Fréttablaðið - 21.12.2019, Qupperneq 22
Þann 26. des em ber frum sýn ir RÚV þætt ina Brot (The Valhalla Mur ders) sem eru í leik
stjórn Þórðar Páls son ar, Davíðs
Óskars Ólafs son ar og Þóru Hilm
ars dótt ur. Brot fjallar um rann
sóknarlögreglumanninn Katrínu
Gunnarsdóttur sem Nína Dögg
Filippusdóttir leikur.
„Við vorum í miklu samstarfi
við lögregluna og tæknideild lög
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
var okkur mikið innan handar. Við
fengum að tala við rannsóknarlög
reglumenn og fengum innsýn í starf
fíkniefnadeilda. Við lærðum alls
kyns brögð og það var alveg magnað
að fá alla þessa innsýn í starf lög
reglunnar. Ég ber ómælda virðingu
fyrir lögreglunni, störf hennar
eru óeigingjörn. Þetta er fólk sem
gefur sig allt í starfið og mér finnst
það megi kynna inntak starfs þess
betur fyrir fólki. En ég sjálf, ég hefði
hvorki styrk né taugar í að starfa
sem lögreglumaður.“
Katrín rannsakar dularfull morð
í Reykjavík, Nína segir hana vera
hörkutól. „Við köllum hana okkar
á milli Kötu í klandri. Hún er sterk
kona, húmoristi, metnaðargjörn og
með þykkan skráp. En hún er líka að
glíma við ósköp hversdagslega hluti
eins og við hin.“
Í tökunum reyndi Nína ýmislegt
sem hún hefur ekki gert áður. „Eins
og að synda í sjónum um hávetur!
Ég geri það nú ekki mikið oftar.“
Jólin hjá Nínu og fjölskyldu verða
óvenjuleg, hún og eiginmaður henn
ar Gísli Örn Garðarsson standa í
miklum framkvæmdum á heimili
sínu á Seltjarnarnesi. „Hefðirnar
eru hvort sem er allar að beygjast.
Við héldum fast í þá hefð að skreyta
jólatréð á Þorláksmessu. En jólin í
ár verða öðruvísi, við vitum til
dæmis ekki alveg hvar við verðum
yfir hátíðarnar. Þurfum að biðja
stórfjölskylduna að taka við okkur
í mat,“ segir hún og hlær. „Ann
ars held ég lítið í hefðir fyrir utan
það að yfir hátíðarnar verð ég að
fá hangikjöt með uppstúf og rófu
stöppu. Það finnst mér alveg topp
urinn!“ – kbg
Verður að fá hangikjöt með uppstúf og rófustöppu
Nína Dögg leikur eitt aðalhlutverka í þáttunum Brot.
Ábreiðuhljómsveitin B j a r t a r s ve i f l u r stendur fyrir svokölluðu „prom“ á Hressó í kvöld, en þetta er annað árið í röð sem
viðburðurinn er haldinn. Gestir
klæða sig upp á í anda bandarísku
hefðarinnar í kringum lokaböll í
gagnfræðaskólum þarlendis. Tísku
spekúlantarnir Saga Sig og Erna
Bergmann velja svo „Prom king“ og
„Prom queen“. Strákarnir í hljóm
sveitinni segjast stefna á að halda
hefðinni við um ókomin ár og eru
nú þegar farnir að undirbúa Prom
2020. Fréttablaðið fékk þá til að
svara nokkrum léttum spurningum
um jólin í tilefni ballsins.
Hver er ömurlegasta jólagjöfin
sem þú hefur fengið?
Kári: Leikfangasími frá vini
mínum þegar ég var 11 ára. Ég gaf
honum geggjaða gjöf.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
jólin?
Dagur: Að vakna á aðfangadag og
horfa á barnaefnið á RÚV.
Arnar: Þaulæfð skemmtiatriði til
að passa að enginn í fjölskyldunni
fari að rífast.
Úlfur: Það besta við jólin er að
vera undir teppi.
Hvert er draumasamstarfið?.
Ólafur: Bjartar sveif lur: The
Musical, þar sem Selma Björns,
Birgitta Haukdal, Svala Björgvins,
Ragga Gísla, Sigga Beinteins og Sig
ríður Thorlacius fara með helstu
hlutverk.
A r na r : Si n fón íu h ljóm s veit
Íslands.
Í ljós kemur að hin aldraða
djasssveit elliheimilisins Hlífar á
Ísafirði, Bjartar sveif lur, ætlar í
útrás. Fyrir liggur að þeir hafa rétt
á nafninu, hvað myndir þú þá nefna
sveitina?
Dagur: Við mundum kalla okkur
Glatt á hjalla.
Logi: Drullunettir halar
Hvort myndir þú borða bara jóla-
mat eða bara pitsu það sem eftir er?
Ólafur: Pitsu og Oreokex, ef ég
mætti ráða.
Hvernig tónlist myndu Dökkar
sveif lur spila?
Dagur: Tónlist sem fjallar um
ástir og vonbrigði.
Arnar: Tónlist sem fólk í sleik á
kaffibarnum getur hunsað sam
viskusamlega.
Kári: Dökkar sveif lur myndu
spila leiðinlega, óvinsæla frum
samda tónlist
Hvaða jólasveinn er versta fyrir-
myndin?
Dagur: Klárlega Giljagaur.
Logi: Gluggagægir, maður á ekki
að skipta sér af hlutum sem koma
manni ekki við.
Hver er maður eða kona ársins að
þínu mati?
Ólafur: Kona ársins þetta ár og öll
ár er Cher, verndari Bjartra sveiflna
Logi: Manneskjan sem tæmir
pappa og plastruslatunnurnar fyrir
utan hjá mér.
Hvert er uppáhalds jólalagið?
Arnar: Senn koma jólin með
Siggu Beinteins er eina alvöru jóla
lagið.
Hvert er leiðinlegasta jólalagið?
Arnar: Öll jólalög sem eru ekki
Senn koma jólin með Siggu Bein
teins
Hver er þín jólaósk?
Ólafur: Að finna draumaprinsinn
Benóný á ballinu í kvöld.
Dansið fram á rauðanótt í ykkar
fínasta pússi á „prom“ í kvöld, en
ballið hefst klukkan 21.00 á Hressó
og það er frítt inn.
steingerdur@frettabladid.is
Ball að bandarískri fyrirmynd
Arnar Ingi, Úlfur Alexander, Kári, Ólafur Daði, Dagur og Logi mynda ábreiðusveitina Bjartar sveiflur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN PÁLSSON
HÚN ER STERK KONA,
HÚMORISTI, METNAÐAR-
GJÖRN OG MEÐ ÞYKKAN
SKRÁP.
Sýning Einars Egilssonar, Sólhvörf, stendur yfir til
loka Þorláksmessudags í Núllinu gallerýi. Einar sýnir
25 ljósmyndir og ljósaverk. Núllið er í Bankastræti 0,
þar sem áður voru salerni fyrir borgarbúa.
Ekki missa af: Sólhvörfum
ÞAÐ BESTA VIÐ JÓLIN ER
AÐ VERA UNDIR TEPPI.
Úlfur
Hljómsveitin Bjartar
sveiflur stendur
fyrir balli í kvöld
í anda lokaballa í
bandarískum gagn-
fræðaskólum. Gestir
klæða sig í sitt fín-
asta púss og dansa
fram á rauðanótt.
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN