Fréttablaðið - 18.01.2020, Side 16
1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Liverpool hefur leikið
38 leiki í deildinni án þess að tapa.
Það er þriðja lengsta sigurganga í
sögu Úrvalsdeildarinnar. Arsenal
spilaði 49 leiki án þess að tapa árið
2004 og Chelsea spilaði 40 leiki
ári síðar með Jose Mourinho við
stjónvölinn. Bæði lið töpuðu fyrir
Manchester United. Það eru fáir
sem búast við einhverju krafta-
verki á Anfield og að Manchester
United hafi einfaldlega getuna til
að velgja Liverpool undir uggum en
stuðningsmenn Manchester-liðsins
trúa því og rökin þeirra eru einföld.
Í leikjum gegn Liverpool getur allt
gerst.
Það sýndi sig vissulega í fyrri leik
liðanna á Old Trafford þegar Manc-
hester-liðið náði jafntef li. Ekkert
annað lið hefur stöðvað Liverpool-
hraðlestina á þessu tímabili.
Stuðningsmenn Liverpool hafa
skipulagt að taka vel eða illa á móti
leikmönnum Manchester eftir
hvernig á það er litið. Ætla þeir að
raða sér frá The King Harry pöbbn-
um, meðfram götum Liverpool alla
leið að Anfield. Eru menn hvattir til
að koma með blys, fána og bjór til
að sýna leikmönnum Manchester
hvað þessi leikur þýði fyrir borgina
og liðið. Liverpool hefur fengið 17
þúsund punda sekt fyrir svipaðar
móttökur gegn Manchester City en
þá brutu stuðningsmenn reyndar
rúðu í rútu City. Þeir hafa einnig
tekið svona á móti Barcelona fyrir
4-0 sigurinn margfræga í Meistara-
deildinni. Í pósti stuðningsmanna
segir einmitt að f lestir viti hvað
svona móttökur geta gert liðum.
Lögð er áhersla á að skapa spennu-
þrungið andrúmsloft en of beldi sé
ekki liðið.
Manchester-liðið verður trúlega
án Marcus Rashford og munar um
minna. Liverpool-vörnin hefur
haldið marki sínu hreinu í sex síð-
ustu leikjum en síðan í desember
hefur liðið fengið á sig þrjú mörk.
Tvö gegn Everton og eitt gegn
Monterrey. Það er því ekkert grín
að komast í gegnum varnarmúr
Liverpool.
Liðið spilar þó ekki varnarbolta.
Langt frá því. Það hefur skorað 50
Geta endað þriðju sigurgönguna
Einn stærsti leikur ársins í enska boltanum er um helgina þegar erkifjendurnir Liverpool og Man. Utd etja kappi á morgun. Liðin
eru á ólíkum stað en Utd hefur stöðvað tvær lengstu sigurgöngur enska boltans og í svona leik getur allt gerst – þó það sé ólíklegt.
mörk það sem af er deildinni eða
2,38 mörk að meðaltali í leik. Aðeins
Manchester City hefur komið
tuðrunni oftar í markið. Liverpool
spilar þannig fótbolta að þeir hlut-
lausu stilla inn á leiki Liverpool til
að njóta. Það er einhver fegurð sem
fæðist á grasinu í hvert sinn sem
þeir spila. Á meðan er allt svolítið
þungt hjá Manchester United en
liðið hefur aðeins unnið níu leiki
í deildinni og eru 27 stigum á eftir
erkióvini sínum fyrir leikinn. Þrátt
fyrir muninn er þetta vissulega
leikur þar sem allt getur gerst þótt
stuðullinn á veðmálasíðum sé
minni á sigri Liverpool.
Liðin hafa unnið 38 deildar-
titla, níu Meistaradeildarbikara,
19 FA-bikara, 13 deildarbikara og
36 Samfélagsskildi. Þá eru ótaldir
aðrir bikarar. Þetta eru sigursæl-
ustu lið enska boltans og önnur
lið geta aðeins dreymt um söguna
sem þessi tvö lið eiga. Manchester
hefur unnið 66 titla en Liverpool er
með 63 og á góðri leið með að bæta
þeim 64. í safnið í vor en fátt getur
komið í veg fyrir að Liverpool fagni
sínum fyrsta deildartitli í 30 ár. Það
er alveg ástæða að þessi slagur sé
talinn einn sá stærsti – ekki aðeins
á Englandi heldur í heiminum.
benediktboas@frettabladid.isStjórarnir fyrir leikinn á Old Trafford. Báðir hafa verið með létt skot í aðdraganda leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
31. mars 2001 2–0
4. nóvember 2001 3–1
1. desember 2002 1–2
9. nóvember 2003 1–2
15. janúar 2005 0–1
18. september 2005 0–0
3. mars 2007 0–1
16. desember 2007 0–1
13. september 2008 2–1
25. október 2009 2–0
6. mars 2011 3–1
15. október 2011 1–1
23. september 2012 1–2
1. september 2013 1–0
22. mars 2015 1–2
17. janúar 2016 0–1
17. október 2016 0–0
14. október 2017 0–0
16. desember 2018 3–1
✿ Leikir liðanna á Anfield
síðan árið 2000
HANDBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í handbolta tapaði öðrum leik
sínum í röð á Evrópumótinu í hand-
bolta í gær þegar Slóvenar unnu
30-27 sigur á Íslandi. Strákarnir
okkar eru því án stiga þegar þrír
leikir eru eftir af milliriðlinum og
sæti í undanúrslitunum nánast
úr sögunni. Þá verður erfitt fyrir
íslenska liðið að tryggja sér þátt-
tökurétt í undankeppninni fyrir
Ólympíuleikana úr þessu en ásamt
Evrópumeisturunum komast tvö
efstu liðin í umspilið sem hafa
ekki þegar tryggt sér þátttökurétt.
Landsliðið fær ekki langan tíma til
að dvelja á þessu tapi þar sem leikur
gegn spútnikliði Portúgals bíður á
morgun.
Sóknarleikur Íslands var lengi
af stað og voru fyrstu mínúturnar
keimlíkar því sem íslenska liðið
sýndi á upphafsmínútunum gegn
Ungverjum. Slóvenar nýttu sér
liðsmuninn þegar Íslendingar
léku manni færri vel og náðu fimm
marka forskoti, 7-2, strax á tíundu
mínútu leiksins.
Leikhlé Guðmundar Guðmunds-
sonar á 8. mínútu virtist vekja leik-
menn íslenska liðsins til lífsins.
Ólafur Andrés Guðmundsson fór
fyrir sókn íslenska liðsins næstu
mínúturnar þegar Ísland jafnaði
metin á tíu mínútna kafla þar sem
íslenska liðinu tókst að auka hrað-
ann. Ísland náði forskoti í eina
skiptið í leiknum skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks en Slóvenar náðu að
stela forskotinu með tveimur síð-
ustu mörkum hálfleiksins.
Annan leikinn í röð hélt íslenska
liðið sjó fyrstu mínútur seinni hálf-
leiksins en þurfti að horfa á eftir
andstæðingum sínum um miðbik
seinni hálfleiks. Á sautján mínútna
kafla missti Ísland jafnan leik í sex
marka forskot og Ísland hefði aðeins
tíu mínútur til að jafna metin.
Íslandi tókst að minnka muninn
í þrjú mörk á lokamínútum leiks-
ins en nær komust strákarnir ekki
og þriggja marka sigur Slóvenanna
staðreynd.
Slóvenska liðið reyndist einfald-
lega sterkara í gær og fór miðju-
maðurinn Dean Bombac þar
fremstur í f lokki. Bombac fór oft illa
með íslensku vörnina, bæði þegar
kom að markaskorun og að mata
liðsfélaga sína því hann kom að 21
marki hjá slóvenska liðinu. Slóvenar
eru með fullt hús stiga eftir sigurinn
á Íslandi og eru líklegir til frekari
afreka á mótinu. – kpt
Farið að fjara undan Ólympíudraumnum hjá Strákunum okkar
Strákarnir okkar réðu ekkert við Dean Bombac í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Viktor Gísli Hallgríms-
son varði þrjú af sex víta-
köstum Slóvena í gær og
hefur alls varið fimm af tíu
vítaköstum sem hann hefur
tekist á við.