Skessuhorn - 27.11.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 20196
Innleiða barna-
sáttmála SÞ
BORGARBYGGÐ: Forstöðu-
menn stofnana Borgarbyggð-
ar, sveitarstjórnarmenn og aðrir
áhugasamir, voru nýverið boð-
aðir á kynningarfund um inn-
leiðingu Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna í Borgarbyggð.
Hjördís Eva Þórðardóttir verk-
efnastjóri UNICEF á Íslandi
gerði þar grein fyrir ferlinu sem
innleiðingin felur í sér. Hug-
myndafræði barnvænna sveit-
arfélaga byggist á fimm grunn-
þáttum sem eru leiðbeinandi
við innleiðingu Barnasáttmál-
ans. Þættirnir hafa tengingu við
grundvallarforsendur Barna-
sáttmálans og útlista þær kröfur
sem sáttmálinn gerir til stjórn-
valda um breytt verklag, ákvarð-
anaferla og viðhorf til barna í
samfélaginu. Fimm grunnþætt-
irnir barnvænna sveitarfélaga
eru: Að réttindi barnsins séu vel
þekkt, að horft sé til réttinda
allra barna, þátttaka barnsins,
barnvænt samfélag og það sem
barninu er fyrir bestu. Nán-
ar er fjallað um sáttmálann og
innleiðingu hans á heimasíðu
Borgarbyggðar. -mm
Páfagaukar
vanræktir
LANDIÐ: Matvælastofnun
hefur tekið páfagauk af eiganda
á Norðurlandi vegna vanrækslu.
Við eftirlit fundust tveir mjög
horaðir fuglar í búri, þar af
annar dauður. Ástand fuglanna
mátti rekja til vanfóðrunar og
vatnsleysis og var vörslusvipt-
ing framkvæmd tafarlaust, segir
í tilkynningu frá Matvælastofn-
un. „Bannað er að beita gæludýr
illri meðferð og er ekki heimilt
að skilja búrfugla eftir lengur
án eftirlits en í einn sólarhring.
Gæta skal þess að gæludýr sé í
eðlilegum holdum og dauð dýr
skal tafarlaust fjarlægð frá lif-
andi dýrum. Verið er að leita að
nýju heimili fyrir páfagaukinn
og er málið áfram til meðferðar
hjá Matvælastofnun.“ -mm
Runnu út af
DALABYGGÐ: Tilkynnt var
um útafakstur á Snæfellsnes-
vegi við Breiðabólsstaðarkirkju
á Skógarströnd á þriðjudag-
inn í síðustu viku. Tilkynnandi
kvaðst standa við kirkjuna og
hafa séð eina eða tvær bifreið-
ar fara út af veginum. Tjón hafi
verið minniháttar en einn hafi
kennt sér eymsla. Sjúkrabifreið
var send á staðinn. Talið er að
hálka hafi ollið umferðaróhapp-
inu, að sögn lögreglu. -kgk
Bílvelta við
Lambhaga
HVALFJSV: Bílvelta varð í
Hvalfirði til móts við Lamb-
haga kl. 16:30 á mánudag. Öku-
maður missti stjórn á bifreið
sinni í hálku með þeim afleið-
ingum að hann fór út af vegin-
um þar sem hann valt og end-
aði ofan í skurði. Ökumaður-
inn sat í bílnum þegar lögregla
kom á vettvang og kenndi sér
eymsla eftir veltuna. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á Akranes
til læknisskoðunar, en reyndist
aðeins hafa hlotið minniháttar
meiðsli af. Bifreiðin er óökuhæf
og var fjarlægð með dráttarbíl
af vettvangi. -kgk
Sagði amfetamín
vera matarsóda
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi stöðvaði bifreið
sem ekið var um Vesturlands-
veg kl. 9:00 á sunnudagsmorg-
un. Var bifreiðin stöðvuð við
almennt eftirlit. Höfð voru af-
skipti af farþega bifreiðarinnar,
sem heimilaði leit í tösku. Þar
fannst plastílát með hvítu efni.
Farþeginn sagði að það væri
matarsódi en þegar lögregla
kannaði málið kom í ljós að efn-
ið gaf svörun við amfetamíni.
-kgk
Með alsælu
á spítti
VESTURLAND: Á sunnu-
dagsmorgun var ökumað-
ur stöðvaður þar sem hann ók
um Vesturlandsveg. Við eftir-
grennslan lögreglu kom í ljós að
maðurinn reyndist vera sviptur
ökuréttindum. Enn fremur gaf
fíkniefnapróf jákvæða svörun
á neyslu amfetamíns. Viðkom-
andi var handtekinn og heim-
ilaði leit í bílnum. Þar fund-
ust hvítar töflur í poka, sem og
grænar og rauð tafla. Eftir skoð-
un á hvítu tölfunum er talið lík-
legt að þar sé um að ræða al-
sælu, að sögn lögreglu. Maður-
inn var kærður fyrir akstur und-
ir áhrifum ávana- og fíkniefna,
fyrir að aka sviptur ökuréttind-
um og fyrir vörslu og meðferð
ólöglegra fíkniefna. -kgk
Þrjú hjól undir
bílnum
HVALFJSV: Hjólbarði losnaði
undan bifreið sem ekið var um
Vesturlandsveg við Fiskilæk um
kaffileytið á þriðjudaginn í síð-
ustu viku. Bifreiðin staðnæmd-
ist á vegi og skapaði tilheyrandi
hættu. Lögregla fór á staðinn
og stjórnaði umferð um svæð-
ið á meðan málunum var kippt
í lag.
Landbúnaðarráðherra hefur gefið
út breytingarreglugerð um innlausn
á greiðslumarki í sauðfé. Þar kem-
ur fram að handhafi greiðslumarks
geti óskað eftir innlausn á greiðslu-
marki. Matvælastofnun skal bjóða
til sölu það greiðslumark sem er
innleyst á árinu 2019 á núvirtu and-
virði beingreiðslna næstu þriggja
almanaksára. Miðað er við stýri-
vexti Seðlabanka Íslands 1. janúar
ár hvert og greiðslur frá þeim tíma.
Framleiðendur sem eiga 100 kind-
ur eða fleiri og eru með ásetnings-
hlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa
forgang að 60% þess greiðslumarks
sem er í boði á markaði árið 2019.
Það skiptist hlutfallslega milli aðila
sem hljóta forgang í samræmi við
það magn sem þeir óskuðu eftir að
kaupa. Það greiðslumark sem þá er
eftir skal boðið öðrum kaupendum
sem og þeim aðilum er nutu for-
gangs, hlutfallslega í samræmi við
það magn sem þeir óskuðu eftir að
kaupa.
Framleiðendur sem hyggjast
kaupa greiðslumark fylla út raf-
rænt eyðublað, sem Matvælastofn-
un mun birta á vef sínum á næstu
dögum. Þeir sem hyggjast selja
greiðslumark sitt fylla út eyðu-
blað sem finna má á þjónustugátt
MAST. Nánar verður sagt frá fyrir-
komulaginu í þessari viku, að því að
fram kemur í tilkynningu frá Mat-
vælastofnun. mm
Samkomulag kúabænda og stjórn-
valda um endurskoðun á samningi
um starfsskilyrði nautgriparæktar
var undirritað 25. október síðast-
liðinn. Til stóð að greiða atkvæði
um samkomulagið dagana 20. - 27.
nóvember en því var í síðustu viku
frestað að hefja atkvæðagreiðslu og
mun hún að óbreyttu hefjast í dag,
27. nóvember og standa til 4. des-
ember nk. „Frestunin er komin til
eftir að undirskriftarlista frá bænd-
um var skilað til BÍ í líðandi viku,
en þar hvetja undirritaðir samn-
inganefnd bænda að freista þess að
ná fram skýrari línum í ákveðnum
atriðum samkomulagsins,“ skrifaði
Arnar Árnason formaður stjórnar
Landssambands kúabænda á vef
BÍ.
óhætt er að segja að fyrirliggjandi
drög að samningi um starfsskilyrði
nautgriparæktar hafa mælst misvel
fyrir. Um það vitnar ekki síst undir-
skriftir 330 bænda sem fóru í síð-
ustu viku framá að atkvæðagreiðslu
yrði frestað og einstök efnisatriði
gerð skýrari svo hægt væri að kjósa
um samninginn. Atkvæðagreiðslan
mun fara fram með rafrænum hætti
og verður aðgengileg á vef Bænda-
samtakanna www.bondi.is. Hún
stendur yfir frá kl. 12.00 á hádegi
í dag, 27. nóvember til kl. 12.00 á
hádegi miðvikudaginn 4. desember.
mm
Frestuðu atkvæðagreiðslu um
umdeildan samning
Breytt fyrirkomulag innlausnar
á greiðslumarki sauðfjár