Fréttablaðið - 04.02.2020, Síða 26
Alveg síðan Ford tilkynnti á Bíla-
sýningunni í Detroit árið 2017 að
Bronco nafnið yrði notað aftur
á jeppa hafa bílaáhugamenn
beðið spenntir eftir því hvers er
að vænta. Ford hefur gengið vel
að halda útliti jeppans leyndu og
aðeins látið hafa eftir sér nýlega
að bíllinn verðir frumsýndur
vorið 2020. Stóra sýningin á vorin
í Bandaríkjunum er New York
Auto Show sem fram fer fyrri hluta
aprílmánaðar.
Ford hefur þó sagt aðeins meira,
eins og að nýr Ford Bronco sé
byggður á grind, sem er orðið fátítt
þessa dagana. Það þýðir einfald-
lega að um er að ræða alvöru jeppa
sem mun geta glímt við meiri tor-
færur en jepplingar. Hann mun líka
nota sömu vélar og Ford Ranger
pallbíllinn og reyndar undirvagn
líka. Það þýðir ekki að V8 vél sé í
kortunum en 2,3 lítra EcoBoost
vélin skilar 270 hestöflum og er því
verðug. Það þýðir líka að Bronco
getur fengið nýju 10 þrepa sjálf-
skiptinguna. Orðrómur er líka um
nýjan sjö gíra beinskiptan gírkassa
sem verður notaður við 2,7 lítra
EcoBoost V6 vélina sem yrði heldur
ekki leiðinlegur pakki, sú vél er 325
hestöfl og skilar 542 Newtonmetra
togi. Við vitum líka að hann verður
boðinn bæði þriggja og fimm
dyra, og von er á Bronco pallbíl
Verður nýr Ford Bronco frumsýndur í apríl?
Þessar njósnamyndir á Ford Bronco í miklu dulargervi birtust í netheimum
á dögunum og sýna bílinn á hærri fjöðrun og verklegan dekkjabúnað.
Lifandi þátttaka
í helgihaldi
2024 svo að samkeppni við Jeep
er greinilega í kortunum. Heyrst
hefur einnig að hægt verði að losa
hurðir og þak og koma þeim fyrir
í f lutningsrými bílsins. Hvort við
fáum svo að sjá Bronco 7.-8. apríl á
pressudögum New York sýningar-
innar kemur í ljós.
Það eru margir
spenntir yfir því
hvernig nýr Ford Bronco
verður útbúinn. Verður
hann jeppi eða ekki?
Ný kynslóð Kia Sorento er á næstu
grösum og samkvæmt fréttum
frá bílablaðamönnum í Suður-
Kóreu verður hann frumsýndur
eftir fáeinar vikur. Netveitan The
Korean Car Blog hermir að frum-
sýning nýja bílsins verði í Suður-
Kóreu þann 17. febrúar næstkom-
andi, sem er sami dagur og opið
er fyrir pantanir á heimamarkaði.
Það þýðir að öllum líkindum að
Evrópufrumsýning hans verði
þremur vikum síðar, á bílasýning-
unni í Genf. Kia Sorento keppir við
bíla eins og Skoda Kodiak, Land
Rover Discovery Sport og Nissan X-
Trail, en Sorento er byggður á sama
undirvagni og Hyundai Santa Fe.
Samkvæmt nýjum njósnamynd-
um af bílnum lítur hann út fyrir að
vera með hvassari línum en áður
og hafa hið einkennandi grill sem
kallað er tígrisnef. Sorento verður
líklega boðinn með 2,2 lítra dísil-
vél en einnig sem tengiltvinnbíll.
Í þeirri útgáfu er líklegt að hann
noti 1,6 lítra vélina úr Niro með
forþjöppu, ásamt rafmótor fyrir
afturhjólin.
Nýr Sorento
frumsýndur
í febrúar
Þessi njósnamynd af Sorento með
feludúkinn á náðist á dögunum.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
Bílaframleiðendur hafa þurft að
bregðast við á margan hátt vegna
kórónavírussins. Honda og Nissan
hafa meðal annars þurft að flytja
starfsfólk frá Kína og forstjóri
Tesla, Elon Musk, lét hafa það eftir
sér að tafir yrðu á framleiðslu
Model 3 í Shanghaí. Renault hefur
lokað verksmiðju sinni í Wuhan
fram í miðjan febrúarmánuð að
minnsta kosti. Vírusinn hefur þó
mest áhrif á framleiðendur íhluta
eins og Bosch og Magna Inter-
national sem reka margar verk-
smiðjur í Kína með tugþúsundir
starfsmanna. Verstu spár gera ráð
fyrir að vírusinn minnk- bílafram-
leiðslu ársins í Kína um 32% eða
um 1,7 milljónir ökutækja að sögn
IHS Markit. Ekki eru allar fréttir þó
slæmar því að samstarfsaðili Ford,
Jiangling Motors Corp., hefur þurft
að auka framleiðslu sína á sjúkra-
bílum um 1.900 eintök.
Kórónavírus
hefur áhrif á
bílaframleiðslu
4. febrúar 2020 Þriðjudagur12 bílar