Skessuhorn - 17.07.2019, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 201912
Samkomulag hefur náðst milli
Sjúkratrygginga íslands og Rauða
krossins um framlengingu á samn-
ingi um kaup og rekstur sjúkrabif-
reiða. Þegar verður ráðist í kaup 25
nýrra sjúkrabíla samkvæmt útboði
sem nú stendur yfir. Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra stað-
festi samkomulagið við undirritun
þess á fimmtudag. Rauði krossinn
mun áfram annast rekstur sjúkra-
bíla, viðhald og innkaup gegn ár-
legu framlagi af hálfu ríkisins. Eldri
samningur rann út í lok ársins 2015.
Engir nýjir sjúkrabílar hafa verið
keyptir í flotann frá þeim tíma þar
sem ekki náðist saman um endur-
nýjun samninga á liðnum þremur
og hálfu ári.
Samkomulagið sem undirritað
var í á fimmtudaginn gildir til árs-
loka 2022. Þegar verður ráðist í að
kaupa 25 nýja sjúkrabíla samkvæmt
yfirstandandi útboði. Þess er vænst
að fyrstu nýju bílarnir verði tekn-
ir í notkun á næsta ári. Reiknað er
með því að stærstur hluti sjúkra-
bílaflota landsins verði endurnýj-
aður á samningstímanum, að því er
fram kemur á vef Sjúkratrygginga
íslands.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra segir ánægjulegt að sam-
komulagið hafi verið endurnýjað.
„Rauði krossinn hefur sinnt þessu
mikilvæga verkefni af fagmennsku
og alúð allt frá því að fyrsti sjúkra-
bíllinn kom til landsins. Það er
ánægjulegt að samstarf okkar við
félagið haldi áfram. Af hálfu ríkis-
ins hefur verið lögð áhersla á að
tryggja snurðulausan rekstur og
ábyrga meðferð fjármuna til lengri
tíma. Öllum ágreiningi hefur verið
ýtt til hliðar og hagsmunir almenn-
ings og heilbrigðiskerfisins settir í
forgang,“ segir Svandís.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins á ís-
landi og María Heimisdóttir, for-
stjóri Sjúkratrygginga íslands, lýstu
jafnframt yfir ánægju sinni með
endurnýjun samkomulagsins og
lýstu tilhlökkun fyrir komandi tíð
og þeim verkefnum sem framund-
an eru.
Betur má ef duga skal
Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkra-
flutninga á Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands, hefur ítrekað vakið athygli
á bágri stöðu sjúkrabílaflotans í
landinu undanfarin ár. Hann kveðst
ánægður að heyra að samkomulag
hafi náðst og 25 bílar séu væntan-
legir. Engu að síður segir hann að
gera verði enn betur til að ástand
sjúkrabílaflotans geti talist viðun-
andi. „Ég gleðst yfir því að kom-
in sé lending í þetta mál, sem búið
er að dragast algjörlega úr hömlu
svo ófremdarástand hefur skap-
ast í sjúkrabílamálum,“ segir Gísli í
samtali við Skessuhorn. „Það er til
bóta að fá 25 bíla strax en á lands-
vísu vantar okkur þegar í stað milli
40 og 50 bíla til að ástandið geti tal-
ist viðunandi. Við hér á HVE þurf-
um sex bíla strax til að komast yfir
versta hjallann hvað varðar fyrstu
forgangsbíla, það er að segja þá bíla
sem alltaf eru í fyrstu línu sem kall-
að er, best búnu bílarnir sem not-
aðir eru í forgangsverkefni,“ bætir
hann við. „Engu að síður er þetta
ánægjuleg lending að samið hafi
verið áfram við Rauða krossinn
og þessu óvissuástandi eytt,“ segir
Gísli Björnsson að endingu.
kgk
Á miðvikudaginn í síðustu viku var
varað við því á fréttavef Skessu-
horns að flokkur breskra verktaka
ók þá um sveitir í Borgarfirði og
Hvalfjarðarsveit og bauð malbik-
un á heimreiðum og afleggjurum.
Forsendur fyrir vinnu þeirra voru í
besta falli vafasamar.
Það var á mánudaginn í lið-
inni viku sem fulltrúi verktakanna
kom heim á bæ í Lækjarkoti, lög-
býli skammt norðan við Borgarnes.
Hjónin Trausti Eiríksson vélaverk-
fræðingur og Ása Ólafsdóttir reka
þar fyrirtæki sín. Trausti lýsti því í
samtali við blaðamann Skessuhorns
að erlendir menn hafi komið og
hitt konu sína að máli skömmu fyrir
hádegi þennan dag. „Hér var bank-
að upp og konan var ein heima. Á
hlaðinu stóð lágvaxinn, þrekinn og
brúneygður maður sem talaði ekki
sérlega góða ensku. Sagðist hann
vera með afgang af olíumöl sem
hann þyrfti að fá að losna við. Kon-
an mín skyldi það sem svo að hún
væri að gera manninum greiða að
leyfa honum að henda þessu niður
einhversstaðar og fannst ekki slæmt
að fá smá olíumöl á hlaðið framan
við sumarhúsin sem við leigjum
út. Hugsaði hún svo ekki meira út
í það,“ lýsir Trausti. „Svo leið dag-
urinn og seinnipartinn koma þess-
ir menn svo heim á hlað hjá okkur
til að rukka! Þá voru þeir búnir að
leggja eitt lag af olíumöl yfir allan
afleggjarann hingað til okkar, sem
er um 900 metra langur, og vildu fá
greitt. Þrjár milljónir króna. Ef það
yrði ekki greitt samdægurs hækkaði
reikningurinn í sex milljónir!“
Trausta fannst gamanið heldur
hafa kárnað enda sú gerð af við-
skiptum sem hann kannast ekki við.
Hann segir að þessi erlendi verktaki
hafi tilkynnt sér að gangverð á fer-
metra af yfirlagi væri 5000 krónur,
en hann fengi fermetrann á 3000
krónur, sagðist koma síðar með
til þeirra eða senda reikning, alls
ekki væri um svarta vinnu að ræða.
„Þegar verktakinn kemur síðdegis
til að rukka, tilkynnir hann mér að
þetta svokallaða „leftover“ efni sé
komið á allan afleggjarann. Ég gat
náttúrlega ekki annað en mótmælt,
enda hafði ég alls ekki beðið um
þessa þjónustu og afleggjarinn auk
þess á forræði Vegagerðarinnar. Þá
byrjar maðurinn að þrasa við mig
á sinni takmörkuðu ensku. Til liðs
við hann kemur svo starfsmaður á
hans vegum sem kvaðst vera Skoti.
Reyndi sá að miðla málum og út-
skýrir að þeir hafi komið með þetta
rándýra efni frá Reykjavík, nokkr-
ir á bíl. Á endanum hafi mennirn-
ir hins vegar ekið brott, hreint ekki
ánægðir, með öll sín tæki.
Trausti segir að nú sé heimreið-
in að Lækjarkoti lögð afar ósléttu
þunnu tjörulagi, enda hafi vegur-
inn ekki verið heflaður eða sléttað-
ur áður en slitlaginu var sleikt yfir
hann. Hann kveðst umsvifalaust
hafa haft samband við lögfræðing
sinn og kærði málið til Lögreglunn-
ar á Vesturlandi. „Þetta er náttúr-
lega alveg galin framkoma, hvern-
ig sem á það er litið. Afleggjarinn,
utan síðustu hundrað metranna, er
á forræði Vegagerðarinnar sem sér
um viðhald hans. Ég sé ástæðu til
að vara við þessum vinnuflokki.
Hér eru menn á ferð sem reyna
augljóslega á hæpnum forsendum
að plata viðskipti inn á fólk. Ekk-
ert annað en lögreglumál í mínum
huga,“ segir Trausti.
Skessuhorn hefur heimildir fyrir
því að þessi sami vinnuflokkur hafi
í liðinni viku verið á ferðinni á fleiri
bæjum í Borgarbyggð og Hvalfjarð-
arsveit og boðið fram þjónustu sína.
Vinnuflokkur þessi kom til landsins
í vor og hefur verið að störfum á
Suðurlandi og á Vesturlandi. Eftir
að fréttir voru sagðar af málinu í
liðinni viku virðist vinnuflokkurinn
hafa búið sig til brottfarar af land-
inu. í það minnsta sáust bílar þeirra
á hafnarbakkanum í Þorlákshöfn
á fimmtudaginn, en þaðan siglir
flutningaskip reglulega. Lögreglan
á Vesturlandi býst við að þeir séu
nú farnir úr landi. mm
Gísli Björnsson er yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE. Ljósm. úr safni/ kgk.
Samið um kaup og rekstur sjúkrabíla
Þegar í stað verða keyptir 25 nýir bílar til landsins
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kristín S. Hjálmsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, eftir undirritun samkomulagsins.
Ljósm. Stjórnarráðið.
Trausti Eiríksson í Lækjarkoti á heimkeyrslunni. Ljósm. glh.
Erlendir verktakar flökkuðu um
og buðu malbikun heimreiða
Horft heim afleggjarann að Lækjarkoti eftir að yfirlagið hafði verið lagt á ósléttan
veginn. Ljósm. glh.
Hér bruna þeir í burtu verktakarnir eftir að hafa fengið synjun á greiðslu hins
óumbeðna verks hjá Trausta í Lækjarkoti. Ljósm. te.