Fréttablaðið - 18.01.2020, Side 70
ÞAÐ ÞARF AÐ FRAMKALLA
NÝJAR OG STERKAR
TILFINNINGAR SEM HAFA
BURÐI TIL AÐ YFIRVINNA
MÁTT EFASEMDA OG ÓTTA.
Cristiana og Áshildur eru báðar með víðtæka menntun og reynslu á bakinu en það var í tengslum við markþjálfastarfið
sem leiðir þeirra lágu saman fyrir
nokkrum árum. „Við Cristiana
hittumst fyrst á viðburði í Alicante
á Spáni sem nefnist European
Transformational Teachers Gath
ering. Röð atvika varð til þess að
við hófum samtal þar sem við sáum
í hvorri annarri ástríðuna fyrir
auknu dýpi í vinnu með tilfinningar
og ég sá þá hversu mikla þekkingu
og reynslu hún hafði á málefninu,“
segir Áshildur.
„Áhrifin af vinnu Áshildar virk
uðu afar sterkt á mig, þetta var ekki
eins og hefðbundin gongslökun
heldur náðu áhrifin á einhvern
hátt mun dýpra,“ segir Cristiana en
Áshildur hefur meðal annars nýtt
áratuga reynslu sína af hljóðfæra
námi til að halda slökunarstundir
með gonginu. „Við hófum samstarf
ið í Róm í byrjun síðasta árs þegar
Áshildur kom með gongin þangað
til að vinna með hóp af mínum
marksækjendum. Námskeiðið
gekk framar öllum vonum svo við
ákváðum að bjóða upp á annað
dagsnámskeið á Íslandi í júní í fyrra.
Í haust var okkur boðið að taka
þátt í viðburði í Cannes sem nefn
ist Global Luminary Activation
Experience, þar sem við vorum með
sérsmíðaða hugleiðslu samtvinn
aða við gongstund fyrir 50 manns.
Sú stund var afar mögnuð og það
var mjög áhugavert að heyra hvað
fólk upplifði innra með sér þessa
stund. Það tókst reyndar svo vel að
við vorum beðnar um að endurtaka
vinnuna aftur um kvöldið, sem við
og gerðum,“ segir Cristiana.
Rökhugsun ekki alltaf lausnin
Tilfinningar, draumsýn og hljómur
gongsins eru efni námskeiðsins
Dreaming from Emotions and the
Gong Experience sem þær stöllur
standa fyrir helgina 24.–26. janú
ar. Þar er ætlunin að vinna með
umbreytingu á þeim tilfinninga
mynstrum sem þátttakendur kjósa
í gegnum verklegar æfingar og upp
lifanir.
„Að uppgötva og dreyma nýjar
jákvæðar tilfinningar er afar sterk
leið til að brjóta upp gömul nei
kvæð tilfinningamynstur. Þegar við
stöndum frammi fyrir hindrunum í
lífinu liggur ekki alltaf augljóst fyrir
hver raunveruleg ástæða þeirra er.
Okkur er kennt að leita eftir rök
réttum, svarthvítum ástæðum.
En sum vandamál, og þar með
niðurstöðurnar líka, er ekki hægt
að finna með rökhugsun. Þegar
fyrirstöður persónulegs vaxtar og
velgengni okkar liggja í undirmeð
vitundinni erum við í raun að kljást
við efni sem talar annað tungumál
en við tölum dagsdaglega. Þegar
við beitum þessari aðferð losnar
um þessar fyrirstöður svo hægt er
að vinna með vandamálin.
Það sem kemur í ljós er oftast
mynstur sem þú sérð birtast á
ýmsum sviðum lífs þíns, allt frá
nánum samböndum yfir í frammi
stöðu í starfi. Þegar þetta mynstur
liggur skýrt fyrir getum við byrjað
að umbreyta því yfir í annað nýtt og
heillavænlegra,“ útskýrir Áshildur.
Erum öll forrituð í barnæsku
„Öll erum við forrituð í barnæsku
af ákveðnum viðmiðum; fólki, fjöl
miðlum og þjóðfélagsreglum. Þetta
forrit skapar síðan ákveðnar tilfinn
ingar, bæði góðar og slæmar. Orku
svið okkar skilgreinist út frá þeim
tilfinningum sem við upplifum og
laðar þannig til okkar og myndar
raunveruleika sem passar við þær.
Sem dæmi, ef mér líður eins og
fórnarlambi aðstæðna lifi ég á lágu
orkusviði og laða þannig til mín
aðstæður sem staðfesta þessa til
finningu og þær geðshræringar sem
henni tengjast. Fólk kemur síðan
fram við mig samkvæmt því og það
Brjóta upp neikvæð
tilfinningamynstur
Markþjálfararnir Áshildur Hlín Valtýsdóttir og Cristiana Durante
hittust fyrst á Spáni en báðar hafa þær ástríðu fyrir aukinni dýpt í
tilfinningavinnu og vilja koma þekkingu sinni áleiðis til fleiri.
Báðar hafa
þær Cristiana
og Áshildur
lokið námi á há
skólastigi auk
markþjálfara
námsins en
Cristiana er auk
þess menntuð í
höfuðbeina og
spjaldhryggs
meðferð og Ás
hildur jákvæðri
sálfræði.
hreyfir við mér, ég verð reið, í upp
námi, pirruð og svo framvegis. En
allt eru það afleiðingar djúpstæðari
tilfinninga frá því í æsku af því að
upplifa það að vera til dæmis ekki
nógu gáfuð, góð eða dugleg.
Við skoðum hvaða tilfinning
liggur að baki þessum pirringi eða
reiði, það gæti verið óöryggi, og
finnum út hvaða jákvæða tilfinn
ing vegur þar sterkast á móti. Þegar
við framköllum þá tilfinningu sem
við viljum hafa í okkar lífi erum
við mun betur í stakk búin að skil
greina drauma okkar og markmið
þar sem tilfinningar virka eins og
vegvísar sálar okkar. Í þessu sam
hengi ættum við að spyrja okkur
hvaða tilfinning það er sem gefur
okkur kraft og lífsorku.“
Nýjar tilfinningar
yfirvinna efasemdir og ótta
Aðspurð hvort hægt sé að breyta til
finningum svarar Áshildur ákveðið
játandi. „Við upplifum endurtekið
tilfinningar sem við viljum samt
ekki upplifa. Þetta er vinna sem
krefst hugrekkis, ákveðni og vilja.
Breyting á tilfinningum okkar er
tengd breytingu á hugarfari okkar.
Það þarf að framkalla nýjar og
sterkar tilfinningar sem hafa burði
til að yfirvinna mátt efasemda og
ótta sem vilja frekar beina okkur
að örygginu sem felst í þeim þekktu
slæmu tilfinningamynstrum sem
fyrir eru.
Það er enginn mælikvarði á
hvað er rétt eða rangt þegar að
tilfinningum kemur. Í nær öllum
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
tilfellum er um ákveðið mynstur
að ræða sem fer einn daginn að
tala mjög hátt til þín. Það er eins
og ákveðið korn hafi fyllt mælinn
og þú finnur að tími er kominn til
að gera eitthvað í málunum. Þessi
tímapunktur brýst út á ýmsan hátt
hjá okkur, við upplifum að vera allt
í einu komin með nóg af einhverri
manneskju eða aðstæðum, við
bregðumst mögulega harkalegar
við en vanalega, reiðumst, f lýjum
eða förum í vörn, en það er ein
mitt vísbending um að breytinga
sé þörf.“
Gongið hefur bein
áhrif á taugakerfið
Eins og fyrr segir hefur Áshildur
mikið unnið með hljóðbylgjur
gongsins og segir gongið talið eitt
elsta hljóðfæri veraldar sem sé lýst
sem frumhljóði sköpunarinnar.
„Það gefur frá sér afar magnaðar
bylgjur sem ná djúpt inn í kerfið
okkar, hugtakið inn að beini á vel
við í þessu samhengi þar sem við
erum einnig að vinna með aðferðir
höfuðbeina og spjaldhryggs
meðferðar. Markmið okkar er að
nýta hljóðbylgjurnar til að koma
beinum líkamans í kyrrðarpunkt
sem þekktur er í höfuðbeina og
spjaldhryggsmeðferð, en beinin í
líkama okkar eru alltaf á örlítilli
ósjálfráðri hreyfingu. Þar getur
líkaminn heilað sig, tekið á móti
nýju tilfinningunni og fært í undir
meðvitundina þar sem upprunalega
forritunin átti sér stað.“
1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð