Fréttablaðið - 18.12.2019, Page 6
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Einn af gullmolum
jólabókaflóðsins!“
Marta María / smartland.is
„Magnaðasta bók sem
ég hef lengi lesið.“
Hrafn Jökulsson
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla daga í desember; sjá nánar á www.forlagid.is
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Geiri Sæm er látinn Tón listarmaðurinn og mat reiðslu
meistarinn Ás geir Magnús
Sæ munds son, betur þekktur sem
Geiri Sæm, lést á heimili sínu 15.
desember. Hann var 55 ára gamall.
2 Bannað að halda á fram í námi vegna kvíða lyfja Nemi í lög
reglu fræði í HA fær ekki að halda á
fram í námi eftir ára mót. Ástæðan
er að hún er á kvíðalyfjum.
3 Nanna Kristín í skýjunum: „Ég er greini lega að gera eitt hvað
rétt“ Nanna Kristín Magnúsdóttir
er tilnefnd til verðlauna Norræna
kvikmynda og sjónvarpssjóðsins
fyrir þættina Pabbahelgar.
4 Fór út að borða án þess að eiga fyrir reikningnum Lög
reglan var kölluð til um helgina
vegna manns sem gat ekki greitt
reikning sinn á veitingastað.
5 Lætur átta ferðir duga: „Ekki skyn sam legt að leggja í
neina ó þarfa á hættu“ Fjallgöngu
maðurinn John Snorri ákvað að
láta staðar numið eftir átta ferðir
á Esjuna en hann stefndi á fjórtán.
HÚSNÆÐISMÁL Þröngbýli hefur
aukist mikið á Íslandi á undan-
förnum tveimur árum og mest í
lægsta tekjuhópnum. En þröng-
býli er þegar heimili uppfyllir ekki
ákveðin viðmið um ákveðinn her-
bergjafjölda miðað við fjölda og
samsetningu heimilisfólks.
Samkvæmt nýjum tölum Hag-
stofunnar búa rúmlega 14 prósent
Íslendinga þröngt og rúmlega 30
prósent þeirra tekjulægstu. Árið
2016 bjuggu tæplega átta prósent
Íslendinga þröngt og rúmlega 14
prósent þeirra tekjulægstu.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, segir þetta endur-
spegla þróun fasteignaverðs síðustu
ára, sem hefur hækkað gríðar-
lega samfara húsnæðisskorti. „Við
höfum sérstakar áhyggjur af unga
fólkinu en þröskuldurinn fyrir það
að komast úr foreldrahúsum og inn
í eigið heimili er orðinn ansi hár,“
segir Drífa. „Þetta er ekki beint
fallið til þess að hvetja til barneigna,
á tímum þegar þeim fer fækkandi.“
Hækkunin kemur fram í öllum
tekjuhópum, ekki aðeins þeim
tekjulægstu, og athyglisvert er að
bera tölurnar saman við árin eftir
bankahrunið. En þá hreyfðist hlut-
fallið ekki nema lítillega og hvorki
úr takti við árin fyrir eða eftir, þrátt
fyrir mikið atvinnuleysi, gengis-
hrun og lítinn kaupmátt.
Drífa telur einnig að þessar tölur
séu vanreiknaðar því að inni í þeim
sé væntanlega ekki fólk sem býr í
ósamþykktu iðnaðarhúsnæði, að
miklu leyti útlendingar. Reglulega
berist fréttir af farandverkamönn-
um sem búi ákaflega þröngt.
„Þegar húsnæðisverð almennt
og leiguverð er orðið svona hátt er
hinn almenni launþegi allan dag-
inn einungis að reyna að bjarga því
sem bjargað verður. Á hverjum degi
Fjölskyldur búa þrengra í dag
Svokallað þröngbýli hefur aukist hratt á undanförnum tveimur árum og mest hjá hinum tekjulægstu.
Ungt fólk á erfiðara með að komast úr foreldrahúsum og minni áhersla er á að búa í stóru húsnæði.
Rúmlega 14 prósent Íslendinga búa þröngt samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar. NORDICPHOTOS/GETTY
Á hverjum degi eru
fjölskyldur hér á
landi meira og minna að
slökkva elda þegar kemur
að húsnæðisafborgunum.
Margrét Kristín
Blöndal
eru fjölskyldur hér á landi meira
og minna að slökkva elda þegar
kemur að húsnæðisaf borgunum,“
segir Margrét Kristín Blöndal, for-
maður Samtaka leigjenda. „Það er
því ekkert skrýtið að talað sé um
þröngbýli, að fólk minnki við sig í
húsnæði og pabbi og mamma sofi
bara í stofunni og börnunum sé
raðað í rest. Við erum að hverfa til
gamalla tíma.“
Segir hún stjórnvöld ekki hafa
neinn skilning á þeirri stöðu sem
stór hluti landsmanna er í og heyrir
hún æ oftar að fólk sé að f lytja úr
landi.
„Það eru einhver merki þess
að það sé að losna um húsnæði í
miðborginni vegna þess að færri
íbúðir eru í útleigu til erlendra
ferðamanna í gegnum Airbnb. En
samt hefur húsnæðisverðið ekkert
lækkað,“ segir hún.
Húsnæðisverð hefur hækkað
um meira en helming á síðustu 10
árum en húsnæðisstuðningur frá
hinu opinbera lækkað á sama tíma-
bili fyrir tekjulægsta hópinn. Sam-
kvæmt vefsíðunni Tekjusagan sést
að það kerfi sem leysti húsaleigu-
bótakerfið af árið 2017 gagnaðist
aðeins millitekju- og tekjuháu fólki
en fólk í tekjulægsta bilinu stóð í
stað.
Sigurður Helgi Guðjónsson, for-
maður Húseigendafélagsins, telur
að hluti af ástæðunni fyrir þróun-
inni geti verið breytt afstaða yngra
fólks til eigna og umhverfissjónar-
mið. „Verktakar hafa verið að leggja
áherslu á minni íbúðir, og ekki eins
flóknar, því undanfarið hefur verið
talað um að við höfum verið að
breiða of mikið úr okkur.“ Þá geti
verið ýmis samnýtingaráhrif af því
að búa naumt og að hlutir safnist
ekki fyrir í geymslum.
Telur hann að á þrengra heimili
verði meiri hætta á núningi og því
mikilvægara að samskiptin séu góð.
„Við erum með á okkar borði alls
kyns mál er varða fjöleignarhús og
ágreining þar á milli. Eftir því sem
f leiri búa saman, því f leiri verða
núningsfletirnir.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
JAFNRÉTTISMÁL Ísland er áfram
í efsta sæti á kynjajafnréttislista
Alþjóðaefnahagsráðsins, World
Economic Forum. Er þetta í ellefta
skiptið í röð sem Ísland er í efsta
sæti listans sem hefur verið gefinn
út frá árinu 2006.
Í skýrslu ráðsins kemur fram
að það taki 100 ár að ná fram full-
komnu kynjajafnrétti í heiminum
ef fram fer sem horfir. Frammi-
staða ríkja er metin þegar kemur að
stjórnmálum, menntun, atvinnu og
heilbrigði. Ísland mælist með 87,7
stig en 100 stig þýða að fullkomnu
jafnrétti hafi verið náð.
Af 149 ríkjum bætti 101 sig milli
ára. Þrjár Norðurlandaþjóðir raða
sér í sætin á eftir Íslandi. Norðmenn
eru áfram í öðru sæti en Finnar fara
upp fyrir Svía í þriðja sætið. – sar
Ísland er áfram
efst í jafnrétti
ALÞINGI Síðasta þing fundi ársins
lauk á Alþingi í gærkvöldi. Á síðasta
þingdeginum voru atkvæðagreiðsl-
ur um fjölda mála, þar á meðal um
frumvarp um lengingu fæðingaror-
lofs. Þingmenn stjórnarandstöð-
unnar gagnrýndu stjórnina fyrir
hringlandahátt og klúður þegar
breytingartillaga við fæðingar-
orlofsfrumvarpið kom fram á síð-
ustu stundu en um tæknileg atriði
var að ræða.
Að atkvæðagreiðslum loknum
gaf Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra þinginu skýrslu um óveðrið í
síðustu viku og ráðstafanir stjórn-
valda vegna þess.
Venju samkvæmt leit forseti
þingsins yfir farinn í veg í lok
síðasta þingfundar ársins. Í ræðu
sinni lýsti Steingrímur J. Sigfússon
ánægju með að störf þingsins hefðu
að mestu leyti verið í samræmi við
starfsáætlun þingsins en gagnrýndi
ráðherra hins vegar fyrir seinagang
við framlagningu stjórnarfrum-
varpa. Sagði hann frammistöðu
ríkisstjórnarinnar gagnvart þing-
inu undir væntingum í þeim efnum.
„Þessi staða sýnir að seint ætlar
ráðherrum og ráðuneytum að lær-
ast hversu mikilvægt það er upp á
vandaða vinnu og framgang mála
á Alþingi að þau berist tímanlega,“
sagði Steingrímur.
Á nýliðnu haustþingi voru 33
af 64 framlögðum stjórnarfrum-
vörpum samþykkt á Alþingi og 15
stjórnartillögur af 19. Þá voru tvö
þingmannafrumvörp samþykkt og
níu frumvörp nefnda. Í ræðu forseta
kom fram að f leiri mál hefðu ekki
verið afgreidd fyrir áramót í tæpan
aldarfjórðung eða síðan á árinu
1995. – aá
Forseti Alþingis skammaði ráðherra við þinglokin
Forseti ávarpaði síðasta þingfund
ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð