Fréttablaðið - 18.01.2020, Side 27
Upptaka á B12
gegnum slímhúð í
munni er örugg, þægileg
og áhrifarík leið til að
tryggja líkamanum
nægjanlegt magn af B12
vítamíni og til að verja
okkur gegn skorti.“
B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir það margvíslegu hlutverki í lík-
ama okkar. Það er m.a. nauðsyn-
legt fyrir skiptingu frumnanna en
rauðu blóðkornin eru í hópi þeirra
frumna sem skipta sér oftast og
því veldur B12-vítamínskortur
blóðleysi. B12-vítamín er nauð-
synlegt fyrir nýmyndun tauganna
og spilar það því stórt hlutverk í
að halda taugakerfinu okkar í lagi
sem og heilastarfseminni.
Mataræðið skiptir miklu
B12 vítamín fáum við ekki í
grænmeti eða jurtum og fáum við
það að stærstum hluta úr mat-
vælum sem koma úr dýraríkinu
og þá aðallega kjöti, innmat,
sjávarafurðum, eggjum, mjólk og
osti. Jurtafæði (vegan) þar sem
sneitt er hjá öllum dýraafurðum
er af mörgum talinn afar heil-
brigður lífsstíll en rannsóknir hafa
sýnt að fólk sem fylgir þess háttar
mataræði getur lent í skorti á
ákveðnum lífsnauðsynlegum víta-
mínum, steinefnum og fitusýrum
og er B12 þar á meðal.
Hvað veldur B12 skorti?
Skortur á B12 verður yfirleitt vegna
skorts á B12 vítamíni í fæðunni eða
vegna þess að líkaminn getur ekki
unnið B12 úr fæðunni. Þetta er það
vítamín sem flesta skortir á efri
árum og er það oftast vegna skorts
á efninu „Intrinsic Factor“ sem
er mikilvægt prótein, framleitt í
maganum sem sér um upptöku á
þessu lífsnauðsynlega vítamíni.
Það þýðir að þó svo að við borðum
dýraafurðir eða tökum vítamín-
pillur, verður engin upptaka á B12
og við lendum í skorti. Óhófleg
neysla áfengis, kaffis, kóladrykkja
og nikótíns, notkun ýmissa lyfja,
m.a. sýrubindandi lyfja og mikil
eða langvarandi notkun sýklalyfja
er einnig meðal þess sem getur
valdið okkur skorti.
Einkenni B12 skorts
geta verið eftirfarandi:
n Orkuleysi og slen.
n Þreyta, ör hjartsláttur, and-
þyngsli og svimi.
n Náladofi í hand- og fótleggjum.
n Hægðatregða, uppþemba.
n Þyngdartap.
n Erfiðleikar með gang.
n Skapsveiflur. Minnisleysi, þung-
lyndi og vitglöp (Dementia).
Að auki eru mörg einkenni sem
benda til skorts á B12. T.d. rauð,
ert og jafnvel slétt tunga, minnkað
bragðskyn, meltingarörðugleikar,
vindgangur og breyttar hægðir.
Bragðgóður munnúði
sem tryggir upptöku
Í ljósi þess að B12 skortur tengist
oft vandamálum í meltingarvegi er
best að taka það í formi munnúða.
Upptaka á B12 gegnum slímhúð í
munni er örugg og áhrifarík leið
til að tryggja líkamanum nægjan-
legt magn af B12 vítamíni eða til
að verja okkur fyrir B12 skorti.
B12 Boost munnúðinn frá Better
You inniheldur methylcobalamin
sem er náttúrulegt form þessa
vítamíns, hann er bragðgóður og
tryggir að líkaminn fái allt það B12
sem hann þarf á afar auðveldan og
einfaldan máta.
Króm stuðlar að eðlilegum efna-
skiptum orkugefandi næringar-
efna og stuðlar að viðhaldi eðlilegs
glúkósamagns í blóðinu. Öll B-
vítamín eru vatnsleysanleg og því
þarf að taka þau inn reglulega
Fæst í flestum apótekum, heilsu-
búðum og heilsuhillum stórmark-
aða og verslana.
B12 vítamínskortur getur
reynst fólki lífshættulegur
B12 Boost frá BY er áhrifaríkur og náttúrulegur munnúði sem inniheldur hátt hlutfall af B12 víta-
míni (methylcobalamin), krómi og grænu tei. Þetta er það vítamín sem flesta skortir á efri
árum, oft vegna skorts á efninu Intrinsic Factor. B12 Boost er bragðgott og einfalt í notkun.
Í ljósi þess að B12 skortur tengist oft vandamálum í meltingarvegi er best að taka það í formi munnúða sem er áhrifarík leið til að fá nægilegt magn.
14 góðgerlastofnar
B6-Vítamín
Magnesíum
Bio-Kult Migréa er háþróuð 14 stofna góðgerlablanda og hafa rannsóknir sýnt að
inntaka á þeim í 10 vikur dró úr tíðni mígrenikasta um 40-45% og styrkur kastanna
minnkaði einnig um allt að 31%. Þessi vara inniheldur einnig magnesíum og B6 en það
tvennt stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa.
Bio Kult Migréa er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur.
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Bio-Kult Migréa
Tengsl milli þarmaflóru og annarar líkamsstarfsemi
eru vel þekkt og er talið að léleg flóra hafi m.a. áhrif
á höfuðverki og tíðni þeirra.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . JA N ÚA R 2 0 2 0