Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 27
Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti.“ B12 vítamín er gríðarlega mikilvægt og gegnir það margvíslegu hlutverki í lík- ama okkar. Það er m.a. nauðsyn- legt fyrir skiptingu frumnanna en rauðu blóðkornin eru í hópi þeirra frumna sem skipta sér oftast og því veldur B12-vítamínskortur blóðleysi. B12-vítamín er nauð- synlegt fyrir nýmyndun tauganna og spilar það því stórt hlutverk í að halda taugakerfinu okkar í lagi sem og heilastarfseminni. Mataræðið skiptir miklu B12 vítamín fáum við ekki í grænmeti eða jurtum og fáum við það að stærstum hluta úr mat- vælum sem koma úr dýraríkinu og þá aðallega kjöti, innmat, sjávarafurðum, eggjum, mjólk og osti. Jurtafæði (vegan) þar sem sneitt er hjá öllum dýraafurðum er af mörgum talinn afar heil- brigður lífsstíll en rannsóknir hafa sýnt að fólk sem fylgir þess háttar mataræði getur lent í skorti á ákveðnum lífsnauðsynlegum víta- mínum, steinefnum og fitusýrum og er B12 þar á meðal. Hvað veldur B12 skorti? Skortur á B12 verður yfirleitt vegna skorts á B12 vítamíni í fæðunni eða vegna þess að líkaminn getur ekki unnið B12 úr fæðunni. Þetta er það vítamín sem flesta skortir á efri árum og er það oftast vegna skorts á efninu „Intrinsic Factor“ sem er mikilvægt prótein, framleitt í maganum sem sér um upptöku á þessu lífsnauðsynlega vítamíni. Það þýðir að þó svo að við borðum dýraafurðir eða tökum vítamín- pillur, verður engin upptaka á B12 og við lendum í skorti. Óhófleg neysla áfengis, kaffis, kóladrykkja og nikótíns, notkun ýmissa lyfja, m.a. sýrubindandi lyfja og mikil eða langvarandi notkun sýklalyfja er einnig meðal þess sem getur valdið okkur skorti. Einkenni B12 skorts geta verið eftirfarandi: n Orkuleysi og slen. n Þreyta, ör hjartsláttur, and- þyngsli og svimi. n Náladofi í hand- og fótleggjum. n Hægðatregða, uppþemba. n Þyngdartap. n Erfiðleikar með gang. n Skapsveiflur. Minnisleysi, þung- lyndi og vitglöp (Dementia). Að auki eru mörg einkenni sem benda til skorts á B12. T.d. rauð, ert og jafnvel slétt tunga, minnkað bragðskyn, meltingarörðugleikar, vindgangur og breyttar hægðir. Bragðgóður munnúði sem tryggir upptöku Í ljósi þess að B12 skortur tengist oft vandamálum í meltingarvegi er best að taka það í formi munnúða. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum nægjan- legt magn af B12 vítamíni eða til að verja okkur fyrir B12 skorti. B12 Boost munnúðinn frá Better You inniheldur methylcobalamin sem er náttúrulegt form þessa vítamíns, hann er bragðgóður og tryggir að líkaminn fái allt það B12 sem hann þarf á afar auðveldan og einfaldan máta. Króm stuðlar að eðlilegum efna- skiptum orkugefandi næringar- efna og stuðlar að viðhaldi eðlilegs glúkósamagns í blóðinu. Öll B- vítamín eru vatnsleysanleg og því þarf að taka þau inn reglulega Fæst í flestum apótekum, heilsu- búðum og heilsuhillum stórmark- aða og verslana. B12 vítamínskortur getur reynst fólki lífshættulegur B12 Boost frá BY er áhrifaríkur og náttúrulegur munnúði sem inniheldur hátt hlutfall af B12 víta- míni (methylcobalamin), krómi og grænu tei. Þetta er það vítamín sem flesta skortir á efri árum, oft vegna skorts á efninu Intrinsic Factor. B12 Boost er bragðgott og einfalt í notkun. Í ljósi þess að B12 skortur tengist oft vandamálum í meltingarvegi er best að taka það í formi munnúða sem er áhrifarík leið til að fá nægilegt magn. 14 góðgerlastofnar B6-Vítamín Magnesíum Bio-Kult Migréa er háþróuð 14 stofna góðgerlablanda og hafa rannsóknir sýnt að inntaka á þeim í 10 vikur dró úr tíðni mígrenikasta um 40-45% og styrkur kastanna minnkaði einnig um allt að 31%. Þessi vara inniheldur einnig magnesíum og B6 en það tvennt stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa. Bio Kult Migréa er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur. Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Bio-Kult Migréa Tengsl milli þarmaflóru og annarar líkamsstarfsemi eru vel þekkt og er talið að léleg flóra hafi m.a. áhrif á höfuðverki og tíðni þeirra. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . JA N ÚA R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.