Skessuhorn


Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 201916 Stöðugt fækkar þeim vígjum sem flokkast hafa undir karlastörf. Þær eru til dæmis fáar konurnar í gegnum tíðina sem tekið hafa að sér starf kaupfélagsstjóra. Í sumar mun Margrét Katrín Guðnadótt- ir, dýralæknir og MBA í viðskipta- fræði, taka við starfi kaupfélags- stjóra Kaupfélags Borgfirðinga, fyrsta konan til að gegna því starfi í 115 ára sögu félagsins. Gaman er að segja frá því að fyrir nokkrum árum kusu félagsmenn í KB fyrsta kvenformann stjórnar, Guðrúnu Sigurjónsdóttur á Glitsstöðum, og þá er varaformaður stjórnar María G Líndal í Hundadal. Margrét Katrín hefur starfað sem versl- unarstjóri hjá kaupfélaginu und- anfarin tólf ár. Hún er menntað- ur dýralæknir og hefur auk þess lokið MBA prófi í viðskiptafræði. Hún hefur í krafti starfs sín get- að veitt bændum og öðrum við- skiptavinum kaupfélagsins ýmsa ráðgjöf varðandi fóðrun og dýra- heilbrigði og hefur nýtt þekkingu sína til að flytja inn vörur sem hún telur að henti íslenskum aðstæð- um. Þannig hefur kaupfélagið vax- ið mjög sem innflutningsaðili á liðnum árum, flytur til dæmis inn fjóra tugi fjörutíu feta gáma á ári af ýmsum vörum, allt frá fuglafóðri til stærri verkfæra og tækja. Blaða- maður Skessuhorns hitti verðandi kaupfélagsstjóra að máli í liðinni viku. Við settumst niður á kont- ór verslunarstjórans í hjarta kaup- félagsins við Egilsholt. Af og til varð rof á samtalinu, eins og geng- ur enda þurfti bóndi að fá tilboð í áburðarkaup fyrir vorið og ann- ar þurfti ráðgjöf og lyf til að lækna skitu í kálfi. „Starf mitt er ekki síst skemmtilegt og líflegt fyrir þær sakir að maður veit aldrei hvað dag- urinn mun bera í skauti sínu. Þetta er fjölbreytt starf og samskipti við marga,“ segir Margrét sem í sum- ar færir sig yfir í stól kaupfélags- stjóra þegar Guðsteinn Einarsson lætur af störfum eftir tveggja ára- tuga starf fyrir félagið. Alin upp í litlu sjávarplássi En fyrst að upprunanum. Hvað- an kemur Margrét Katrín Guðna- dóttir? „Ég er Hnífsdælingur. Ólst þar upp til sextán ára aldurs í faðmi fjallanna við utanverðan Skutulsfjörð. Þar líkt og í sjávar- plássum umhverfis landið sner- ist lífið jú um fisk og tólf ára var maður farinn að vinna við sitthvað, til dæmis að pakka grásleppu eða snúast í kringum fólkið í frystihús- inu. Afi minn og amma höfðu ver- ið í hópi síðustu ábúenda í Fljóta- vík á Hornströndum þar sem hann var sauðfjárbóndi, en þaðan fluttu allir á sama tíma árið 1946 og vík- in fór í eyði. Faðir minn er húsa- smiður og starfaði sem slíkur en var einnig til sjós en móðir mín er saumakona auk þess að vera snillingur í eldhúsinu. Þegar ég var sextán ára flytur fjölskyldan á Ísafjörð. Ég byrja nám í Mennta- skólanum á Ísafirði þar sem Björn Teitsson var þá skólameistari. En ég lýk ekki strax stúdentsprófi. Ég hafði ákveðið að gerast skiptinemi og réði mig því í ýmsa vinnu til að safna fyrir ferð til Ástralíu þar sem ég er eitt ár á vegum AFS skipti- nemasamtakanna. Ég starfaði með- al annars sem kokkur á dýpkunar- skipi í Bolungarvík, í frystihúsinu í Hnífsdal, vann í bíói og Sjallan- um á Ísafirði. Reyndi að púsla sem flestum störfum saman og leggja til fyrir rándýrri skiptinemaferð. Ferðin út kostaði sitt enda milli- lent á átta stöðum. Fyrst flaug ég frá Ísafirði til Reykjavíkur, þá um London, Brussel, Aþenu, Singa- pore, Melbourne, Sidney og loks til Brisbane þar sem ég bjó í eitt ár. Í Ástralíu var ég gríðarlega heppin með fósturforeldra og var dvölin ytra því skemmtileg og lærdóms- rík og ég hef alltaf búið að ensku- kunnáttunni eftir það, bæði í námi og starfi.“ Hefja búskap í Kaupmannahöfn Eftir dvölina í Ástralíu hélt Mar- grét heim og lauk námi í mennta- skólanum. „Þá sótti ég um inn- göngu í dýralæknanám í Kaup- mannahöfn en fékk synjun. Fór þá í eitt ár í líffræði í Háskóla Íslands og sótti svo um að nýju í dýralækn- inum og fékk þá inni.“ Eftir sjö ára dvöl í Kaupmannahöfn flytjast þau hjónin til Borgarness. „Í millitíð- inni hafði ég kynnst manninum mínum; Jóni Arnari Sigurþórssyni frá Bíldudal, og hann kemur með mér út til Kaupmannahafnar eftir fyrsta árið mitt þar. Í Danmörku fæðist elsta dóttir okkar Helena Jakobína árið 2000. Hér heima fæðast svo hin börnin tvö; Ólafur Vernharð árið 2004 og Katrín Jó- hanna 2007.“ Ellefu ár í verslunarstjórn Eftir veruna í Danmörku flytja þau Margrét Katrín og Jón Arnar heim og hefja sinn búskap í Borgar- nesi þar sem þau hafa verið síðan. Hann fer í Lögregluskólann, starf- ar um tíma hjá Loftorku en hefur verið í lögreglunni frá 2004. Mar- grét fer að praktísera við fag sitt í samstarfi dýralækna allt til loka árs 2007. „Þegar þangað var komið sögu vorum við bæði í vaktavinnu, börnin orðin þrjú og þetta mynst- ur gekk ekki lengur upp. Ég var að keyra þetta um fimm þúsund kíló- metra á mánuði, ein í bíl, og það hentaði mér ekki. Það varð því úr að ég réði mig sem verslunarstjóra í Kaupfélagi Borgfirðinga. Ætlaði upphaflega að vera í þessu starfi í tvö ár, gefa því þann tíma og safna í reynslubankann. Árin eru hins vegar orðin rúmlega ellefu og hér er ég enn. Samhliða starfi verslun- arstjóra hef ég haft leyfi minna yf- irmanna til að praktísera lítið eitt sem dýralæknir samhliða verslun- arstjórnuninni. Ég á minn fasta hóp viðskiptavina og sinni gælu- dýralækningum heima við. Það getur vissulega verið tilbreyting að komast út og sinna hefðbundn- um dýralækningum inn á milli og ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið þetta frjálsræði. Lík- lega er það ástæðan fyrir að ég er hér enn,“ segir Margrét. Hrun á fyrsta starfsári Fyrsta heila starfsár Margrétar í kaupfélaginu var vissulega ekkert sérlega skemmtilegt, hvorki fyr- ir hana né aðra landsmenn. „Árið 2008 varð hrun; bankarnir fóru allir á hausinn og efnahagskrepp- an reið yfir. Að vísu má með sanni segja að hrunið hafi snert fólk- ið hér á landsbyggðinni mild- ar en íbúa höfuðborgarsvæðisins. Hér hafði aldrei orðið þessi mikla þensla sem kennd er við 2007 og því varð áfallið ekki eins gríðar- lega mikið. Engu að síður drógust viðskipti gríðarlega saman og við þurftum að bregðast við því hér í versluninni þegar gengi krón- unnar féll, vöruverð hækkaði og erfitt reyndist að áætla sölu. Við reyndum að bregðast við og leit- uðum leiða til að vöruverð hækk- aði ekki upp úr öllu valdi og byrj- uðum að þreifa okkur áfram í inn- flutningi. Hann hefur síðan stig- magnast og er nú orðinn stór þátt- ur í mínu starfi. Fólk áttar sig oft ekki á umfangi þess innflutnings sem KB stendur fyrir, hann var ná- kvæmlega enginn fyrir tólf árum en er nú orðinn æði mikill.“ Mar- grét viðurkennir að við leit að vörum hafi málakunnáttan, dýra- læknanámið og tengsl hennar víða komið sér vel. „Kaupfélagið flyt- ur nú inn gríðarlega mikið af ýms- um rekstrarvörum fyrir bændur, hestamenn, dýralækna og aðra og er ýmist að selja hér í versluninni eða í heildsöludreifingu til ann- arra. Við seljum til dæmis mikið í gegnum önnur kaupfélög, Fóður- blönduna og fleiri samstarfsaðila í innflutningi. Þekking á dýralækn- ingum er þar ákveðinn lykill.“ Markaðurinn smár Til marks um þetta upplýsir Mar- grét Katrín að Kaupfélag Borg- firðinga flytur inn fjóra tugi fjöru- tíu feta gáma á ári. „Sem dæmi þá flytjum við inn mikið af und- irburði; sag og spænir, hesta- og kálfamúslí, kurlaðan maís í fugla, lamba- og kálfamjólkurduft, flokk- unarganga fyrir sauðfé, fjárgrind- ur og ýmsar vörur fyrir kerrur og bíla. Auk þess rekstrarvörur fyr- ir fjós og fjárhús. Oft er það svo að samstarfsaðilar okkar kaupa sig inn í pláss í gámum og þannig náum við að gera hagstæðari inn- kaup. Íslenski markaðurinn er jú svo smár að það getur verið erfitt að ná hagkvæmum innkaupum og meira að segja eru margir birgjar sem vilja alls ekki selja okkur vörur af þeim sökum. Finnst ekki taka því. Til marks um smæð markað- arins hér heima þá eru u.þ.b. 22 þúsund mjólkandi kýr í landinu, en ég veit um bú í Rússlandi þar sem kýrnar eru 21 þúsund í einu fjósi! Hins vegar eru aðrir birgj- ar sem nenna alveg að sinna okk- ur þó viðskiptin séu ekki stór fyrir þá. Ég læt einnig sérblanda ýmsar steinefna- og bætiefnablöndur fyr- ir okkur í Danmörku og nýti þann- ig bæði menntunina og tengsl sem ég hef þar ytra.“ Tekur við starfi kaupfélagsstjóra fyrst kvenna í 115 ára sögu KBB „Starfið leggst vel í mig og hentar félagslyndri manneskju“ Margrét hefur í rúm ellefu ár stýrt verslun og innflutningi hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Í sumar tekur hún við starfi kaup- félagsstjóra, fyrst kvenna í 115 ára sögu félagsins. „Fólk gerir sér almennt ekki grein fyrir hversu inniflutningur KB er mikill.“ Hér er Margrét Katrín í verslun KB við Egilsholt.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.