér á landi á sérsmíði bíla.
Þá sé málmsmíði mjög sterk hér sem
þróast hefur út frá sjávarútvegi.
Næstu skref séu að finna hér
hentugt húsnæði með aðgengi að
prófunarbraut auk fjármagns. Hann
segir að nú þegar sé um borð stór
erlendur fjárfestir.
Ólafur er í viðtali í Bílablaðinu,
fylgiriti dagsins. – ng, ds
Hyggst framleiða bíla á Íslandi
Íslenskur bílahönnuður undirbýr þróun, hönnun og framleiðslu á Íslandi á tveggja manna sportbíl í
fáum en dýrum eintökum. Þetta yrði fyrsti bíllinn framleiddur hér á landi fyrir almenna notkun.
Fyrirtækið Viking Union
Auto Motive ætlar að fram-
leiða dýra sportbíla undir
nafninu Viking Union.
UTANRÍKI S M ÁL Gunnar Snorri
Gunnarsson, sendiherra Íslands í
Kína, sendi allt kínverska starfs-
fólkið heim vegna kórónaveir-
unnar og aðeins Íslendingar eru að
störfum. Á rúmlega eitt hundrað
Íslendingar eru í Kína en enginn á
einangraða svæðinu við Wuhan. Um
fjörutíu eru í Peking, nokkrir tugir í
Shanghaí og Hong Kong og svo fólk
víða um landið. „Andrúmsloftið er
frekar þrúgandi, fáir á ferli, allir með
grímu,“ segir Gunnar. – ab / sjá síðu 4
Enginn héðan á
Wuhan svæðinu
Gunnar Snorri
Gunnarsson,
sendiherra
Íslands í Kína.
Hún beið lengi eftir stoðsendingu frá stúdínum álftin sem vappaði ein og frí á kanti ísilagðrar Reykjavíkurtjarnar í gær meðan fótboltaleikur menntaskólastúlkna stóð sem hæst á ísnum.
Þær létu álftina ekki truf la leikinn og ekki þýddi að gefa á hana svona kolrangstæða. Einhver bið verður nú á frekari fótboltaiðkun á tjörninni enda hlýindi í kortunum. FÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN