Skessuhorn - 17.07.2019, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 201910
Verktakafyrirtækið Work North ehf
.hefur nú lokið niðurrifi þeirra hluta
mannvirkja Sementsverksmiðjunn-
ar sem Akraneskaupstaður ákvað að
láta rífa við Faxabraut. Svæðið hefur
nú verið sléttað og sáð í það. Greina
má græna slikju þar sem fyrstu grös-
in eru nú að teygja sig upp úr mold.
Uppgröftur úr byggingarlóðum í
nýrri hverfum bæjarins var notað-
ur sem yfirlag á svæðinu. Heildar-
kostnaður við niðurrif á reitnum
verður um 290 milljónir króna, að
sögn Sævars Freys Þráinssonar bæj-
arstjóra, en innifalið í þeirri upp-
hæð er niðurrif strompsins, niðurrif
veggja við sandþró ásamt frágangi á
svæðinu en heildar kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 438 milljónir króna.
Heildarkostnaður við verkið er því
langt undir upphaflegri áætlun bæj-
aryfirvalda.
Framkvæmdir
hefjast á næsta ári
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Skessuhorns hefur Sements-
reiturinn nú verið deiliskipulagður.
Að sögn Sævars Freys er ekki gert
ráð fyrir að byggingaframkvæmd-
ir hefjist þar á þessu ári en mögu-
lega verði fyrstu lóðum úthlutað
fyrir árslok. Hann segir að fram-
kvæmdir við grjótvörn og endur-
bætur á Faxabraut hefjist hins veg-
ar á þessu ári. Ríkið lagði 200 millj-
ónir króna í það verkefni á síðustu
fjárlögum, en áætlað er að það kosti
um eða yfir hálfan milljarð króna að
hækka Faxabraut og bæta grjótvörn
þannig að væntanleg byggð verði
varin fyrir ágangi sjávar. Faxabraut
er eins og kunnugt er þjóðvegur í
þéttbýli. „Við erum með vænting-
ar um að ríkið muni greiða það sem
upp á vantar í sjóvörn og veglagn-
ingu á Faxabraut og munum fylgja
því mjög ákveðið eftir að svo verði,“
segir Sævar Freyr.
Seldar á kostnaðarverði
Ráðgert er að á Sementsreitn-
um rísi lágreist íbúðabyggð fyrir
um eða yfir þúsund íbúa, aðallega
tveggja til þriggja hæða fjölbýlis-
hús, með allt að 368 íbúðum. Svæð-
ið er eftirsótt, að sögn Sævars, því
fjöldi byggingaverktaka og fjárfesta
hefur lýst áhuga fyrir að byggja þar.
Sævar Freyr vitnar í orð þeirra og
segir að Sementsreiturinn sé lík-
lega eitt eftirsóttasta byggingaland
á landinu í dag, hallar á móti suðri
og með sjávarsýn. Akraneskaup-
staður ráðgerir ekki að bjóða út
lóðir á Sementsreitnum, þrátt fyr-
ir að gert sé ráð fyrir að þær verði
eftirsóttar. „Bærinn hefur þá stefnu
að selja lóðir á kostnaðarverði til að
spenna ekki upp fasteignaverð. Það
kostnaðarverð verður þó ívið hærra
en á öðrum byggingarlóðum hér
á Akranesi, enda þarf bæjarfélag-
ið að fá fyrir kostnaði við niður-
rif mannvirkja Sementsverksmiðj-
unnar. Með því móti er ætlunin að
tryggja að fasteignaverð á Akranesi
verði áfram töluvert lægra en það er
t.d. á höfuðborgarsvæðinu og eftir-
spurn verði áfram eftir íbúðarhús-
næði,“ segir Sævar.
Þjónustutenging við
gamla miðbæinn
Sementsreiturinn verður tengdur
gamla miðbæ Akraness frá Akratorgi
og í undirbúningi er gerð deiliskipu-
lags fyrir nýjan verslunar- og þjón-
ustukjarna þar sem m.a. verður gert
ráð fyrir hóteli. Geymslusíló fyrir
sement verða áfram í notkun sem
slík til ársins 2028 og mun vænt-
anlegt skipulag þessa svæðis þurfa
að taka mið af því. Til skoðunar er
hjá bæjaryfirvöldum að þar rísi auk
þess nýtt stjórnsýsluhús fyrir Akra-
neskaupstað og þannig muni bæjar-
yfirvöld flýta uppbyggingu svæðis-
ins. Loks tengist Sementsreiturinn
í beinni línu til suðausturs útivistar-
svæðinu við Langasand sem slegið
hefur í gegn í sumar. Mun þessi ná-
lægð við útivistarsvæðið gera reit-
inn eftirsóknarverðari til búsetu.
Þakkað fyrir sig
Síðastliðinn fimmtudag bauð Akra-
neskaupstaður fulltrúum verktaka-
fyrirtækisins Work North efh., auk
embættismönnum og bæjarstjórn,
til kaffisamsætið í bæjarþingsaln-
um. Þá hafði fyrirtækið skilað Sem-
entsreitnum af sér formlega. „Við
vildum þakka Work North fyrir
samstarfið og hversu vel þeir skil-
uðu svæðinu af sér. Það var í mín-
um huga aðdáunarvert hversu vel
var staðið við alla þætti verksins og
metnaður lagður í frágang svæðis-
ins,“ segir Sævar Freyr í samtali við
Skessuhorn. Var boðið upp á kaffi
og köku af þessu tilefni. Þá færði
Þorsteinn Auðunn Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Work North, bænum
tvær ljósmyndir að gjöf, sem tekn-
ar voru á sama stað við upphaf og
lok verksins. Við þetta tækifæri
var einnig frumsýnt nánast fullbú-
ið myndband sem tekið var upp á
niðurrifstíma mannvirkja Sements-
verksmiðjunnar. Myndbandið vann
nýtt sprotafyrirtæki á Akranesi sem
heitir Midnight studios.
mm
Embættismenn og bæjarfulltrúar á Akranesi auk fimm fulltrúa frá Work North og verkfræðistofunni Mannviti.
Rennislétt fyrrum athafnasvæði Sementsverksmiðjunnar
Work North ehf. hefur nú lokið niðurrifi og frágangi á svæðinu. Ljósm. mm.
Þrívíddarmynd af gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Til vinstri á uppfyllingu er hótelreitur, en ofan Faxabrautar er gert ráð fyrir tveggja til fjögurra hæða íbúðabygg-
ingum.
Þorsteinn Auðunn Pétursson færði Akraneskaupstað tvær ljósmyndir að gjöf. Hér
tekur Sævar Freyr bæjarstjóri við gjöfinni.