Skessuhorn - 25.09.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 2019 13
VARMADÆLUR
ÓDÝRARI LEIÐ TIL HÚSHITUNAR
Hagkvæmar í rekstri | Endingargóðar
Umhverfisvænar | Hljóðlátar
GASTEC | VAGNHÖFÐA 9 | REYKJAVÍK OPIÐ 8:00 - 18:00 ALLA VIRKA DAGA
Hafðu samband, við erum
sérfræðingar í varmadælum.
WWW.GASTEC.IS | SÍMI 587-7000
VARMADÆLUR HENTA SÉR-
STAK LEGA VEL Á „KÖLDUM“
SVÆÐUM LANDSINS, ÞAR
SEM EKKI ER HITAVEITA!
FUJITSU varmadælurnar eru þekktar
fyrir gæði og þeim fylgir 5 ára ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Ráðgjöf til skóla vegna skólagöngu barna
og ungmenna
Athuganir og greiningar
Ráðgjöf, leiðbeiningar og fræðsla til
foreldra
Þverfaglegt samstarf um málefni barna í
leik- og grunnskólum
Menntunar og hæfniskröfur:
Sálfræðimenntun og löggilding vegna
starfsheitis
Reynsla af starfi með börnum
Góðir skipulagshæfileikar
Hæfni í mannlegum samskiptum
Í Borgarbyggð búa rúmlega 3.800
íbúar, þar af um 750 börn í fimm
leikskólum og tveimur grunnskólum.
Sálfræðingur við leik- og grunnskóla
Borgarbyggðar
Skólaþjónusta Borgarbyggðar auglýsir lausa til umsóknar
stöðu sálfræðings. Við leitum að metnaðarfullum
einstaklingi með brennandi áhuga á starfsemi skóla.
Í sveitarfélaginu er meðal annars unnið að styrkingu
heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð
er áhersla á snemmtæka íhlutun, samstarf fagsviða og
stofnana, svo sem um þróun úrræða fyrir börn og foreldra.
Upplýsingar og móttaka umsókna er hjá Önnu Magneu
Hreinsdóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs í síma 840-1522 og
á netfanginu annamagnea@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til 7. október 2019.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
BORGARBYGGÐ
[Cite your source here.]
Kortavelta erlendra ferðamanna, án
flugsamgangna, í ágúst síðastliðn-
um nam 30,6 milljörðum króna og
lækkaði um 2,4% á milli ára. Í sam-
antekt Rannsóknaseturs verslunar-
innar kemur fram að velta í flokkn-
um „ýmis ferðaþjónusta,“ sem inni-
heldur afþreyingarfyrirtæki, ferða-
skipuleggjendur og ferðaskrifstofur
dróst í ágúst saman um 13,1% frá
sama mánuði í fyrra eða um ríf-
lega 600 milljónir króna. Í stærsta
einstaka flokknum, hótelgistingu,
jókst kortaveltan um 1,8% á milli
ára í mánuðinum og kemur það í
kjölfar 1,2% veltuaukningar í júlí
frá sama mánuði 2018. Veltuaukn-
ing í flokknum þrátt fyrir fækkun
ferðamanna skýrist líklega af sam-
spili lengri dvalartíma og gengis-
lækkunar krónunnar, en gisting er
gjarnan seld í erlendri mynt. Heild-
arvelta í hótelgistingu í ágúst nam
rúmum 8,3 milljörðum króna.
Kortavelta í verslun jókst um
3,1% á milli ára í ágúst. Mest varð
aukningin í gjafa- og minjagripa-
verslun, 15,9% en aðrir flokkar
breyttust minna á milli ára. Korta-
velta í dagvöruverslun dróst lítil-
lega saman, eða um 0,6% frá fyrra
ári. Erlend kortavelta í verslun nam
4,9 milljörðum króna í ágúst.
Erlend kortavelta bílaleiga dróst
saman um 7,7% frá ágúst í fyrra og
nam 2,9 milljörðum í mánuðinum.
Þá dróst kortavelta veitingaþjón-
ustu saman um 2,5% á milli ára.
25,8% vöxtur varð í erlendri korta-
veltu til menningar- afþreyingar
og tómstundastarfsemi en sveiflur
í flokknum eru algengar þar sem
einstaka tónleikar eða viðburðir
geta haft töluverð áhrif. mm
Þrátt fyrir að samdráttur mælist í kortaviðskiptum erlendra ferðamanna varð
gríðarleg aukning í fjölda ferðafólks á suma staði um vestanvert landið, til dæmis
í Guðlaugina við Langasand.
Samdráttur í afþreying-
arferðum í ágúst