Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2019, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 17.07.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 201920 í síðustu viku tilkynntu bæði for- svarsmenn Akraneskaupstaðar og Vegagerðarinnar að lagðar verði fram kærur til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál vegna þeirrar ákvörðunar Skipulagsstofn- unar frá 11. júní síðastliðnum að fara með breikkun Vesturlandsveg- ar um Kjalarnes í umhverfismat. Það myndi þýða að minnsta kosti árs seinkun á að framkvæmdir við 2+1 vegalagningu um svæðið gætu hafist. Frestur til að kæra ákvörð- unina rann út síðastliðinn mánudag og nýttu bæði Akraneskaupstað- ur og Vegagerðin sér það auk átta annarra sveitarfélaga á Vesturlandi, en þau tilkynntu um ákvörðun sína á mánudaginn, sama dag og kæru- fresturinn átti að renna út. „Átta sveitarfélög á Vesturlandi fylgja í kjölfarið. Það eru sveitarfélögin Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp- ur, Snæfellsbær og Stykkishólms- bær sem hafa nú kært ákvörðunina með sömu forsendum og Akranes- kaupstaður,“ sagði í tilkynningu sem Samtök sveitarfélaga á Vestur- landi sendu fyrir hönd þeirra síð- degis á mánudaginn. Af sveitarfé- lögum á Vesturlandi er því einungis Grundarfjarðarbær sem kærir ekki ákvörðun Skipulagsstofnunar. Jákvæð samfélagsleg áhrif „Framkvæmdin hefur afar jákvæð samfélagsleg áhrif vegna bætts um- ferðaröryggis og er ætlað að taka á lífshættulegum aðstæðum sem veg- farendum er boðið upp á sem óskilj- anlegt er að ákvörðun Skipulags- stofnunar taki ekki mið af. Akra- nes og íbúar þess hafa lögvarinna hagsmuna að gæta þegar kemur að umferðaröryggi íbúa og að fram- kvæmdinni sé hraðað en Akranes- kaupstað er umhugað um að ekki verði fleiri slys á umræddri leið,“ segir í ályktun bæjarráðs Akraness. Ekki í samræmi við fyrri fordæmi Að mati Vegagerðarinnar er ákvörð- unin ekki í samræmi við fyrri for- dæmi og túlkun laga um mat á um- hverfisáhrifum hvað snertir mats- skyldu framkvæmda þegar ver- ið er að breikka veg úr tveggja ak- reina vegi í 2+1 veg. Nauðsynlegt sé því að fá frekari umfjöllun um ákvörðunina með tilliti til fordæm- isgildis gagnvart öðrum sambæri- legum framkvæmdum. „Ákvörðun- in eins og hún er fram sett getur að mati Vegagerðarinnar valdið vafa um hvernig meðhöndla eigi aðr- ar slíkar framkvæmdir með tilliti til mats á umhverfisáhrifum. Vega- gerðin mun samhliða flýta undir- búningi verkefnisins eins og kost- ur er þannig að framkvæmdir tefjist sem allra minnst,“ segir í tilkynn- ingu frá Vegagerðinni síðastliðinn föstudag. Ítarlega rökstutt Bæjarráð Akraness ákvað eftir að hafa leitað lögfræðiálits að ákvörð- un Skipulagsstofnunar sé háð veru- legum annmörkum, sé byggð á röngum forsendum og í ósamræmi við fyrri ákvarðanir Skipulagsstofn- unar og beri að ógilda. „Ekki er um að ræða nýjan veg heldur breikkun vegarins í 2+1 veg ásamt hliðarveg- um, hringtorgum og göngu-, hjóla- og reiðstígum. Land sem raskast við framkvæmdina hefur þegar orðið fyrir röskun vegna þess vegar sem nú liggur um svæðið. Ákvörðunin byggir á langsóttri lögskýringu og ekki er lagaheimild fyrir ákvörð- uninni.“ Þá segir í niðurstöðu bæj- arráðs að rökstuðning vanti fyrir ákvörðuninni þar sem vísun í til- skipun eða dómafordæmi skorti. „Þau víðtæku áhrif sem ákvörð- un Skipulagsstofnunar hefur og sú breyting á framkvæmd sem virðist fyrirhuguð hjá stofnuninni krefst þess að rökstuðningur sé skýr,“ en gert er ráð fyrir að ef framkvæmdin fari í umhverfismat tefji það um að minnsta kosti ár að hægt verði að hefjast handa. „Verulegt ósamræmi er við fyrri ákvarðanir Skipulagsstofnunar um matskyldu sambærilegra fram- kvæmda og ef breyta ætti stjórn- sýsluframkvæmd þá þurfi að rök- styðja það sem ekki er gert. Ósam- ræmi er við ákvarðanir Skipulags- stofnunar er varða t.d. endurbætur á Þingvallavegi, breytingar á Kjal- vegi og breikkun Grindavíkurveg- ar. Óskiljanlegt er hvers vegna önn- ur sjónarmið eru látin ráða för við ákvörðun um matskyldu breikkun- ar Vesturlandsvegar. Framkvæmdin hefur ekki í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og enginn umsagn- araðila Skipulagsstofnunar taldi að tilefni væri til að ráðast í mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmd- in liggur ekki um náttúruverndar- svæði, fer ekki um svæði sem njóta sérstakrar verndar, ekki er brotið nýtt land vegna framkvæmdarinn- ar og framkvæmdin hefur ekki áhrif á opin víðerni. Skipulagsstofn- un sinnti ekki rannsóknarskyldu sinni og sá ekki til þess að umfang framkvæmdar væri upplýst áður en ákvörðun var tekin,“ segir í rök- stuðningi með ákvörðun Akranes- kaupstaðar um að kæra niðurstöðu Skipulagsstofnunar. mm Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skipuðu verkefnishóp í september 2018 til að fjalla um uppbyggingu sam- gangna á höfuðborgarsvæðinu til 2033, stofnvegi og kerfi almenn- ingssamgangna. Hópurinn skilaði niðurstöðum sínum og tillögum í skýrslu í nóvember 2018. Hópn- um var einnig falið að fjalla sér- staklega um málefni Sundabrautar. Gerð var grein fyrir þeirri vinnu í skýrslu sem gefin var út í júní síð- astliðnum. Fyrirhuguðum fram- kvæmdum við Sundabraut hef- ur jafnan verið skipt í tvo áfanga. Fyrri áfangi liggur frá Sæbraut, yfir Kleppsvík og upp í Gufunes, með tengingum við Hallsveg og Borgarveg. í skýrslunni um gerð Sundabrautar er einnig fjallað um vegtenginguna frá Gufunesi og á Kjalarnes sem flokkast sem síð- ari áfangi verksins Sundabraut. Sú leið mun liggja frá Gufunesi um Geldinganes, yfir Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og Kollafjörð og að tengingu við Vesturlands- veg. Starfshópurinn sem skilaði skýrslu í júní síðastliðnum taldi ekki tímabært að leggja fram hug- myndir um aðrar lausnir eða velja milli þeirra sem tillögur eru um í skipulagi og í þeim skýrslum sem unnar hafa verið um þennan áfanga. í skýrslunni um þennan síðari áfanga er vísað til frummatsskýrslu frá Verkfræðistofunni Eflu sem bar fyrir áratug saman leiðir við þveranir Eiðsvíkur og Leiruvogs á fyllingum, brúm eða jarðgöngum. Einnig voru þá skoðaðar tvær leið- ir yfir Kollafjörð á fyllingum sam- kvæmt meðfylgjandi teikningu Eflu. í frummatsskýrslunni, sem verkfræðistofan Efla skilaði í júlí 2009, eru lagðir til fjórir valkostir til mats á umhverfisáhrifum. Val- kostur 1 frá Gufunesi að Gunn- unesi er vegur á yfirborði alla leið og liggur innarlega á nesinu. Val- kostur 2 liggur utar og er allur á landi utan stuttra jarðganga gegn- um Geldinganes. Valkostir 1 og 2 geta tengst Eyjalausn eða jarð- göngum á fyrri áfanga brautarinn- ar. Valkostur 3 er jarðgöng und- ir Eiðsvík og vegur á landi norð- an Geldinganess og getur aðeins tengst jarðgöngum á fyrri áfanga. Sömu sögu er að segja um valkost 4 sem er göng undir Eiðsvík og Leiruvog. Frá Álfsnesi eru skoðað- ir tveir kostir fyrir þverun Kolla- fjarðar, ytri og innri leið. Allir kostirnir frá Gufunesi í Gunnunes geta tengst valkostunum tveimur í Kollafjarðarþverun, þ.e. innri og ytri leið. Legu Sundabrautar og mismunandi valkosti. mm Hugmyndir að legu síðari áfanga Sundabrautar. Vegalengd milli Kjalarness og miðborgarinnar myndi styttast um 7-9 km, háð endanlegri legu brautarinnar. (Heimild, Efla 2009). Rykið dustað af hugmyndum um Sundabraut Níu sveitarfélög á Vesturlandi og Vegagerðin kærðu ákvörðun Skipulagsstofnunar Umferð um Kjalarnes síðastliðinn vetur. Ljósm. mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.