Skessuhorn - 17.07.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 20196
Lýsa stuðningi
við tillögu
Haraldar
MÝR: „Fulltrúaráð Sjálfstæð-
isfélaganna í Mýrasýslu lýsir
fullum stuðningi við þau sjón-
armið sem oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi, Haraldur Benedikts-
son, setur fram í grein fyr-
ir stuttu þar sem segir: „Sú
hugmynd er hér sett fram að
áskilja það í innleiðingu orku-
pakka 3 að setja lagaákvæði
um að slík tenging verði að-
eins með samþykki þjóðarinn-
ar í sérstakri atkvæðagreiðslu.
Sæstrengur og bygging grunn-
tengivirkja fyrir slíka teng-
ingu verði því aðeins að meiri-
hluti landsmanna samþykki
það í atkvæðagreiðslu.” Það er
mikilvægt að ná umræðu um
orkupakka 3 á þann stað sem
Haraldur lýsir vel í sinni góðu
og upplýsandi grein sem fyrst
birtist í Morgunblaðinu 8. júlí.
Sjálfstæðisfélögin í Mýrasýslu
lýsa ánægju með frumkvæði
Haraldar í þessu viðfangs-
efni sem og mörgum öðrum
stórum verkefnum,“ segir í til-
kynningu frá fulltrúaráði Sjálf-
stæðisfélaganna í Mýrasýslu.
-mm
Meðalævin lengist
LANDIÐ: Meðalævilengt
kvenna á íslandi var 84,1 ár á
síðasta ári en 81 ár hjá körlum.
Meðalævilengt sýnir hve mörg ár
einstaklingur á að meðaltali eft-
ir ólifuð við fæðingu, ef miðað
er við aldursbundna dánartíðni
mannfjölda. Aldursbundin dán-
artíðni hefur lækkað undanfar-
inn áratug og því má reikna með
að fólk lifi að jafnaði lengur en
reiknuð meðalævilengd segir til
um. „Frá árinu 1988 hafa karlar
bætt við sig rúmlega sex árum og
konur rúmlega fjórum í meðal-
ævilengt,“ segir í frétt á vef Hag-
stofunnar. Árið 2018 létust 2.254
íbúar búsettir hérlendis, 1.139
karlar og 1.115 konur. Dánar-
tíðni var 6,4 á hverja 1.000 íbúa.
Ungbarnadauði var 1,7 börn af
hverjum 1.000 lifandi fæddum
hérlendis árið 2018 og er tíðni
ungbarnadauða hvergi lægri í
Evrópu. -kgk
Öllum tilboðum
hafnað
AKRANES: Á síðasta fundi
skipulags- og umhverfisráðs
Akraneskaupstaðar voru opnuð
tilboð í búnað í fimleikahús sem
nú er í byggingu við Vesturgötu á
Akranesi. Fjögur tilboð bárust og
var þeim öllum hafnað. Verslunin
Altis átti þrjú tilboðanna og það
lægsta hljóðaði upp á rúmlega
111 milljónir króna. Fimleikar.
is áttu næstlægsta tilboðið, tæp-
ar 115 milljónir. Önnur tilboð
Altis hljóðuðu upp á rúmar 116
milljónir og tæpa 121 milljón.
Kostnaðaráætlun sem ráðgjafa-
og verktakafyrirtækið VSÓ gerði
fyrir Akraneskaupstað hljóð-
ar hins vegar upp á 70 milljónir
króna. Skipulags- og umhverfis-
ráð ákvað því að hafna öllum til-
boðunum á grundvelli kostnaðar-
áætlunar en horft verður til þess
að bjóða út búnað í fimleikahúsið
að nýju. -kgk
Róleg vika að baki
VESTURLAND: Síðasta vika
var fremur tíðindalítil hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi, að sögn
jóns S. Ólasonar yfirlögreglu-
þjóns. Nokkrar tilkynningar bár-
ust vegna grunsamlegra erlendra
verktaka sem fóru á milli bæja og
buðu malbikun á heimreiðum og
afleggjurum í vikunni sem leið,
eins og segir frá í annarri frétt í
Skessuhorni vikunnar. Að sögn
lögreglu er talið að mennirnir
séu nú farnir úr landi. Að öðrum
kosti var síðasta vika fremur tíð-
indalítil, sem fyrr segir. Að sögn
lögreglu var það kærkomin til-
breyting frá vikunni þar á undan,
sem var nokkuð erilsöm. -kgk
Stækka kirkju-
garðinn
BORG: Á fundi byggðar-
ráðs Borgarbyggðar síðastlinn
fimmtudag var samþykkt beiðni
sóknarnefndar Borgarkirkju á
Mýrum um framkvæmdaleyfi
fyrir stækkun kirkjugarðsins á
Borg. Byggðarráð samþykkti að
veita leyfið og auk þess að einn-
ar milljónar króna fjárheimild í
fjárhagsáætlun sveitarfélagsins,
vegna framkvæmda í kirkjugörð-
um, renni til verkefnisins. Akstur
jarðvegs í garðstæðið er hluti af
því framlagi.
-mm
Töluvert margir hvalir hafa ver-
ið á ferðinni á Flákanum svokall-
aða á Breiðafirði undanfarið, bæði
hnúfubakar en einnig steypireyð-
ar. Meðfylgjand myndir tók Alfons
Finnsson, fréttaritari Skessuhorns
og sjómaður, laust eftir kl. 14:00
á miðvikudag í liðinni viku. Hann
var þá við veiðar í fylgd hnúfubaka
á Flákakantinum, um 13 sjómílur
norður af Ólafsvík. „Þeir eru bún-
ir að vera í kringum bátinn hjá mér
síðan í morgun. Ég hef ekki náð
myndum af þeim fyrr en núna, þeir
stungu sér alltaf í kaf þegar ég dró
upp myndavélina,“ segir Alfons í
samtali við Skessuhorn.
Steypireyður með kálf
Utan hnúfubakanna hefur reglu-
lega sést til steypireyða á svæðinu
að undanförnu, þar af eins kálfs.
Gísli Ólafsson hjá hvalaskoðunar-
fyrirtækinu Láki Tours segir slíkt
afar sjaldgæft. „Það er ekki oft sem
steypireyðar sjást með kálfa sína, en
við sjáum þær reyndar ekki mikið
á þessu svæði yfirleitt,“ segir Gísli
í samtali við Skessuhorn. „Ég hef
ekki séð þessa hvali hérna í dag,
en fullt af hnúfubaki. Undanfarn-
ar tvær vikur höfum við hins veg-
ar reglulega séð alveg upp í fjórar
steypireyðar, þar af eina með kálf.
Þær eru sjaldgæf sjón hér um slóðir
en eru hérna að elta svifið sem þær
lifa á,“ segir Gísli.
kgk/ Ljósm. af.
Maður var í Héraðsdómi Vestur-
lands í lok júní dæmdur til þriggja
ára fangelsisvistar auk greiðslu
miskabóta fyrir kynferðisbrot gegn
barni, sem og brot gegn áfengis- og
barnaverndarlögum.
Maðurinn var ákærður fyrir
nauðgun, kynferðisbrot gegn barni,
brot gegn áfengis- og barnavernd-
arlögum með því að hafa afhent 13
ára gamalli stúlku áfengi og fíkni-
efni og haft við hana samræði og
síðan látið hana hafa við sig munn-
mök. Þannig hafi maðurinn beitt
hana ofbeldi og nýtt sér yfirburði
sína gagnvart stúlkunni vegna ald-
urs og þroskamunar, sem og traust
hennar og trúnað til hans sem fyrr-
um þjálfara hennar. Á sama tíma
tók hann af henni tvær kynferðis-
legar hreyfimyndir á síma sinn.
Brotin áttu sér stað síðasta sumar,
þegar maðurinn var 25 ára gamall
en stúlkan 13 ára.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
haft samfarir við stúlkuna. Hann
kvaðst hins vegar ekki hafa vitað
að stúlkan væri yngri en 15 ára og
hélt því auk þess fram að samræð-
ið hafi verið með samþykki beggja.
Dómurinn mat framburð stúlkunn-
ar í alla staði trúverðugan. Hann
væri auk þess studdur af framburði
móður hennar og föður, sem hafi
í tvígang beðið manninn að hætta
að umgangast stúlkuna í aðdrag-
anda brotanna, eins og ákærði við-
urkenndi. Ákærði kannaðist einn-
ig við að hafa þjálfað stúlkuna um
skeið í hópi þar sem hefðu verið
börn upp í 14 ára aldur. Dómn-
um þótti því hafið yfir allan skyn-
samlegan vafa að ákærða hafi verið
kunnugt um aldur stúlkunnar, eða
í það minnsta vitað full vel að hún
væri yngri en 15 ára gömul. Maður-
inn var því fundinn sekur um alvar-
legt kynferðisbrot gegn barni, sem
og að hafa tekið af því myndbönd.
Dómnum þótti hins vegar ekki
sannað að maðurinn hefði gefið
stúlkunni fíkniefni, þrátt fyrir að
framburður hennar þar að lútandi
hafi þótt trúverðugur í sjálfu sér.
Maðurinn viðurkenndi hins vegar
að hafa gefið henni áfengi og var
sakfelldur fyrir það.
Manninum var gert að sæta fang-
elsi í þrjú ár og greiða brotaþola 1,2
milljónir króna í miskabætur með
vöxtum. Honum var sömuleiðis gert
að greiða málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns, þóknun réttargæslu-
manns brotaþola og allan útlagðan
kostnað ákæruvaldsins. kgk
Þriggja ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn barni
Hvalur reisir sporðinn og býr sig undir að kafa.
Sést hefur til steypireyða á Flákanum