Fréttablaðið - 18.01.2020, Side 59
FOOTGUARD
kremið hentar
sérstaklega vel þeim sem
eiga við þrálát sprungu-
vandamál á fótum að
stríða.
Kerecis kynnir MariCell, íslensk krem sem innihalda Omega-3TM fjölómettaðar
fitusýrur, ávaxtasýrur og karb-
amíð. Kremin eru CE-merkt og
flokkast því ekki sem snyrtivörur
heldur lækningavörur.
Húðlæknirinn Baldur Tumi
Baldursson stendur að baki
MariCell kremunum sem fást í
nokkrum mismunandi gerðum og
eru framleidd af Kerecis á Ísafirði.
„Það hefur lengi þótt freistandi að
nota Omega 3 fitusýrur í meðferð
við hinum ýmsu sjúkdómum og þá
sérstaklega húðsjúkdómum. Áhrif
þeirra eru mjög góð á húðina en
lyktin hefur staðið mönnum fyrir
þrifum, enda eru fitusýrurnar
unnar úr fiskiroði og öðru sjávar-
fangi. Við hittum hins vegar á mjög
góða blöndu sem hefur virkni án
þess að lyktin trufli,“ segir Baldur
Tumi.
MariCell FOOTGUARD er
einstaklega virkt krem sem er
sérþróað til meðhöndlunar á siggi,
þykkri húð og sprungnum hælum.
Mýkri fætur og
betri líðan
Kremið FOOT-
GUARD í MariCell
línunni er sérstaklega
þróað fyrir fætur og
hentar sérstaklega
vel þeim sem eiga
við þrálát sprungu-
vandamál á fótum að
stríða og einnig þeim
sem þurfa að standa
mikið við vinnu og eru með slæma
fótaheilsu. Jafnframt er kremið
tilvalið til þess að mýkja og fegra
fæturna. Auk Omega 3 fitusýra
inniheldur kremið ávaxtasýru sem
brýtur niður sigg og þykka húð og
karbamíð sem er rakagefandi.
Sprungur á hælum geta myndast
þegar fitusýrurnar í
húðinni rýrna og húðin
verður þurr. Í kjölfarið
minnkar teygjanleik-
inn og húðin strekkist
þar til hún á endanum
gefur eftir og springur.
Regluleg notkun á
FOOTGUARD getur
komið í veg fyrir þetta.
Önnur krem í Mari-
Cell línunni innihalda
mOmega3™ fitusýrur,
ávaxtasýrur og karb-
amíð í mismunandi
styrk.
Sölustaðir: Apótek
MariCell Footguard
Meðhöndlar sigg, þykka húð og sprungna hæla
Wound – nýr
Omega sáraúði
frá Kerecis
Wound sáraúðinn er einfaldur og
þægilegur í notkun
n Hreinsið sárið vel með hreinu
vatni og hristið brúsann vel.
n Úðið úr fimm til tíu sentimetra
fjarlægð á húð og umhverfis
sárið.
n Hyljið með sáraumbúðum sem
henta hverju sinni.
Wound sáraúðinn inni-heldur bæði Jóhannesar-jurtarolíu og Neemolíu,
en báðar þessar olíur eru þekktar
fyrir græðandi eiginleika og inni-
halda fjöl ómettaðar fitusýrur.
Úðinn er til dæmis hentugur til að
meðhöndla núningssár, hruflsár,
væg brunasár, sár eftir blöðrur, sár
eftir inngróna nögl, litla skurði og
skrámur.
Úðinn er 100 prósent náttúru-
legur og án rotvarnarefna. Hann
hefur bakteríuhemjandi eiginleika
og samverkandi áhrif olíanna flýta
fyrir sáragræðslunni.
Sáraúðinn er CE merkt lækn-
ingavara og er nú þegar fáanlegur í
apótekum.
Kerecis kynnir
Wound sáraúð-
ann sem inni-
heldur Omega
olíur úr jurtarík-
inu og flýtir fyrir
náttúrulegri sára-
græðslu.
Dagur 1 Dagur 1
Dagur 14 Dagur 14
Þórey Sigrún Leifsdóttir hefur upplifað það frá 9 ára aldri
að vera með sigg á hælum og tábergi. „Amma kenndi
því um að ég gengi um berfætt en seinna kom í ljós
að þetta var sóriasis,“ segir Þórey. Sigg og sprungur
ágerðust með aldrinum hjá Þóreyju. „Þegar verst lét
var ég komin á það stig að vakna á nóttunni vegna kláða
og pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu.
Stundum brá ég á það ráð að raspa fæturna um miðjar nætur
og smyrja þá með smyrsli og vanlíðanin var mikil,“ segir Þórey sem
fyrir tveimur árum fór til húðlæknis sem benti henni á kremið MariCell
FOOTGUARD frá Kerecis. „Hann mælti eindregið með kreminu, bar það
á annan fótinn til prufu og eftir aðeins sólarhring fann ég stóran mun.
Ég ber nú kremið á mig eftir þörfum og tek skorpur en sprungurnar eru
horfnar og ég hef ekki vaknað út af kláða og blæðandi sprungum í tvö ár.
Ég hef í raun ekki verið jafn góð síðan ég var barn,“ segir Þórey sem hefur
ekki tölu á hversu mörgum hún hefur bent á MariCell FOOTGUARD. „Ég
mæli með því fyrir alla sem kljást við sprungur og sigg, því það er það
besta sem ég hef notað á mitt vandamál.“
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 1 8 . JA N ÚA R 2 0 2 0