Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 48. tbl. 22. árg. 27. nóvember 2019 - kr. 950 í lausasölu
Gjafakort Arion banka er alltaf rétta gjöfin. Þú velur fjárhæðina,
þiggjandinn velur gjöfina. Gjafakort Arion banka fæst í öllum
útibúum okkar.
Gjöf sem gleður alla
arionbanki.is
Tilboð gilda út nóvember 2019
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Cheeseburger
meal
1.490 kr.
Máltíð
sími 437-1600
Gjafakort
Jólaleg hádegi í desember
5. og 6. desember
12. og 13. desember
Borðapantanir í síma 437-1600 eða á
landnam@landnam.is
Það er alltaf gaman
að gefa upplifun
• 2 STÓ
RAR P
IZZUR
AF M
ATSEÐ
LI
• 2 ME
ÐLÆT
I AÐ E
IGIN V
ALI
• 2 SÓS
UR AÐ
EIGIN
VALI
• 2 L G
OS
AÐEIN
S 5.99
0 KR.
Næstkomandi sunnudagur er í senn fullveldisdagurinn og fyrsti sunnudagur
í aðventu. Af því tilefni verður efnt til dagskrár í Reykholti, en einnig er víða á
Vesturlandi dagskrá um næstu helgi í tilefni þess að aðventan er að ganga í garð.
Lesa má nánar um hana í viðburðaskránni í Skessuhorni í dag. Þessi kyrrláta
mynd var tekin í Reykholti.
Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur heldur úti Veðurvaktinni
og vefnum blika.is. Hann skrifar
áhugaverðan pistil á síðuna þar sem
hann rifjar upp þegar síldin drapst
vegna súrefnisskorts í Kolgrafafirði
árin 2012 og 2013. Ýmsar kenn-
ingar voru uppi um ástæður þess.
„Nokkru síðar var það mat manna
að dauðann mætti rekja til súrefn-
isskorts, en súrefni gekk nánast til
þurrðar. Því ollu veðurfarslegar að-
stæður. Hægur vindur og yfirborðs-
kæling. Í fyrra sinnið drápust um 30
þúsund tonn (13. des. 2012) og 22
þús til viðbótar um 4. febrúar árið
eftir, en rotnun á sjávarbotni ýtti
þá undir súrefnisskortinn,“ skrifar
Einar.
Hann segir að íslenska sumar-
gotssíldin leggist í hálfgerðan vetr-
ardvala inn á einhverjum djúpu
fjarðanna og alls ekki alltaf í Kolg-
rafafirði. Stofninn er nú í minna
lagi og metinn á 220-230 þúsund
tonn. „Nú háttar svo til að veður
á Breiðafirði líkist í megindrátt-
um því sem var í aðdraganda fyrri
síldardauðans,“ segir Einar. Hægur
vindur í nokkra daga og yfirborðs-
kæling. „Höfum í huga að súrefni
getur borist á þrennan hátt í sjóinn.
Í fyrsta lagi með ljóstillífun sem er
takmörkuð í skammdeginu, í öðru
lagi við hvítfexta öldu og/eða brim
og loks með blöndun við súrefnis-
ríkari sjó með straumum og sjávar-
föllum. Kaldur sjór innst í Breiða-
Sömu aðstæður og þegar síld-
ardauðinn varð í Kolgrafafirði
Spyr hvar íslenska sumargotssíldin haldi sig nú
firðinum bendir einmitt til lítillar
blöndunar. Þá er bara spurning-
inn - veit einhver hér á landi hvar
meginstofn fullorðinnar sumar-
gotssíldar heldur sig þessa dagana,“
spyr greinarhöfundur og bætir við
að endingu: „Og hefur Hafró haft
tíma, eða faglega getu nú þegar
fullt af fólki er að láta þar af störf-
um, til þess að fylgjast með hvar
síldin heldur sig?“
mm
Áhrif síldardauðans 2012 og 2013
voru gríðarleg, eins og þessi fræga
ljósmynd Tómasar Freys Kristjáns-
sonar fréttaritara Skessuhorns í
Grundarfirði ber með sér.