Skessuhorn - 25.09.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201916
Þegar uppistöðulón Urðarfells-
virkjunar í landi Húsafells var gert
fyrir nokkrum árum þurfti að leggja
veg að lóninu uppi á hálsinum.
Fyrsti hluti leiðarinnar var endur-
bygging gamla Húsafellsvegarins
sem liggur í ótal hlykkjum yfir háls-
inn og niður að Augastöðum. En af
gamla slóðanum var vegað lengra
upp á fjallið. Um leið varð akfært
að fallegu gili í Húsafellslandi sem
heitir Hringsgil. Bergþór Krist-
leifsson á Húsafelli taldi sig vita að
þar mætti finna heitt vatn og fékk
hann Friðfinn Daníelsson hjá bor-
fyrirtækinu Alvarr ehf til að leita að
vatni. teknar voru átta tilraunahol-
ur en sú níunda skilaði talsverðu af
57 gráðu heitu vatni. „Ég átti þann
draum að nýta þetta vatn og byggja
þar náttúruböð. Þegar hægt var að
koma tækjum í gilið var byrjað að
bora og bar sú borun árangur. Þar
með opnuðust möguleikar til að
gera eitthvað skemmtilegt í ægi-
fögru útsýni í og við gilið. Við höf-
um síðasta árið verið að hlaða laug-
ar og undirbúa verkefnið. Á þessu
ári hefur verið byggður stigi, laug-
arhús með sturtum og búningsher-
bergjum og stígar lagðir. tilskilin
leyfi eru nú í höfn og munum við
á næstu vikum byrja að selja gestum
á Húsafelli náttúruskorðunarferð-
ir sem innihalda laugarferð í Gilja-
böðin í Hringsgili,“ segir Bergþór í
samtali við Skessuhorn.
Þrjár laugar
Unnsteinn Elíasson hleðslumeist-
ari frá Ferjubakka var fenginn til
að hlaða veggi lauganna í Hrings-
gili og óneitanlega hefur hann haft
í huga handverk Snorra Sturlu-
sonar því lauginni svipar mjög til
Snorralaugar í Reykholti. Unn-
steini til aðstoðar voru meðal ann-
arra Arnar Bergþórsson en hann
raðaði til grjóti úr gilinu með gröfu
til að mynda neðri pottana og mót-
aði botn gilsins til að mynda pláss
fyrir böðin. Laugarnar í Hringsgili
eru alls þrjár, tvær þær efri með um
40 gráðu heitu vatni en sú neðsta
er kaldari. Auk þess geta þeir hug-
rökkustu farið í kalt gilvatnið. „Eig-
inlega fékk ég þessa hugmynd að
atvinnusköpun í ljósi þess að alltaf
er þörf fyrir aukna afþreyingu fyr-
ir gesti. Hingað koma á hverjum
degi margar stórar rútur með fólk.
Flestir fara í ferðir ýmist í ísgöngin
í Langjökli eða hraunhellinn Víð-
gelmi. En það eru ekki allir sem
vilja fara í þessar lengri skoðun-
arferðir og því taldi ég upplagt að
geta boðið fólki tveggja tíma laug-
arferð í stórbrotnu landslagi,“ segir
Bergþór í samtali við Skessuhorn.
Hann segir að aðgangsstýrt verði í
Giljaböðin og einungis boðið upp
á ferðir þangað með leiðsögn. „Ég
reikna með að við förum á tuttugu
manna bíl og á tveggja tíma fresti
í ferðir sem hafa upphaf og endi á
hótelinu hér á Húsafelli. Fólk er
þannig að kaupa upplifun í einum
pakka; ferð með leiðsögn, náttúru-
skoðun og baðferð, auk þess sem
hægt verður að enda ferðina í sund-
lauginni. Þetta fær svo bara að þró-
ast eftir því sem reynslan kennir
okkur,“ segir Bergþór.
Hlotið góða dóma
Gestir á Húsafelli hafa í sumar, án
þess að það hafi verið kynnt opin-
berlega, fengið að prófa Giljaböð-
in. Þannig hafa ábúendur fengið
umsögn þeirra og hún hjálpað til
við að þróa verkefnið. Blaðamaður
fékk nýverið að fljóta með í skoð-
unarferð í Hringsgil þar sem smið-
ir og iðnaðarmenn voru að leggja
lokahönd á framkvæmdir við laug-
arhús, stiga og stígagerð. Óhætt
er að fullyrða að gilið, þessi stór-
brotna umgjörð lauganna, muni
vekja lukku. Giljaböðin verða því
kærkomin viðbót í ferðaflóruna í
Borgarfirði, en stöðug þörf er fyrir
aukna afþreyingu og upplifun fyrir
vaxandi fjölda gesta sem sækir hér-
aðið heim.
Tveggja tíma náttúr-
skoðunar- og baðferð
Unnar Bergþórsson, sonur Berg-
þórs og Hrefnu á Húsafelli, hef-
ur verið verkefnisstjóri með fram-
Giljaböðin á Húsafelli opnuð á næstu dögum
Nýjar laugar í Hringsgili verða ævintýraleg viðbót í ferðaflóru Borgarfjarðar
Horft yfir mannvirkin í Hringsgili.
Hér er útsýni yfir gilið af stiganum sem smíðaður hefur verið til að auðvelda fólki að komast að Giljaböðunum.
Horft inn í annan búningsklefann.