Skessuhorn


Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 13 Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar: Skipulags- og umhverfissvið Störf flokkstjóra við vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri• Störf við rekstur og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18 ára og eldri• Skóla- og frístundasvið Sumarafleysing, karl og kona, í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum• Sumarafleysing í Guðlaugu á Langasandi• Velferðar- og mannréttindasvið Sumarafleysing í vaktavinnu við að veita stuðning og aðstoð við fatlað fólk • í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar Sumarstörf hjá Akraneskaupstað Nánari upplýsingar um störfin ásamt umsóknareyðublöðum má finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is/lausstorf SK ES SU H O R N 2 01 9 Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar síðastliðinn fimmtudag kvað Guðveig Eyglóardóttir, odd- viti Framsóknarflokks, sér hljóðs. Lagði hún fram tillögu þar sem hún kallar eftir samstöðu sveitarstjórn- ar í því að mörkuð verði stefna um innkaup gæðahráefnis í mötu- neyti skólanna í sveitarfélaginu. „Í mötuneytum leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu verði lögð sérstök áhersla á verslun með íslensk mat- væli þar sem því verður við kom- ið hverju sinni, sérstaklega verslun með íslenskt grænmeti og kjötaf- urðir. Auk þess verði gerð krafa er varðar uppruna, innihaldslýsing- ar og framleiðsluhætti þeirra vara sem boðið er upp á. Með áherslu á matvæli sem framleidd eru sem næst neytandanum, er auðveldara að koma til móts við auknar kröf- ur um gæði, hollustu, hreinleika og umhverfisvernd. Undirrituð óska eftir því að efni bókunarinnar verði vísað inn í byggðarráð til frekari umræðu.“ Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að vísa tillögunni til fræðslunefndar og byggðarráðs. mm/ Ljósm. Matarauður Íslands. Íslenskan mat í skólana Að undanförnu hafa staðið yfir stífar æfingar hjá leiklistarklúbbi Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á söng- leiknum Rock of Ages. Frumsýnt verður næstkomandi föstudsag. Að sögn formanna leiklistarklúbbsins, þeirra Thelmu Rakelar Ottesen, Hrannar Eyjólfsdóttur og Freyju Maríu Sigurjónsdóttur, koma um 80 manns að sýningunni með ein- hverjum hætti, en á svið stíga um 25 efnilegir leikarar sem hafa að sögn formannanna staðið sig mjög vel í gegnum allt ferlið. „Rock of Ages er söngleikur byggður í kringum rokktónlist sem var vinsæl á 9. áratugnum. Söng- leikurinn fjallar um unga stúlku sem kemur til Los Angeles í þeirri von um að verða leikkona og þar kynnist hún Drew Boley sem á sér draum um að verða rokkstjarna. Skemmtistaðurinn The Bourbon Room á stóran hluta í þeirra lífi þar sem þau kynnast eigendunum Lonny og Dennis. Á meðan þetta á sér stað eru þýskir bræður í við- skiptahugleiðingum og ætla þeir sér að betrumbæta borgina og taka niður allt Sunset Strip, þar á með- al Bourbon Room. Í gegnum sög- una kynnumst við meðal annars byltingakenndu Reginu sem hef- ur uppi mótmæli gagnvart bræðr- unum, Justice Charlier sem hjálpar Sherrie að finna sína leið og rokk- stjörnunni Stacee Jaxx sem breytir fantasíu draumum stúlkna í veru- leika. Þetta er sönleikur stútfull- ur af húmor, ást og skemmtilegum uppákomum,“ útskýra þær Thelma, Hrönn og Freyja spurðar um hvað leikritið fjallar. Leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar, en hann leikstýrði einnig leikritinu Með allt á hreinu fyrir leiklistarklúbb NFFA á síðasta ári og sló sú sýning ræki- lega í gegn. Stefnt er á að vera með átta sýningar en eins og fyrr segir er frumsýning á föstudaginn næst- komandi, 22. mars. „Við höfum verið að æfa stíft síðustu vikurn- ar, enda er þetta mjög stór sýning og ganga æfingarnar ótrúlega vel. Krakkarnir hafa lagt sig alla fram og við erum mjög spennt að sýna gestum lokaútkomuna,“ segja þær stöllur. arg Söngleikurinn Rock of Ages færður á fjalirnar Formenn leiklistarklúbbs Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. F.v. Thelma Rakel Ottesen, Hrönn Eyjólfsdóttir og Freyja María Sigurjónsdóttir. Ljósm. Gunnar J. Viðarsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.