Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2019, Síða 27

Skessuhorn - 17.07.2019, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 2019 27 Ólafsvíkingar áttu ekki góðan dag þegar þeir töpuðu úti gegn Njarð- víkingum í elleftu umferð 1. deild- ar karla í knattsyrnu á fimmtudag, 3-0. Fyrir leikinn höfðu heima- menn tapað sjö leikjum í röð en gengi Víkings Ó. hefur verið upp og ofan undanfarnar vikur. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru sterkari í fyrri hálf- leik. Ólafsvíkingar fengu dauða- færi eftir hálfrar klukkustundar leik en Brynjar Atli Bragason varði frá Sallieu Tarawallie sem kominn var einn í gegnum vörnina. Njarð- víkingar fengu líka sín tækifæri. Skömmu síðar komst Stefán Birg- ir einn í gegnum vörn Ólafsvík- inga en þrumaði boltanum hátt yfir markið. Á 40. mínútu komust Njarðvík- ingar síðan yfir. Mikill atgangur skapaðist í teig Ólafsvíkinga eftir hornspyrnu en endaði með því að Ivan Prskalo potaði boltanum yfir línuna. Kenneth Hogg bætti síðan öðru marki við fyrir heimamenn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hilm- ar Andrew McShane átti þá send- ingu inn fyrir vörnina á Kenneth sem gerði vel og þrumaði boltan- um upp í þaknetið úr þröngu færi. Staðan 2-0 í hálfleik. Ólafsvíkingar byrjuðu síðari hálf- leikinn af krafti og voru nálægt því að skora með þrumuskoti úr aukaspyrnu á 48. mínútu. Aðeins mínútu síð- ar fékk Emmanuel Keke síðan rautt spjald fyrir að brjóta á Ivan Prskalo sem aftasti varnarmaður. Liðsmenn Víkins orðnir einum færri inni á vell- inum og útlitið ekki björgulegt fyrir Ólafsvíkinga. Það var síðan á 58. mínútu sem Njarðvíkingar skoruðu þriðja mark leiksins. Kenneth fékk laglega send- ingu inn fyrir vörnina, lék á Franko Lalic í markinu og lagði boltann í netið. Leikurinn róaðist töluvert eft- ir þriðja mark heimamanna og fjar- aði hægt og rólega út. Lokatölur 3-0, Njarðvíkingum í vil. Víkingur Ó. hefur 17 stig í fimmta sæti deildarinnar, stigi meira en Kefla- vík í sætinu fyrir neðan en þremur stigum minna en Fram og Þór í sæt- unum fyrir ofan. Ólafsvíkingar léku gegn Haukum í Ólafsvík í gær, þriðju- daginn 16. júlí. Sá leikur var hins veg- ar ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prentun. kgk/ Ljósm. úr safni/ af. Skagakonur máttu sætta sig við 0-1 tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust í áttundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leik- ið var á Akranesi á mánudagskvöld. Gestirnir úr Kópavogi voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu eina mark leiksins á 19. mínútu. Berg- þóra Sól Ásmundsdóttir tók sprett upp vinstri kantinn, sendi á fjær- stöng þar sem Þórdís Katla Sig- urðardóttir renndi sér á boltann og skilaði honum í netið. Skagakonur voru meira með boltann eftir markið en náðu ekki að skapa sér mörg færi gegn Augnabliksliðinu sem féll til baka og beitti skyndisóknum. Besta færi íA í fyrri hálfleik fékk Róberta Lilja ísólfsdóttir þegar hún átti þrumu- skot utan vítateigs sem small í inn- anverðri stönginni og staðan 0-1 í hléinu. Skagakonur byrjuðu síðari hálf- leikinn af miklum krafti án þess þó að skapa sér nein dauðafæri. Vero- nica Líf Þórðardóttir átti skalla rétt framhjá markinu eftir hornspyrnu eftir tæplega klukkustundar leik. Augnabliksliðið féll langt til baka og sókn íA þyngdist síðasta hálf- tímann eða svo en inn vildi boltinn ekki. Andrea Magnúsdóttir fékk gott færi á 85. mínútu eftir góða sendingu frá Anítu Sól Ágústsdótt- ur en náði ekki nógu góðu skoti að marki. íA átti síðan góðan skalla rétt framhjá markinu í uppbótartíma. Fleiri urðu færin ekki og Augnablik fór með sigur af hólmi, 0-1. íA situr í sjötta sæti deildarinn- ar með ellefu stig, jafn mörg og Grindvíkingar í sætinu fyrir neð- an en stigi á eftir Augnabliki í sæt- inu fyrir ofan. Næsti leikur Skaga- kvenna er heimaleikur gegn Tinda- stóli föstudaginn 19. júlí næstkom- andi. kgk íA og Grindavík gerðu 1-1 jafnt- efli þegar liðin mættust suður með sjó í tólftu umferð Pepsi Max deild- ar karla í knattspyrnu á mánudags- kvöld. Bæði lið fengu sín færi í upphafi leiks. Skagamenn komust í dauða- færi þegar þeir hirtu boltann af Grindvíkingum í öftustu línu en tókst ekki að nýta það. Heimamenn fengu síðan dauðafæri eftir slæma sendingu til baka og skömmu síð- ar áttu þeir þrumuskalla í þverslána eftir hornspyrnu. Það var síðan Hörður Ingi Gunn- arsson sem kom íA yfir á 26. mínútu leiksins. jón Gísli Eyland Gíslason átti sendingu fyrir markið. Boltinn barst út í teiginn vinstra megin á Hörð sem skoraði með viðstöðu- lausu skoti í bláhornið. En Skagamenn voru ekki lengi yfir, því strax í næstu sókn náðu Grindvíkingar að jafna. Alexander Veigar Þórarinsson komst upp að endamörkum vinstra megin, sendi boltann út í teiginn á Oscar Conde sem kláraði af stuttu færi. Tryggvi Hrafn Haraldsson átti hörkuskot að marki Grindvíkinga skömmu fyrir hálfleikinn en Vlad- an Djogatovic varði frá honum alveg út við stöng. í næstu sókn áttu Grindvíkingar hörkuskot sem smaug rétt framhjá markinu. Stað- an 1-1 í hléinu. Tryggvi fékk dauðafæri til að koma íA yfir á 55. mínútu leiks- ins en Vladan varði vel frá hon- um. Eftir klukkustundar leik kom- ust Grindvíkingar einir í gegn en Sigurður Bjartur Hallsson þrum- aði boltanum hárfínt yfir markið. Tíu mínútum síðar var hann aftur á ferðinni þegar hann átti skalla af markteig en Árni Snær Ólafsson varði glæsilega frá honum. Skagamenn voru heldur sterk- ari það sem eftir lifði leiks en tókst ekki að skapa sér nein opin mark- tækifæri. Grindvíkingar fengu besta færið á lokamínútunum en skot Ar- ons jóhannssonar eftir skyndisókn fór af varnarmanni og aftur fyrir endalínu. Lokatölur leiksins urðu því 1-1 jafntefli. Skagamenn sitja í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig, stigi á eft- ir Breiðabliki í sætinu fyrir ofan en tveimur stigum á undan Stjörnunni og FH í sætunum fyrir neðan. Næst leika Skagamenn gegn KA, sunnu- daginn 21. júlí. Sá leikur fer fram á Akureyri. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh. Snæfell vann 5-1 stórsigur á KB þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Stykkishólmi og var leikurinn fjörugur svo ekki sé meira sagt. Snæfellingar komu boltanum þrisvar sinnum í netið í fyrri hálf- leik, en öll voru mörkin dæmd af. Gestirnir úr KB skoruðu á 22. mín- útu með glæsilegu skoti utan teigs og leiddu með einu marki gegn engu í hléinu. En Snæfellingar áttu eftir að snúa taflinu sér í vil. Marius-Nicolae Homan jafnaði metin á 56. mín- útu og þá var eins og opnað hefði verið fyrir flóðgáttir. Carles Mart- inez Liberato kom Snæfelli yfir á 61. mínútu, Mateusz Roman Kubas bætti þriðja marki Snæfells við á 66. mínútu og Elvedin Nebic skor- aði fjórða mark heimamanna aðeins tveimur mínútum síðar. Snæfell- ingar búnir að skora fjögur mörk á aðeins 12 mínútum og komnir í 4-1 eftir ótrúlegan leikkafla. Það var síðan Marius Ganusauskas sem innsiglaði 5-1 sigur Snæfells með marki á 86. mínútu. Með sigrinum lyfti Snæfell sér í toppsæti B riðils með 25 stig og þriggja stiga forskot á Hvíta ridd- arann. Næst leika Snæfellingar á föstudaginn, 12. júlí, þegar þeir heimsækja úlfana. kgk Eftir naumt tap gegn Reyni S. í Borgarnesi á miðvikudag, 2-3, heimsótti Skallagrímur lið Álftnes- inga í 3. deild karla í knattspyrnu á sunnudaginn. Skemmst er frá því að segja að Borgnesingar fóru fýlu- ferð suður á Álftanes því þeir töp- uðu 4-0 á Bessastaðavelli. Álftnesingar fengu sannkallaða óskabyrjun því Brandon Nathan- iel Wellington kom þeim yfir strax á 1. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn því yfir í hléinu. Arnar Már Björgvinsson kom Álftnesingum í 2-0 á 67. mínútu leiksins og Pétur Máni Þorkels- son bætti þriðja markinu við á 82. mínútu. Það var síðan Kjartan Atli Kjartansson sem innsiglaði 4-0 sig- ur Álftnesinga með marki tveimur mínútum fyrir leikslok. Skallagrímur situr í botnsæti deildarinnar með sex stig, stigi minna en KH og Augnablik í sæt- unum fyrir ofan. Næsti leikur Borg- nesinga er útileikur gegn Einherja laugardaginn 20. júlí næstkomandi. kgk Fundu sig ekki suður með sjó Erla Karitas Jóhannesdóttir og félagar hennar í ÍA máttu sætta sig við tap gegn Augnabliki. Ljósm. gbh. Inn vildi boltinn ekki Snæfellingar fagna marki. Ljósm. sá. Stórsigur Snæfells Viktor Ingi Jakbosson, leikmaður Skallagríms, í leiknum gegn Reyni S. á miðviku- daginn fyrir viku. Ljósm. glh. Tvö töp í vikunni Jafnt suður með sjó

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.