Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 17
Hvött til náms
Síðastliðið sumar útskriftaðist
Margrét með MBA próf frá við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands.
Var það tveggja ára nám sem hún
tók samhliða fullu starfi. „Það sem
meðal annars ýtti mér út í frek-
ara nám var að vorið 2013 fékk
ég slæmt hunda- og kattaofnæmi.
Mér fannst ég þurfa að setja heils-
una í fyrsta sæti og gera upp við
mig hvort ég ætlaði í dýralækning-
ar að fullu aftur ásamt því að efla
mig faglega og halda öllum mögu-
leikum opnum varðandi framtíð-
ina. Valdi ég því að fara í nám í
viðskiptafræði og sé alls ekki eft-
ir því. Þetta er fjölbreytt nám sem
efldi mig bæði sem manneskju
og stjórnanda og nýtist mér dag-
lega í minni vinnu.“ Aðspurð neit-
ar Margrét Katrín því staðfastlega
að henni hafi beinlínis verið boðið
starf kaupfélagsstjóra áður en hún
hóf MBA námið. „Ég fékk hins
vegar mikla og góða hvatningu frá
samstarfsfólki mínu og ekki síst
Guðsteini Einarssyni kaupfélags-
stjóra sem hefur reynst mér ein-
staklega vel í alla staði. Okkar sam-
starf hefur alltaf verið gott. Hann
hefur stutt allar góðar hugmynd-
ir sem ég hef borið undir hann í
gegnum tíðina, en að sama skapi
hafnað því sem honum hefur ekki
hugnast eða finnst óskynsamlegt.
Stundum hef ég verið ósátt við að
ná ekki mínu fram, en oft reyndist
sú ráðgjöf hans rétt þegar upp var
staðið. Ég kann vel að meta þegar
fólk kemur hreint fram og þann-
ig hefur samstarfsfólkið sem ég hef
haft í gegnum tíðina verið alveg
einstakt.“
Ásókn í að
ganga í félagið
Margrét tekur undir að bændur og
félagsmenn eiga mikið í kaupfélag-
inu og finnst vænt um það. „Já,
kaupfélagið stendur fólki nærri og
flestir reyna að hlúa að því. Þetta
er lítil eining sem stendur bænd-
um nærri. Félagsmenn eru nú um
1700 talsins og félagssvæðið nær
frá Hvalfjarðarbotni og Akranesi,
norður um og allt til Kjálkafjarð-
ar á Barðaströnd. Það hefur verið
mikil ásókn í að gerast félagsmað-
ur í kaupfélaginu og ekki hægt að
segja að það sé íþyngjandi kostn-
aður eða kvaðir sem því fylgir. Við
aðildarumsókn þarftu að vera bú-
settur á svæðinu, greiðir eitt þús-
und krónur og færð fyrir það ævi-
langa félagsaðild. Það er í raun
engin spurning fyrir fólk að ger-
ast félagar. Ég get nefnt sem dæmi
að Nettó auglýsti nýverið tilboð til
félagsmanna sem þýddi 20 þúsund
króna afslátt af einu sjónvarpstæki.
Það er jú 20 sinnum ævigjald fyrir
félagsmann. Því hvet ég fólk til að
ganga í kaupfélagið og kynna sér
hvað í félagsaðild felst og lesa sög-
una okkar á vefsíðunni kb.is.“
Margt í pípunum
Margrét segir að ráðningu hennar
hafi borið fremur hratt að, en hún
tekur við starfi kaupfélagsstjóra
1. júní næstkomandi. „Ég er svo
heppin að Guðsteinn er ekki að
fara neitt og hann mun leysa mig
af í sumarfríi og verða mér til halds
og trausts til að byrja með. Engu
að síður eru mörg verkefni fram-
undan í starfi kaupfélagsstjórans.
Við erum til dæmis að opna nýj-
an þjónustustað á Digranesgötu 4
hér í Borgarnesi í vor og því munu
fylgja verkefni að ýta þeim stað
úr vör. Þar verður nokkurs konar
hraðafgreiðslu veitingastaður með
hollu ívafi. Við munum á næstunni
auglýsa starf verslunarstjóra á nýja
staðnum sem og eftir umsóknum
um starfið sem ég gegni nú.“
Margrét segir að rekstur Kaup-
félags Borgfirðinga hafi á undan-
förnum árum verið í mjög góðu
horfi. „Árin eftir hrun voru erf-
ið en margt gert til að koma fé-
laginu rekstrarlega á beinu braut-
ina. Samstarf okkar við Kaupfélag
Suðurnesja varðandi eignarhald á
hlut í Samkaupum hf. hefur hins
vegar reynst vel fyrir efnahag KB.
Þá á félagið hlut í Fóðurblöndunni
og mikið samstarf er við fyrirtæk-
ið. Þá á KB fasteignafélagið Borg-
arland að fullu en undir það heyra
m.a. eignir á Hvanneyri, Borgar-
nesi og Akranesi auk svo nýbygg-
ingarinnar við Digranesgötu 4.
En aukinn innflutningur okkar
hefur einnig átt sinn þátt í bættu
gengi kaupfélagsins,“ segir Mar-
grét. Hún viðurkennir að vissu-
lega verði eðlisbreyting á henn-
ar starfi hjá kaupfélaginu. „En
ég verð áfram hér í sama húsi og
til mín getur fólk leitað rétt eins
og það hefur gert undanfarin ár.
Dagleg afskipti af verslun verða
hins vegar að víkja að hluta fyrir
fjármálastjórn, rekstri fasteigna
kaupfélagsins og utanumhaldi um
félagana. Það er starf kaupfélags-
stjórans og því má segja að mitt
starf gjörbreytist í sumar. Þetta
leggst hins vegar afar vel í mig
og samrýmist þeim markmiðum
sem ég hef sett mér. Ég er í eðli
mínu félagslynd og finnst gam-
an að eiga í samskiptum við fólk.
Ég trúi því að starf kaupfélags-
stjóra sé ekki ólíkt starfi versl-
unarstjóra að því leyti að mað-
ur veit sjaldan nákvæmlega hvað
dagurinn ber í skauti sér. En þetta
starf eins og önnur byggir á því að
sýna aga, sjálfstæði og frumkvæði
í vinnu og gera það sem er skyn-
samlegt hverju sinni fyrir félags-
menn Kaupfélags Borgfirðinga.
Ég hlakka því til nýrra áskorana,“
segir Margrét Katrín Guðnadóttir
að endingu.
mm
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Jón Arnar og Margrét Katrín með börnin á milli sín. F.v. Ólafur Vernharð, Katrín
Jóhanna og Helena Jakobína.
Margrét Katrín lauk MBA námi í viðskiptafræði sl. sumar.