Skessuhorn


Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 201924 Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni stendur stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrenni fyrir því á afmælisárinu að birta greinar eftir hjúkrunar- fræðinga í Skessuhorni. Greinarn- ar hafa að undanförnu verðið birt- ar jafnt og þétt í blaðinu en í þeim geta lesendum fengið smávegis innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir sem hjúkrunarfræðingar fást við. Að þessu sinni kynnir sig til leiks Gunnar Bergmann Stein- grímsson hjúkrunarfræðingur: Ég heiti Gunnar Bergmann Steingrímsson og á mínar rætur að rekja til norðurs. Fæddist á Akur- eyri 1973 og ólst upp að mestu á Húsavík en flutti aftur til Akur- eyrar þegar kom að framhalds- skólagöngu. Árið 2000 flutti ég til Akraness eftir að hafa kynnst einni af mikilvægustu manneskjum lífs míns, eiginkonu minni Láru Elínu Guðbrandsdóttur. Saman eigum við nú fimm börn, hund og kött. Sú elsta er 24 ára og er nú búsett í London. Hún fylgdi með í pakkan- um ef svo má segja, en ég lít engu síður á hana sem mína eigin. Við eigum son sem er fæddur á alda- mótunum 2001 og var þá fyrsta barn ársins. Þá kemur miðjubarn- ið sem í dag er 16 ára sunddrottn- ing. Yngstu börnin eru 5 ára og 3ja ára stuðboltar. Við búum semsagt á Akranesi og líkar það bara vel. Helst af öllu finnst okkur skemmti- legt að búa til svolítil ævintýri fyr- ir börnin eins og að búa til heitan pott úti á svölum og fara í heim- sókn í sveitina að kíkja á lömbin og kindurnar. Ég hef sjálfur óbilandi áhuga á tækni og vísindum. Hef alveg einstaklega gaman að því að tengja saman tæki eða gera við þau. Vísindaskáldsögur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ég hef gam- an af því að skoða hvernig þær geta haft bein eða óbein áhrif á þróun nútímans. Til að mynda skrifaði Aldous Huxley merkilega bók árið 1932 sem hafði þá einstaklega ná- kvæma framtíðarsýn. Hann kynnti til sögunnar glasafrjóvgun, klónun, geðprýðislyf, stefnumótaþjónustu og þyrluflug sem samgönguviðbót til almennra nota. Þetta hefur allt ræst að miklu leyti. Þannig get- ur maður velt fyrir sér hvort það séu einhverjir vísindamenn í dag að reyna sitt besta til að finna upp geislasverð og geimskip sem getur ferðast á ljóshraða. „Besta gjöf sem foreldrar geta gefið börnum sínum er heil lífstíð af ævintýrum.“ [Lewis Carrol] Við reynum að veita börnun- um okkar valkosti fremur en að móta þau eftir forskrift samfélags- ins. Litlu stelpurnar okkar leika sér með ógurlegar risaeðlur jafnt sem dúkkur og uppáhaldsdýrið hjá þeirri yngstu eru köngulær. Þær eru líka Batman, eins og við öll. Konan mín hefur gaman af því að baka kökur og brauð, en ég hef svo sem alveg ágætis ánægju af því að vaska upp eftir hana. Hún er ein- staklega fær í að færa rök fyrir máli sínu. Vei þeim sem reynir að sann- færa hana um annað. Valdi sjúkraliðabraut Þegar ég var í 9. bekk á Húsavík, sem nú er þekktur sem 10. bekk- ur, var lagt fyrir okkur hefti með mögulegum námsleiðum í fram- haldsskóla og þá áttum við að íhuga hvað við vildum gera í fram- tíðinni eða leggja drög að því og taka einhverja stefnu. Svo eftir smá umhugsun var hverjum og einum boðið að lýsa því fyrir bekknum hvað hann/hún vildi læra. Það vakti strax athygli mína að flestir voru að velja náttúrufræðibraut, viðskipta- braut, málabraut og íþróttabraut. Ég velti því fyrir mér hvort það væri einhver sérstök ástæða fyrir því að flestir völdu sér þessar leiðir eða hvort þetta væri bara eitthvað sem væri tilviljunum háð. Þeg- ar röðin kom að mér, eftir að vera búinn að fletta í gegn um náms- vísinn, hafði ég tekið þá ákvörð- un að velja eitthvað sem gæti vak- ið áhuga minn og jafnframt verið eitthvað nýstárlegt fyrir mér. Ég valdi sjúkraliðabraut. Fyrstu við- brögð sem ég fékk frá nánasta um- hverfi var að ein stelpan aftarlega í bekknum gargaði: „“OJ! Skeina gamla fólkið!” Þá hugsaði ég; nú fyrst að það er hluti af þessu starfi þá verð ég bara að taka því og varð enn ákveðn- ari. Einhverra hluta vegna vissi ég sáralítið um þessa starfsgrein, það hafði enginn minnst einu orði á hana í kynningunni og hvað þá minnst á að þetta gæti verið hent- ugt nám fyrir karlmann. Áhuga mínum var þó einhverra hluta vegna beint algjörlega að þessum kosti og ég var ákveðinn í að láta ekkert stöðva mig. Þennan sama dag, þegar ég kom heim úr skólanum, var ég að velta því fyrir hvernig foreldrar mínir myndu taka þessu fyrst að öll við- brögð innan skólans höfðu verið afar neikvæð. Þegar ég sagði þeim frá ákvörðun minni reyndu þau að telja mér í trú um að þetta væri ekki hentugt fyrir mig, lág laun og svoleiðis, en mér varð ekki hagg- að. Þannig, eftir ýmsar hindranir, byrjaði ég í námi í framhaldsskóla og lauk síðan sjúkraliðaprófi árið 1993 frá VMA og lauk svo stúd- entsprófi 1994. Ég sá það alltaf fyrir mér að sjúkraliðanámið gæti verið stökk- pallur yfir á eitthvað meira, jafn- vel hjúkrunarfræði. Það liðu þó nokkur ár þar til sá draumur minn varð að veruleika. Um aldamótin reyndi ég fyrir mér í Háskóla Ís- lands og settist á skólabekk til að læra tölvunarfræði. Eftir eitt og hálft ár varð ég að hverfa frá því námi vegna fjölskylduaðstæðna og óhagstæðrar tilhögunar við af- greiðslu námslána. Ég var að vinna með náminu á hjúkrunarheimili og á þeim launum sem þá voru í boði var erfitt að ná endum sam- an. Því færðist ég um set og hóf vinnu hjá einingaverksmiðju sem framleiddi forsteyptar húsein- ingar. Þetta var á fyrri góðæris- tímanum og launin voru töluvert betri en í heilbrigðisgeiranum, en þetta var mikil vinna og átti ekk- ert sérlega vel við mig. Rétt áður en efnahagshrunið reið yfir hafði ég sagt því starfi lausu og réð mig til starfa hjá álverinu á Grunda- tanga. Þetta var sérlega heppilegt vegna þess að eitt af því fyrsta sem hrundi var fasteignamarkaðurinn. Eftir 5 ára starf sem verkamaður í álveri var ég orðinn frekar óham- ingjusamur með starfsvettvanginn og þráði einna helst að láta draum minn rætast um að læra hjúkrun- arfræði. Sá draumur rættist þeg- ar næst yngsta dóttir okkar kom í heiminn. Það má segja að hún hafi hjálpað mér að komast af stað. Ákveðin köllun að starfa við hjúkrun Hjúkrunarfræði er krefjandi og vandasamt starf. Það snýst um að hjálpa fólki í erfiðleikum, bjarga líf- um og bæta lífsgæði. Það er senni- lega ekki til meira gefandi starf. Sú ánægja sem hlýst af því að láta gott af sér leiða fyrir þá sem geta enga björg sér veitt er mjög dýrmæt. Að vissu leyti má segja að það sé ákveðin köllun að starfa við hjúkr- un. Þegar litið er til þess að hægt er að fá mun betri laun við önnur störf má ætla að hjúkrunarfræðing- ar séu að velja sinn starfsvettvang út frá hjartanu. Ég vil fyrir mitt leyti frekar vera í starfi sem gerir mig hamingjusaman en ríkan. Auðvitað mætti þó meta störf hjúkrunarfræð- inga að verðleikum og bæta kjörin til samræmis við það hversu gríðar- lega verðmætir hjúkrunarfræðingar eru fyrir þjóðfélagið í heild sinni. Um 2% hjúkrunar- fræðinga eru karlmenn Það má teljast nokkuð sérstakt að vera karlmaður sem starfar við hjúkrun. Það ætti ekki að vera sér- stakt, en er það engu að síður. Það eru einungis 2% hjúkrunarfræð- inga á Íslandi karlmenn og við vitum svo sem ekki nákvæmlega hversu margir af þeim starfa á sínu kjörsviði. Þessar aðstæður gera það að verkum að maður er mjög áber- andi í starfi eða námi. Í mínum út- skriftarhópi voru u.þ.b. 50 ein- staklingar, þar af vorum við tveir hvítu hrafnarnir í þeim hópi. Það hefur bæði kosti og ókosti að skera sig úr með slíkum hætti. Kostirnir eru t.d. að allir þekkja mann með nafni en ókostirnir til að mynda að verða oftar fyrir valinu til að stíga fram sem tilraunadýr. Nám- ið er mjög kvenlægt eins og gef- ur að skilja, áherslurnar eru mjög oft miðaðar við að það sé kven- kyns nemandi að tileinka sér þær. Stundum mætti segja að námið dragi úr sjálfstrausti nemendanna. Það er ætlast til þess að maður ef- ist um eigið hæfi og sé ávallt tilbú- inn til þess að leggja verk sín undir ákvarðanavald annarra. Við þess- ar aðstæður vill gleymast að það eru í raun og veru skjólstæðing- arnir sem eiga að ráða ferðinni og öll vinna á náttúrulega að miða að því að uppfylla þarfir þeirra innan skynsamlegra marka. Málsvari skjólstæðinga sinna Orðalag og verkhættir inni á sjúkrahúsum gera það að verkum að sjúklingar eiga á hættu að missa völd sín og eru oft hræddir við að láta sitt álit í ljós. Þetta má t.d. sjá við aðstæður eins og stofugang, sem er að mínu mati arfavitlaus leið til að ná markmiðum við lækn- ingar og hjúkrun. Hjúkrunarfræð- ingar eru málsvarar skjólstæðinga sinna og bera skyldu til að halda þeirra sjónarmiðum á lofti. Þetta er hlutverk sem ég tek mjög alvar- lega. Við mína vinnu reyni ég eft- ir fremsta megni að valdefla skjól- stæðinga mína og líka starfsfólk- ið. Það er nauðsynlegt að viðhalda reisn þeirra sem eru í undirsettum aðstæðum þannig að upplifunin verði ekki óþægileg. Sem karlmað- ur í hjúkrun er sérstaklega mikil- vægt að vera meðvitaður um þetta. Þegar skjólstæðingur þarfnast að- stoðar við viðkvæma hluti eins og við athafnir sínar á salerninu þarf að biðja um leyfi til að fara inn fyr- ir persónuleg mörk hvort sem um karl eða konu er að ræða. Valdi að starfa á dvalar- og hjúkrunarheimili Starfssvið hjúkrunarfræðinga eru jafn ólík og þau eru mörg. Það er hægt að velja úr mörgum valkost- um. Sjálfur hef ég valið að starfa inni á dvalar- og hjúkrunarheimili. Það hentar mér vel, þar sem ég get verið mjög sjálfstæður í starfi og hef kost á því að skipuleggja áherslur eftir mínum eigin hugmyndum. Þetta er langt frá því að vera eins og sumir sjá það fyrir sér og kom m.a. fram í viðhorfum sem lýst er í fyrri hluta greinarinnar. Það hugn- ast ekki öllum hjúkrunarfræðing- um að starfa með öldruðum, en að sama skapi hugnast ekki öllum að starfa á skurðstofu, slysadeild eða á legudeildum sjúkrahúsanna. Það er hægt að ímynda sér hvernig líf- inu væri háttað ef maður yrði fyrir stórkostlegum skakkaföllum. Það þarf ekki mikið til. Öllum ætti að vera ljóst að þeir myndu þarfnast sérstakrar nærgætni og alúðar við persónulegar athafnir sínar eftir áfall sem dregur verulega úr, eða takmarkar algjörlega, sjálfsbjarg- argetu. Þetta á oft við um aldraða. Vitsmunaleg og líkamleg hrörnun getur leitt til þess að þeir verða á mörgum sviðum ósjálfbjarga. Þá er mikilvægt að til staðar séu einstak- lingar sem eru tilbúnir til að leggja þeim lið á þann hátt að þau geti haldið virðingu sinni. Eitt af því sem er sérstaklega vandasamt í starfi hjúkrunarfræð- ings á hjúkrunarheimili er ná- lægðin við dauðann. Það er algjör- lega einstaklingsbundið hvernig fólk bregst við í þessum aðstæð- um. Þetta á við um alla sem að því koma. Sorgin knýr að dyrum á mis- munandi hátt fyrir alla. Stundum koma tímar þar sem margir kveðja okkur og það getur verið eins og það sé jafnvel árstíðarbundið. Samt sem áður verður það aldrei hversdagslegt. Við sem störfum á heimilinu verðum líka sorgmædd þegar kemur að kveðjustund. Það gerir okkur sennilega samt sterkari og gerir okkur betur kleift að skilja aðstandendur sem eru að kveðja ástvini sína. Þjónusta vélar eða sjá um mannlega þætti Í framtíðinni mun fólk velja á milli tveggja leiða í lífinu. Áherslurn- ar munu fylgja þeirri þróun sem er fólgin í fjórðu iðnbyltingunni. Þannig stendur valið á milli þess að starfa við tæknilega hluti sem fela í sér þjónustu við vélarnar sem munu taka við af fólki í hversdags- legum störfum. Við sjáum þetta nú þegar í þróun. Afgreiðslukass- ar í verslunum eru að verða úrelt- ir og í stað afgreiðslufólks eru að koma vélar sem aðstoða fólk við að afgreiða sjálft sig með því að nýta gervigreind. Þetta má heimfæra upp á alla hluti sem hægt er að leysa með tæknilegri útfærslu og gervigreind. Það mun hins vegar aldrei eiga sér stað á flestum svið- um hjúkrunarfræðinnar. Þar eru mannlegir eiginleikar til staðar sem engin vél gæti líkt eftir. Til þess að ná árangri á því sviði þarf fólk að tileinka sér þekkingu og færni í mannlegum samskiptum, rækta eiginleikann til að skynja tilfinn- ingar fólks og temja sér heilbrigða gagnrýna hugsun. Það er mikill skortur á starfsfólki í dag á þessum mannlegu sviðum. Með tíð og tíma mun þetta breytast. Við þurfum að vera tilbúin til að taka á móti þeim sem missa störf sín í hendur véla og hjálpa þeim að aðlagast nýjum veruleika. Það er erfitt að segja til um hversu langan tíma þetta mun taka. Hvort sem það verði ár eða áratugir getum við, með þessa framtíðarsýn í huga, gert ráð fyrir því að það hugnast ekki öllum að vinna tæknileg störf. Að mínu mati væri ágætis byrjun að hvetja karl- menn til að skoða möguleikana til að starfa við hjúkrun. Það er ekki einungis vegna þess að jafnvægið er gríðarlega skakkt. Heldur vegna þess að karlmenn hafa heilmikið fram að færa í starfi sem hjúkrun- arfræðingar. Það má segja að þeir séu í raun og veru vannýtt auðlind. Svo er aldrei að vita hvort stjórn- völd fari að sjá hversu verðmætir hjúkrunarfræðingar eru í raun og veru fyrir þjóðfélagið og fari að greiða samkeppnishæf laun þann- ig að tölvunarfræði og hjúkrunar- fræði geti staðið jafnfætis. Gunnar Bergmann Steingrímsson, hjúkrunarfræðingur. Karlmenn eru ónýtt auðlind í hjúkrun Gunnar Bergmann Steingrímsson hjúkrunarfræðingur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.