Fréttablaðið - 04.02.2020, Side 2
Fasteignamatið hefur
hækkað úr 362 milljónum í
625 síðan árið 2017.
Veður
Vaxandi sunnanátt í dag, 10-18
m/s seinni partinn með slyddu
eða snjókomu, en síðar rigningu.
Heldur hægari og þurrt NA til,
en dálítil snjókoma þar í kvöld.
Hlýnandi veður. SJÁ SÍÐU 14
Sjómenn læra réttu viðbrögðin
Nemendur í endurmenntun Slysavarnaskóla sjómanna við æfingu í Reykjavíkurhöfn. Þegar ljósmyndara bar að garði voru þeir að finna hitamun-
inn við loft og gólf. Skólinn er rekinn af Landsbjörg og var stofnaður árið 1985, til að sinna öryggisfræðslu fyrir sjómenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAMFÉLAG „Við kölluðum ungl-
inga úr öllum félagsmiðstöðvum í
Grafarvogi saman á fund þar sem
þau ákváðu hvernig verkefnið
skildi framkvæmt og hvaða málefni
skyldi styrkja,“ segir Helga Hjör-
dís Lúðvíksdóttir, forstöðumaður
félagsmiðstöðvarinnar Púgyn og
verkefnastýra Góðgerðaviku sem
nú stendur yfir í Grafarvogi.
„Góðgerðavikan var haldin í
Grafarvoginum fyrir einhverjum
árum síðan og nú erum við að end-
urvekja hana,“ segir Helga. „Krakk-
arnir sjá um alla skipulagningu
og við styðjum við bakið á þeim
og reynum að hjálpa eins og við
getum,“ bætir hún við.
Hópur unglinga úr hverfinu tekur
þátt í góðgerðaráði sem sér um að
skipuleggja Góðgerðavikuna og
valdi ráðið að styrkja við barna-
vinafélagið Hróa Hött sem hefur
það að markmiði að styðja fjárhags-
lega við bakið á þeim grunnskóla-
börnum sem líða skort á einhvern
hátt.
Eydís Birta Aðalsteinsdóttir,
nemandi í tíunda bekk í Kelduskóla
og meðlimur í góðgerðaráðinu,
segir að Hrói Höttur hafi orðið fyrir
valinu því að krökkunum hafi þótt
málefnið skipta miklu máli. „Þetta
tengist unglingum og börnum og
þessi viðburður er fyrir börn og
unglinga,“ segir hún.
„Okkur langaði líka að vekja
meiri athygli á þessu félagi vegna
þess að margir sem við töluðum við
höfðu enga hugmynd um hvað þetta
væri,“ segir Eydís.
Helga segir að krakkarnir hafi
verið sammála þegar kom að því
að velja málefnið og að það standi
þeim nærri. „Þeim þótti vænt um
að geta styrkt krakka á þeirra aldri
sem upplifa það að komast kannski
ekki með í skólaferðalög eða geta
ekki fengið mat í skólanum,“ segir
Helga.
Á Góðgerðavikunni eru haldnir
þrír stórir viðburðir og rennur allt
það fé sem krakkarnir safna beint
til Hróa Hattar. „Í gær var opið hús
þar sem var hægt að gera alls konar
skemmtilegt. Til dæmis borga þrjú
hundruð krónur fyrir brjóstsykurs-
gerð og rjómakast í starfsmenn,“
segir Eydís.
„Á morgun höldum við kaffihúsa-
kvöld þar sem verða þó nokkrir
listamenn sem við fengum til þess
að gefa tíma sinn og vera með okkur
og svo verða tveir stuttir fyrirlestr-
ar,“ segi Eydís.
Meðal þeirra sem koma fram
á kaffihúsakvöldinu sem haldið
verður í Hlöðunni í Gufunesbæ
á milli klukkan 19 og 22 eru Alda
Dís, Heiða Ólafs og Þorsteinn Ein-
ars. „Við erum líka búin að vera að
safna mörgum vinningum til þess
að geta haldið geggjað happdrætti
og verðum með kaffisölu. Við von-
umst til þess að sjá sem f lesta og
njóta kvöldsins,“ segir Eydís.
„Svo á föstudaginn þarf auðvitað
að enda svona góða viku á sturluðu
balli. Jói P. og Króli munu koma fram
ásamt nokkrum unglinga dj-um. Inn
á ballið mun kosta 500 krónur og við
vonum að allir munu skemmta sér
konunglega.“
birnadrofn@frettabladid.is
Unglingar í Grafarvogi
safna fyrir Hróa Hött
Unglingar í Grafarvogi standa nú fyrir viðburðum á góðgerðaviku í Grafar-
vogi. Safna fé til styrktar Hróa Hetti, félagi sem styður grunnskólabörn sem
líða skort. Listamenn munu gefa vinnu sína á Kaffihúsakvöldi annað kvöld.
FASTEIGNIR 570 milljón króna verð-
miði hefur verið settur á hið fræga
Kirkjuhús við Laugaveg 31, sem
Þjóðkirkjan hefur margsinnis sett
á sölu á undanförnum árum. Fram
að þessu hefur aðeins verið boðið
upp á tilboð.
Árið 2017 var húsið sett á sölu en
ákveðið var að bíða um stund þótt
tilboð hefðu borist. Hefur húsið
síðan nokkrum sinnum verið sett
aftur á sölu. Fasteignamat hússins
hefur hækkað mikið á þessum tíma,
árið 2017 var það 362 milljónir en er
625 milljónir í dag. Húsið er alls tæpir
1.542 fermetrar og var byggt árið
1945. Biskupsstofa flutti inn í það árið
1994 en hefur undanfarin ár verið að
færa starfsemina annað. – khg
570 milljón
króna verðmiði
á Kirkjuhúsið
VERÐ FRÁ 99.900 KR.
Á MANN M.V. FYRIR TVO FULLORÐNA OG TVÖ BÖRN
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUGISTING
SMÁHÝSI MEÐ 2 SVEFNHERBERGJUM
KANARÍ | 7. -14. FEBRÚAR
NÁNAR Á UU.IS | INFO@UU.IS | SÍMA 585 4000
ÍÞRÓTTIR Íþróttafélagið Kórdrengir
hafa gert leigusamning við Reykja-
víkurborg um afnot af geymslu í
frístundaheimilinu Álftabæ við
Safamýri 28, sem áður var félags-
heimili Fram. Í umsókn félagsins
kemur fram að félagið reki lið í
fótbolta, handbolta og skák en fót-
boltalið félagsins æfi alla virka daga
á svæði fyrir framan frístundaheim-
ilið. Liðið var eitt af spútnik liðum
íslensku deildakeppninnar í fyrra
og vann öruggan sigur í þriðju deild.
Undirbýr liðið sig nú af kappi fyrir
baráttuna í annarri deildinni.
Geymslan í Safamýrinni er hugs-
uð fyrir æfingadót félagsins. „Ég
tel alla okkar starfsemi vera mjög
heilbrigða og eingöngu vera húsinu
til sóma,“ segir í umsókn sem yfir-
þjálfari félagsins, Davíð Lamude,
skrifar til borgarinnar. Þá kemur
fram í umsókninni að Kórdrengir
geri sér fulla grein fyrir því að hús-
næðið sé skemmt vegna myglu. Í
ljósi ástands húsnæðisins ákvað
Reykjavíkurborg að lána félaginu
húsnæðið tímabundið án endur-
gjalds. – bþ
Kórdrengir fá
myglugeymslu
frá borginni
Frá æfingu Kórdrengja í Safamýri.
Kórdrengirnir gera sér
grein fyrir því að húsnæðið
er illa farið vegna myglu og
borgin lánar þeim það
tímabundið án endurgjalds.
Krakkarnir voru sammála um val á málefni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð