Fréttablaðið - 18.01.2020, Síða 76
Gátur
Doctor Doolittle, eða Dagfinnur
dýralæknir, er ný bíómynd sem
fjallar um dýralækninn John Doo-
little sem getur talað við dýr og og
skilið þau og er þess vegna mjög
farsæll dýralæknir.
Sagan er byggð á bókum eftir
Hugh Lofting sem voru mjög vin-
sælar, sú fyrsta kom út í Bretlandi
árið 1920. Svo kom ein af annarri
og þær urðu strax vinsælar og voru
þýddar víða um lönd. Eins voru
gerðar kvikmyndir eftir þeim.
Nýja bíómyndin fylgir sögu-
þræði bókanna. Dagfinns bíður
hvert ævintýrið á fætur öðru. Aðal-
leikarar eru Iron Man sjálfur, Robert
Downey Jr., auk Óskarsverðlauna-
leikkonunnar Emmu Thompson.
Myndin var tekin upp í Wales.
Mynd úr fyrstu bókinni, Dagfinnur dýralæknir í apalandi. Hér eru rott-
urnar að yfirgefa skipið, ein af annarri, og það veit aldrei á gott.
Þær Eva Arnarsdóttir sjö ára og Eik
Arnarsdóttir fjögurra ára eru systur
sem eiga heima í Reykjavík.
Hafið þið alltaf búið í borginni
stelpur?
Já, en við förum stundum í sveit í
Engjarnar rétt fyrir utan Selfoss. Þar
sjáum við dýr, mest hesta.
Hafið þið farið á hestbak?
Eva: Já, ég hef, held ég, farið tvisvar,
mér fannst það skemmtilegt.
Kemur ykkur tveimur alltaf vel
saman?
Eik: Eiginlega alltaf – nema stund-
um.
Sláist þið?
Eva: Við sláumst ekki en stundum
rífumst við.
Hvað finnst ykkur mest gaman að
gera?
Eva: Mér finnst gaman að leika við
vini mína og líka í fimleikum.
Eik: Mér líka. Ég var að koma úr
fimleikatíma. Mér finnst gaman í
leikskólanum, föndra og leika með
kubba og búninga.
Eva: Mér finnst líka gaman í skólan-
um, mest í stærðfræði og íslensku.
Svo er gaman að spila á spil. Ég kann
svakalega mörg spil, Veiðimann,
Ólsen Ólsen, Únó, Apaspil, Bixed …
Hvor svindlar meira í spilum?
Eva: Ég man ekki eftir að hafa
svindlað.
Eik: Ekki ég heldur. Ég svindla
aldrei.
Hvernig leikið þið ykkur helst
saman?
Eva: Við förum í mömmó, til dæmis.
Eik: Stundum förum við kollhnís
og leikum okkur í rúmi mömmu
og pabba og stundum syngjum
við í karókí (bendir á tæki á stofu-
gólfinu).
Eva: Það er hægt að tengja þetta við
sjónvarpið og þá koma textarnir
á skjáinn. Við kunnum helling af
lögum.
Eik: Ég læri þau á leikskólanum. Svo
dönsum við líka.
Eva: Ég dansa oft í skólanum, við
lærum alveg slatta af dönsum þar.
Munið þið eftir einhverju fyndnu
sem hefur komið fyrir ykkur?
Eva: Mér fannst mjög fyndið þegar
ég var lítil og ég kúkaði á pabba!
Eik: Það er líka fyndið þegar
pabbi er alltaf að segja einhverja
brandara. Svo er líka fyndið þegar
mamma er alltaf að prumpa!
Fara kollhnís í rúmi
mömmu og pabba
Systrunum Eik og Evu kemur oftast vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
„Þessi þraut er þannig
að við eigum að reikna
út táknið sem vantar,“
sagði Lísaloppa. „Reikna
út?“ sagði Kata spyrjandi.
„Það eru engir tölustafir
til að reikna með, hvernig
getum við þá reiknað
þetta út?“
„Jú,“ sagði Lísaloppa.
„Táknin í hverri línu lesið
frá vinstri til hægri fylgja
ákveðnu lögmáli. En
það vantar eitt táknið
og hvert af táknunum
A,B eða D passar í stað
spurningamerkisins.“
Kata horfði tortryggin
á dæmið nokkra stund.
„Lögmáli! Mér litist nú
betur á þrautina ef þetta
væru bara tölustafir,
en hver þremillinn, við
hljótum að geta leyst
þetta.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
387
Getur þú
reiknað út
hvaða tákn
á
að vera þar
sem
spurninga-
merkið er?
?
?
?
A B D
Lausn á gátunni
SVAR:A?
ÞAÐ ER LÍKA FYNDIÐ
ÞEGAR PABBI ER
ALLTAF AÐ SEGJA EINHVERJA
BRANDARA. SVO ER LÍKA
FYNDIÐ ÞEGAR MAMMA ER
ALLTAF AÐ PRUMPA!
1. Hvenær hafa fílar tólf fætur?
2. Ef ég á það deili ég því ekki. Ef
ég deili því, á ég það ekki. Hvað
er það?
3. Hvað er á enda regnboga?
4. Hvort er þyngra kíló af ull eða
kíló af grjóti?
5. Hvaða orð mynda stafirnir l og
n?
6. Getur þú stafað þurrt gras með
þremur bókstöfum?
7. Hvað hangir úti í horni en
ferðast samt um heiminn?
Svör: 1. Þegar þeir standa þrír
saman, 2. Leyndarmál, 3. Bókstaf-
urinn A, 4. Hvorugt, bæði vega eitt
kíló, 5. Logn, 6. Hey, 7. Frímerki
Dagfinnur var farsæll dýralæknir
1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR