Fréttablaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 15
ALLT ER LYGI
NEMA ÁSTIN
V E F A R I N N M I K L I F R Á K A S M Í R
Hér dregur Pétur Gunnarsson
upp forvitnilega og heillandi mynd
af Halldóri Kiljan Laxness í upphafi
ferils síns, ástum hans og lífsátökum.
„Mjög vel lukkuð og forvitnileg.“
EINAR FALUR INGÓLFSSON / MORGUNBLAÐIÐ
„Pétur er svo góður sögumaður og
það er svo mikil hlýja í frásögninni.“
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR / KILJAN
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla daga í desember; sjá nánar á www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Yfirlýsing Sigurðar I. Jóhannssonar og Dags B. Eggertssonar um f lugvallarmál í lok nóv
ember var fyrirsjáanleg og pólitískt
óhjákvæmileg að mati flestra kjör
inna fulltrúa, sem Samtök um betri
byggð (BB) ræddu við undanfarin
misseri. Flestir viðurkenndu þó að
stefna BB væri „faglega rétt“ með
tilliti til arðsemi, mengunar, CO2,
mannvistar, menningar, lýðheilsu
o.s.frv.
Hvað gerir þroskað samfélag sem
verður fyrir barðinu á gjörsamlega
forkastanlegum pólitískum móral
stjórnmálastéttarinnar? Það beitir
sér fyrir betur mannaðri stjórnmála
stétt og betri pólitík. Þegar lélegir
pólitíkusar taka hörmulega ranga
og þjóðhagslega skaðlega ákvörðun
í f lugvallarmálinu er smíðuð enn
ein flugvallarskýrslan með fulltingi
aðstoðarliðs til að sanna að hin pólit
íska vitleysa sé besta lausnin.
Töf á brotthvarfi f lugvallar úr
Vatnsmýri veldur gríðarlegu tjóni
á öllum sviðum samfélagsins. Beint
árlegt fjárhagstjón er a.m.k. 5% af
bundnu fé í 300 miljarða byggingar
lóðum undir f lugvallarmalbikinu
eða 15 miljarðar. Annað árlegt tjón
á sviði rekstrar heimila, fyrirtækja,
stofnana og sveitarfélaga, á sviði lýð
heilsu, glataðra tækifæra, landflótta
o.s.frv. nemur líklega margfaldri
þeirri upphæð.
Töfin gerir að engu möguleika
borgar og torveldar möguleika ríkis
að standa við alþjóðlegar skuld
bindingar í loftslagsmálum árið
2030. Töfin veldur áframhaldandi
útþenslu jafnt innan sem utan
núverandi byggðarmarka höfuð
borgarsvæðisins (HBS). Bílum mun
án efa fjölga hlutfallslega og akstur
aukast. Rekstrarkostnaður heimila,
fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga
mun aukast enn frá því sem nú er
og neikvæð lýðheilsuáhrif bílasam
félagsins munu eflaust aukast.
Fjórða iðnbyltingin mun varla
verða jafnkröftug og ella og gæði
borgarinnar fyrir mannlíf og menn
ingu munu fremur hnigna en að hún
dafni.
Borgarstjóri, í umboði meiri
hlutans í borgarstjórn, er leiddur að
samningaborðum líkt og lamb til
slátrunar, til að undirrita fjarstæðu
kennda afarkosti í lok nóvember sl.
Borgarstjórinn hundsar vilja
meirihluta kjósenda í Reykjavík í
kosningunni 2001 um brotthvarf
flugvallar úr Vatnsmýri eigi síðar en
fyrir árslok 2016. Hann þverbrýtur
einnig samning borgar og ríkis frá
2013 um að flugvöllurinn hverfi fyrir
árslok 2022. Og hann beygir sig fyrir
kröfum sveitarfélaga í Kraganum um
BORGARLÍNU.
Samsæri gegn þjóðarhag
Áform sveitarfélaga á HBS um BORG
ARLÍNU, samkomulag ríkis og SSH
um fjármögnun BORGARLÍNU og
samgöngubóta í okt. 2019 og skýrsla
Sigurðar I. Jóhannssonar í nóv. 2019
um flugvallarmál á SV landi mynda
saman eins konar samsæri um 1520
ára töf á brottför flugvallar úr Vatns
mýri.
Áform sveitarfélaga á HBS um
BORGARLÍNU á næstu 1520 árum
gagnast einkum Kraganum. Þessi
áform munu valda áframhaldandi
útþensla byggðar innan og utan
núverandi byggðarmarka í Krag
anum.
Áformin krefjast „þvingaðrar“
búsetu nýrra kynslóða íbúa á höfuð
borgarsvæðinu meðfram strætóleið
unum í átt að ystu jöðrum byggðar í
Kraganum, á meðan besta búsetu og
byggingarlandi Íslands í Vatnsmýr
Keisarinn er ekki í neinu – Taka tvö
inni í Reykjavík er haldið óaðgengi
legu með „gjaldþrota“ og niður
greiddri flugstarfsemi næstu 1520
ár. Skýrsla samgönguráðherra er
auðvitað ömurlegt plagg. Niðurstaða
hennar lá fyrir fljótlega eftir að vinna
við hana hófst sbr. ummæli Njáls
alþingismanns norðan frá Akureyri
árið 2018. Vinna við skýrsluna hefur
líklega miðast við það helst að skila
niðurstöðu um 1520 ára töf á brott
hvarfi flugvallar úr Vatnsmýri.
Í skýrslunni er m.a. byggt á
kúvendingu í megináherslum. Nú
er millilandaflugvöllur settur í for
grunn vinnunnar til þess eins að
sýna fram á nauðsynlega töf á brott
hvarfi Vatnsmýrarf lugvallar um
1520 ár.
Áhersla allra fyrri f lugvallar
athugana miðaði eðlilega við innan
landsflugvöll svo rýma mætti Vatns
mýri fyrir miðborgarbyggð.
Hönnun, mat á umhverfisáhrifum
og bygging innanlandsf lugvallar
gæti tekið 35 ár. Verðmæti Vatns
mýrarflugvallar og tengdra mann
virkja er innan við 12 miljarðar kr.
Kostnaður vegna sambærilegrar
aðstöðu í Hvassahrauni er einnig
um 12 miljarðar kr. Séu uppi áform
um lengri flugbrautir og stærri flug
stöð kostar hver lengdarmetri og
hver fermetri einfaldlega ákveðna
og fyrirsjáanlega upphæð. Veður
far í Hvassahrauni er vel þekkt. Þar
var veðurstöð á árunum 20012009.
Starfandi veðurstöðvar eru auk þess
í Straumsvík og við Reykjanesbraut.
Vatnsverndarpælingar eru að sjálf
sögðu óþarfar m.a. vegna þess að
einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins
með u.þ.b. 810 milljónir bíla á ári
liggur nú þegar á milli f lugvallar
stæðis í Hvassahrauni og þéttbýlis á
Suðurnesjum. Sömu megin við þjóð
veginn liggur auk þess álver Rio Tinto
Alcan í Straumsvík.
Samgönguyfirvöld halda af ásettu
ráði uppi villandi umræðu um vara
f lugvöll. ICAO, Alþjóða f lugmála
stofnunin, krefst a.m.k. 183 km (100
sjómílna) fjarlægðar frá áfangaflug
velli að varaflugvelli í beinni loftlínu.
Því gæti í mesta lagi verið um algerar
neyðarlendingarbrautir að ræða.
Gunnar H.
Gunnarsson
verkfræðingur
og stjórnar-
maður í sam-
tökunum Betri
byggð
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9