Fréttablaðið - 04.02.2020, Page 18
Eftir aðeins tæp
þrjú ár í framleiðslu
hefur Mercedes ákveðið
að hætta framleiðslu á
pallbíl sínum í júní
næstkomandi.
Frankfurt bílasýningin var haldin
í fyrra sem endranær en 30%
minni aðsókn á hana olli miklum
vonbrigðum. Þess vegna hafa
samtök bílaframleiðanda í Þýska-
landi ákveðið að flytja sýninguna
og komst Frankfurt ekki einu sinni
á lokalistann yfir hvaða borg yrði
fyrir valinu. Þær borgir sem koma
til greina eru Berlín, Hamborg eða
München.
Sýningin hefur verið haldin í
Frankfurt í 70 ár en hún er haldin
annað hvert ár, til móts við bíla-
sýninguna í París. Sýningin er
ásamt bílasýningunni í Genf
stærsta bílasýning álfunnar. Hún
hefur verið kölluð Alþjóðlega
bílasýningin og verið mikilvæg
fyrir frumsýningar og kynningar
á nýjum módelum. Kannanir hafa
sýnt að um þriðjungur þeirra
sem heimsækja sýninguna munu
kaupa bíl á næst sex mánuðum.
Sýningin er stór og mikið í hana
lagt og er þar af leiðandi dýr
fyrir framleiðendurna, sem
hafa undanfarið kosið að halda
eigin kynningar sem auðvelt er
að streyma yfir netið fyrir brot
af þeim kostnaði sem þátttaka í
stórri sýningu kostar.
Samtök bílaframleiðanda hafa
sagt að breyta þurfi áherslum
og setja fókusinn á samgöngur í
borgum framtíðarinnar og þess
vegna eru stórborgirnar Berlín,
Hamborg og München í lokaval-
inu sem tilkynnt verður á næstu
vikum.
Frankfurt bílasýningin flytur sig um set
Mercedes-Benz hefur ákveðið að
hætta framleiðslu á X-línu pall-
bílnum eftir aðeins þrjú ár í fram-
leiðslu. Bíllinn var kynntur árið
2017 og var ætlað að keppa við VW
Amarok, Ford Ranger og Toyota
Hilux á hinum vinsæla pallbíla-
markaði. Kaupendur voru hins
vegar ekki tilbúnir til að kaupa
bíl með Benz stjörnunni sem var í
raun og veru Nissan Navara undir
niðri og borga aukalega fyrir
það. Salan 2018 var aðeins 16.700
eintök á heimsvísu og um það bil
10.000 bílar seldust á fyrstu níu
mánuðum síðasta árs. Í Banda-
ríkjunum var ásóknin sem áður
mest í stærri pallbíla en X-línuna.
Síðasti bíllinn mun renna út af
færibandinu í Barcelona í júní og
hætt verður að taka við pöntunum
í bílinn í næstu viku.
Mercedes hættir framleiðslu X-línu
Kaupendur voru ekki tilbúnir að borga aukalega fyrir Benz merkingu á Navara pallbíl. MYND: TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Mikil mótmæli einkenndu bílasýninguna í Frankfurt í fyrra og hér hefur
hópur mótmælenda lokað innganginum að sýningunni. NORDICPHOTOS/GETTY
410 4000landsbankinn.isLandsbankinn
Lægra lántökugjald við
kaup á vistvænum bílum
Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald
við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi
við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir.
4. febrúar 2020 Þriðjudagur4 bílar