Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Siðferði hinna
fjögurra stoða
Engum vafi er í mínum huga að til að lýðræði virki þurfi fjögur atriði að
vera uppfyllt, án undanbragða. Nauðsynlegt er að dreifa valdi á milli hand-
hafa löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdavalds, en þessir þrír þætt-
ir vakta hvern annan. Fjórða atriðið sem skilyrðislaust þarf að vera upp-
fyllt er að fjölmiðlar nái að rækja hlutverk sitt án afskipta utanaðkomandi
afla eða annarlegra sérhagsmunahópa. Í lýðræðisríkjum er reglulega geng-
ið til kosninga og endurnýjað umboð löggjafarþings auk sveitarstjórna í
nærsamfélagi hvers og eins. Löggjafarsamkoman kemur sér síðan saman
um stjórnun í krafti meirihlutavalds og skipar þannig framkvæmdavald-
ið. Dómsvaldið þarf svo að vera sjálfstætt og óháð öllu, líkt og fjölmiðl-
arnir, þannig að um það sé alls ekki hægt að efast að dæmt sé samkvæmt
orðanna hljóðan gildandi laga og réttar, án hagsmunatengsla eða óeðli-
legra afskipta.
Þetta fjórskipta vald er vissulega vandmeðfarið því ef illa fer skapast
vandtrú, ólga og óánægja í samfélögum sem eiga að geta treyst hæfni þeirra
sem ráðast til trúnaðarstarfa. Ef vantraust ríkir þrífast þessi samfélög ein-
faldlega ekki. Á þessu hefur því miður orðið misbrestur og þarf ekki að leita
langt til að finna þess fersk dæmi. Í nýlegum þjóðarpúlsi var fólk beðið að
gefa einkunn um hversu vel það treystir stofnunum ríkisins. Þar var Land-
helgisgæslan að mælast sterk, en á botninum sat borgarstjórn Reykjavíkur. Í
ráðhúsinu við tjörnina hefur visslega ríkt ákveðin óöld. Skærur milli kjörins
sveitarstjórnarfólks og embættismanna. Afleit staða. Almenningur treystir
þessari mikilvægu stofnun því ekki, enda sjá það allir sem vilja, að slíkt
ástand er ekki boðlegt hvorki til skamms eða langs tíma. En mönnum þar
líkt og í öðrum stofnunum þykir vænt um stólana sína, annars væri hrein-
lega búið að boða til kosninga. Ekki er raunverulega axlað ábyrgð af mis-
gjörðum hvort sem það er vegna óforsvaranlegs yfirdráttar framkvæmda-
kostnaðar eða af öðrum sökum. Næst því að skrapa botninn í óvinsældum
er svo Alþingi, sjálf löggjafarsamkoman.
Í síðustu viku keyrði loks um þverbak þegar Mannréttindadómstóll Evr-
ópu komst að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherra og Alþingi sjálft
hefði fúskað með skipan dómara í Landsrétt og ekki valdið til dómgæslu
hæfustu umsækjendur. Þá varð að sjálfsögðu uppi fótur og fit. Eftir nokk-
urra daga japl, jaml og fuður sagði svo ábyrgur ráðherra af sér embætti.
Annað var ekki í boði, ella félli ríkisstjórnin. Það að minnsti vafi leiki á að
skipaðir séu hæfustu dómarar hverju sinni, er einfaldlega ekki í boði. Nýr
ráðherra var settur í embætti dómsmála og vonandi verður hratt og örugg-
lega leyst úr málum.
Hlutleysi, traust og virðing þarf að vera fyrir öllum þeim fjórum stoðum
sem lýðræðið byggir á. Þess vegna hef ég áhyggjur af ástandinu. Auk þess
sem takmarkað traust er nú borið til löggjafarvaldsins, framkvæmdavalds-
ins og nú dómsvaldsins, þá finnst mér að hluti fjórða valdsins, fjölmiðlarnir
sjálfir, hafa sýnt það í umfjöllun um Landsréttarmálið að þeir gátu ekki allir
fjallað um það með hlutlausum, eðlilegum og faglegum hætti. Menn kusu
að hjóla í sendiboðann, það er Mannréttindadómstól Evrópu, og vörpuðu
rýrð á hæfi hans. Jafnvel úrelt pólitík var látin ráða umfjöllun víðlesinna
fjölmiðla sem við ættum að geta treyst.
Hafi þjóðin upplifað siðferðisrof í aðdraganda bankahrunsins 2008 og
gjörða spilltra útrásarvíkinga, þá óttast ég að miklu alvarlegra siðferðis-
rof sé nú staðreynd. Að mínu viti hefur því kvarnast úr stoðum allra þeirra
fjögurra lykilþátta sem heilbrigt og gegnsætt lýðræði byggir á. Það er afleit
staða og ærið verkefni að færa til betri vegar.
Magnús Magnússon
Síðastliðinn föstudag kom ný
leiguþyrla Landhelgisgæslunnar
til landsins. Ber hún nafnið TF-
EIR. „Vélin færir Landhelgisgæsl-
una fyrr inn í nútímann en ráð-
gert var en hún er önnur tveggja
véla af gerðinni Airbus H225 sem
leysa leiguþyrlurnar TF-GNA og
TF-SYN af hólmi. Seinni leigu-
þyrlan kemur til landsins á næstu
vikum en hún ber einkennisstaf-
ina TF-GRO,“ segir í tilkynningu
frá Gæslunni. Sigurður Heiðar
Wiium, yfirflugstjóri Landhelg-
isgæslunnar, segir nýju leiguþyrl-
urnar vera örlítið þyngri, tækni-
legri, stærri, langdrægari, hrað-
fleygari og öflugri en þær þyrlur
sem Landhelgisgæslan hefur notað
undanfarin ár.
mm
TF-EIR er ný leiguþyrla
Landhelgisgæslunna
Nýja þyrlan kom til landsins á föstudaginn. Ljósm. Jón Páll Ásgeirsson.
Margir af fremstu briddsspilur-
um landsins voru á faraldsfæti um
næstsíðustu helgi. Meðal ann-
ars fór 24 manna hópur til þátt-
töku á Samverkstvímenningnum í
Færeyjum. Á ferðalagi milli staða
lenti hópurinn hins vegar í mið-
ur skemmtilegu atviki þegar eld-
ur gaus upp í rútu sem ferjaði þá
milli staða. „Við hefðbundna tób-
aksreykjarinnöndun bættist svo
hressilega við í háls og lungu öllu
verri reykur, þegar rútan sem ferj-
aði okkur í Gásadal á sunnudegin-
um brann undan afturendanum á
okkur. Upptök eldsins voru í vél-
arrýminu aftast og við sem sátum
aftarlega í rútunni höfðum andað
nokkru af þessum unaði að okkur,
áður en okkur fór að volgna veru-
lega á afturendanum og áttum fót-
um fjör að launa,“ skrifar Sigurður
Skagfjörð Ingimarsson um upplif-
un sinni af þessu óhappi. Hópurinn
slapp með skrekkinn og að öðru
leyti gekk ferðin vel og dásama ís-
lensku spilararnir gestrisni Færey-
inga. mm/ Ljósm. SSI.
Volgnaði heldur betur undir
íslenskum briddspilurum
Dagana 1. til 5. apríl næstkomandi
fer fram kosning um þrjú trúnar-
störf í stjórn Stéttarfélags Vest-
urlands, þ.e. formann, ritara og
fyrsta meðstjórnanda. Samkvæmt
20. grein laga félagsins er skylt að
viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
við kjör stjórnar þegar mótfram-
boð berst. Er þetta í fyrsta skipti
frá stofnun félagsins árið 2006 sem
mótframboð kemur fram gögn til-
lögu sem trúnaðarráð leggur fram.
Stjórnarmenn í Stéttarfélagi Vest-
urlands eru kosnir til tveggja ára í
senn. Annað árið er kosinn formað-
ur, ritari og einn meðstjórnanda en
hitt árið er kosinn varaformaður,
vararitari og einn meðstjórnandi.
Signý Jóhannesdóttir er núverandi
formaður Stéttarfélags Vesturlands
og býður sig fram til formennsku
sem fulltrúi trúnaðarráðs, sem kall-
ast A-listi samkvæmt lögum félags-
ins. Jafnframt býður Eiríkur Þór
Theódórsson sig fram í starf for-
manns og er hann fulltrúi B-lista.
Baldur Jónsson býður sig fram til
ritara fyrir A-lista, en gegn honum
Skúli Guðmundsson af B-lista. Jón-
ína Heiðarsdóttir er í framboði til
fyrsta meðstjórnanda af A-lista en
einnig María Hrund Guðmunds-
dóttir af B-lista.
Stéttarfélag Vesturlands var
stofnað 31. maí 2006 þegar þrjú
verkalýðsfélög sameinuðust. Þetta
voru Verkalýðsfélag Borgarness,
Verkalýðsfélagið Hörður í Hval-
firði og Verkalýðsfélagið Valur í
Búðardal. Innan félagsins starfa
fimm deildir: Iðnsveinadeild; deild
verslunar- og skrifstofufólks; mat-
væla-, flutninga- og þjónustudeild;
iðnaðar-, mannvirkja- og stóriðju-
deild og deild starfsfólks hjá ríki
og sveitarfélögum. Félagið er að-
ili að Starfsgreinasambandi Ís-
lands, Samiðn og Landssambandi
íslenskra verslunarmanna, auk Al-
þýðusambands Íslands. Félagssvæði
félagsins er frá botni Hvalfjarðar til
botns Gilsfjarðar í vestri fyrir utan
norðanvert Snæfellsnes.
Kosning í stjórn Stéttarfélags
Vesturlands fer fram á þremur
stöðum á félagssvæðinu í byrjun
apríl. Á skrifstofu félagsins í Borg-
arnesi dagana 1.-5. apríl, í Búðar-
dal dagana 1.-3. apríl og í Hval-
fjarðarsveit 1.-3. apríl. Niður-
stöðu kosningarinnar verður svo
lýst á aðalfundi félagsins og tekur
þá nýkjörin stjórn við. Nánar má
lesa um kjörfundi í auglýsingu hér
í blaðinu.
Greinilegt er að brestur er
kominn í samstöðu félagsmanna í
Stéttarfélagi Vesturlands ef tekið
er tillit til að þetta er fyrsta mót-
framboð sem berst tillögu trúnað-
arráðs frá því félagið var stofnað. Í
aðsendri grein í Skessuhorni í dag,
frá fulltrúum B-lista sem bjóða
fram gegn sitjandi stjórn, kem-
ur fram að þeir telja sig vera að
svara ákalli um breyttar áherslur
og breytt vinnubrögð formanns
og stjórnar félagsins. „Við viljum
bæta og nútímavæða vinnubrögð
og að félagið endurheimti traust
íslenskra sem og erlendra félags-
manna,“ skrifa þau Eiríkur Þór
Theodórsson, Skúli Guðmunds-
son og María Hrund Guðmunds-
dóttir fulltrúar B-lista.
mm
Í fyrsta skipti sem mótframboð berst
gegn tillögu trúnaðarráðs í StéttVest