Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 78
LEIKHÚS Eyður Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið Höfundar og flytjendur: Katrín Gunnarsdóttir, Kristinn Guð- mundsson, Saga Sigurðardóttir, Sigurður Arent Jónsson, Védís Kjartansdóttir og Gunnar Karel Másson Sviðsmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir Tónlist: Gunnar Karel Másson Við byrjum á endalokunum. Heimurinn undirlagður plasti og braki. Manneskjurnar utangátta. Síðastliðinn miðvikudag frum- sýndu Marmarabörn sviðsverkið Eyður í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Marmarabörn hafa verið að hasla sér völl síðustu misseri og stíga nú fram sem einn áhugaverðasti og djarfasti sviðslistahópur landsins. Hópurinn samanstendur af lista- fólki úr ýmsum kimum listanna, þar má telja myndlist, dans og leiklist. Þau vinna verkið í sameiningu og flytja saman. Ekki er hægt að tala um eiginlegan söguþráð, frekar saman- safn hugmynda og svipmynda sem allar tengjast. Eyðilegginguna end- urvinna þau og allt sem á sviðinu er í byrjun er notað til að skapa nýja heima af öryggi, húmor og takt- festu, þó hæg sé. Nálgun þeirra er glettin og frumleg og kemur stöðugt á óvart. Hver og einn meðlimur sáldrar persónutöfrum yfir sviðið, hver flytjandi hefur um leið sinn ein- staka tón. Samvinnan einkennist af einstaklega fallegri hlustun og mýkt. Gunnar Karel Másson hefur komið víða við, bæði sem tónskáld og meðlimur sviðslistahópa. Hann semur tónlistina, útsetur lög og styður Marmarabörn með lifandi tónlistarflutningi. Tónheimur hans smellpassar sýningunni, aflíðandi tónar í bland við barokk. Listræn vinna Guðnýjar Hrundar Sigurðar- dóttur færir sýninguna á annað plan. Orð fá varla lýst hugmyndaauðgi hennar. Hvert atriði ber með sér nýjan fagurfræðilegan brag. Fyrsta atriðið eftir hlé, þar sem Marmara- börnin endurfæðast sem plast- furðuverur, er ógleymanlegt. Sviðs- myndin er stórbrotin og umbreytir stóra sviðinu í afstæðan hliðarheim þar sem allt virðist mögulegt. Allar listrænar ákvarðanir styðja hver við aðra. Lýsing Halldórs Arnar Óskars- sonar skyggir og lyftir upp atriðum, þá sérstaklega eftir hlé þegar myrkr- ið umkringir og einangrar þessar örvæntingarfullu verur. Vinna dramatúrga er oft óljós og að mörgu leyti óskilgreind í íslenskum sviðslistum. En í Eyðum má greinilega sjá mikilvægi þessa hlutverks enda hnýtir Igor Dobri- cic hugmyndaþræðina fast saman og setur síðan fallega slaufu ofan á. Slíkt auga og handbragð er ómetan- legt þegar sviðshópur bæði semur og framkvæmir sýninguna. Við endum á byrjuninni. Ekkert nema úthafið. Ölduniður. Tilvistin er hringrás af fæðingu og tortím- ingu, nema núna er mannveran að tortíma sjálfri sér á hraða sem aldrei áður hefur sést. Eyður verður ein- ungis sýnd einu sinni enn og áhorf- endur eru hvattir til að láta þennan viðburð ekki fram hjá sér fara. Þjóð- leikhúsið á heiður skilið fyrir að hafa þor til að sviðsetja gjörning á borð við Eyður á Stóra sviði hússins. Framúrstefnan boðar það sem koma skal í listum og Marmarabörn boða aldeilis góða tíma. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Einstæð og eftirminni- leg sýning. Hafsjór hugmynda Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 18. JANÚAR 2020 Orðsins list Hvað? Íðorð í prjóni Hvenær? 12.00-13.30 Hvar? Fyrirlestrasalur Þjóðminja- safns Íslands Ásdís Jóelsdóttir, Guðrún Hannele Henttinen og Herborg Sigtryggs- dóttir standa að kynningunni. Aðgangur er ókeypis. Hvað? Ljóðasmiðja, óháð tungumáli Hvenær? 13.00-15.00 Hvar? Bókasafn Kópavogs Smiðja þar sem orð úr gömlum bókum og tímaritum verða klippt og límd svo úr verði ljóð. Ljóða- smiðjuna leiðir Markús Már Efraím. Þátttaka er ókeypis. Myndlist Hvað? Vessel Hvenær? 18.00 Hvar? Harbinger, Freyjugötu 1 Daniel Reuter opnar sýningu sem er hluti af verkefninu Latent Sha- dow, sýningarstjórar eru Claudia Hausfeld og Daría Sól Andrews. Hvað? Tvær ljósmyndasýningar Hvenær? 14.00 Hvar? Þjóðminjasafn Íslands Í ljósmálinu – Gunnar Pétursson er í Myndasal og Horft til norðurs með myndum eftir hina kanadísku Jessicu Auer er á Vegg. Hvað? Stóla á þig Hvenær? 14.00-16.00 Hvar? Litla Galleríið, Strandgötu 19 Rósa Sigurbergsdóttir sýnir. Hvað? Tvær sýningar Hvenær? 15.00 Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði Í aðalsal er sýningin Þögult vor með verkum eftir Herttu Kiiski, Katrínu Elvarsdóttur og Lilju Birg- isdóttur. Í Sverrissal er sýningin Far, verk Þórdísar Jóhannesdóttur í samtali við verk Ralphs Hannam. Hvað? Kynslóðabil Hvenær? 16.00 Hvar? Midpunkt, Hamraborg Curver Thoroddsen opnar sína fyrstu einkasýningu. Hvað? Samsetning/Assemblage Hvenær? 16.00-19.00 Hvar? Forsetabarinn – 12 Tónar, Valdís Thor sýnir úrklippumyndir (collage) sem hún hefur unnið úr gömlum National Geographic blöðum. Dj Anna Margrét, AKA Barbarella, sér um tónlistina. Leiklist Hvað? Leiksýningin Dansandi ljóð Hvenær? 20.00 Hvar? Þjóðleikhúskjallarinn Leikritið byggist á ljóðum Gerðar Kristnýjar og einnig á tónlist og dansi. Tónlist Hvað? Night of Improvised Music Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 1 Kvöldstund tileinkuð spunaform- inu. Ýmsir tónlistarmenn og -konur koma saman með sín hljóðfæri og sjá hvað gerist. Hvað? Hvenær? Hvar? Sunnudagur hvar@frettabladid.is 19. JANÚAR 2020 Myndlist Hvað? Listamannsspjall Hvenær? 15.00 Hvar? Gallery Grásteinn, Skóla- vörðustíg 4. Guðrún Nielsen spjallar við gesti um seríuna Auðn og tengingu verka í henni við eldri umhverfis- verk sín er spanna um 30 ár. Tónlist  Hvað? Söguhringur kvenna/List- smiðjan Paradísarfuglar Hvenær? 13.30-17.00 Hvar? Borgarbókasafnið, Gerðu- bergi Í listsmiðjunni er tónlist og fjöl- breytt myndlistartækni. Hvað? Söngstund Hvenær? 14.00 Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg 10 Harpa Þorvaldsdóttir, kórstjóri í Laugarnesskóla, stjórnar fjölda- söng við undirleik tónlistarmanns. Hvað? Tónleikar Kammermúsík- klúbbsins Hvenær? 16.00 Hvar? Norðurljósasalur Hörpu Þau Páll Palomares fiðluleikari, Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari og Bjarni Frímann Bjarnason, sem leikur á píanó, flytja tónlist úr austurvegi. Leikhús Hvað? Leiksýningin Dansandi ljóð Hvenær? 16.00 Hvar? Þjóðleikhúskjallarinn. Leikritið byggist á ljóðum Gerðar Kristnýjar og einnig á tónlist og dansi. Bjarni Frímann, Ólöf Sigursveins og Páll Palomares leika úrvalsverk í Hörpu á vegum Kammermúsíkklúbbsins á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna fyrir grunn- skólastarf í Reykjavík sem er í samræmi við stefnu um skóla án aðgreiningar. Starfið einkennist af fjölbreytni og viðurkenningu á mismunandi þörfum nemenda, þar sem allir nemendur taka virkan þátt í skólastarfinu og margbreytileikinn er sýnilegur og virtur. Arthur Morthens, sem lést árið 2016, helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var jafnframt talsmaður þeirra í réttindabaráttu sem oft á tíðum var erfið. Hann vann ötullega gegn einangrun barna með sérþarfir, stóð í fylkingarbrjósti í stefnumótun fyrir mannréttindum þeim til handa og barðist fyrir því að öll börn hefðu sömu tækifæri til náms í skóla án aðgreiningar. Skilafrestur tilnefninga er til 7. febrúar 2020. Eyðublöð og nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is. Allir geta sent inn tilnefningar á: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið sfs@reykjavik.is. Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur 1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.