Skessuhorn - 27.11.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 9
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Skipulagslýsing
fyrir aðalskipulag
Hvalfjarðarsveitar
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
12. nóvember 2019, að auglýsa kynningu á skipulagslýsingu fyrir
aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar sbr. skipulagslög nr. 123/2010 og
lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi mun fela í sér að hluta
opna svæðisins í landi Dragháls til sérstakra nota verður breytt í
landbúnaðarland. Vatnsaflsvirkjanir með rafafl að hámarki 200 kW
eru heimilar á skilgreindum lanbúnaðarsvæðum, að undanskildum
þeim svæðum sem eru á náttúruminjaskrá eða falla undir ákvæði
37. gr. laga um náttúruvernd.
Skipulagslýsingin er unnin samkvæmt 1. mgr. 30. gr., 1. mgr.
36. gr. og 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í lýsingunni
eru settar fram áherslur og forsendur fyrir breytingu aðalskipulags
og gerð deiliskipulags auk þess er gerð grein fyrir skipulagsferlinu.
Framkvæmdin fellur undir 3.23. tl. í 1. viðauka laga um mat á
umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@
hvalfjardarsveit.is merkt ”lýsing aðalskipulag”
fyrir 31. desember 2019.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands
um kaup á 25 nýjum sjúkrabílum
liggur fyrir í kjölfar útboðs Ríkis-
kaupa í haust. Þar með er endur-
nýjun sjúkrabílaflotans loks hafin í
samræmi við samkomulag Sjúkra-
trygginga Íslands og Rauða krossins
á Íslandi frá 11. júlí í sumar. Ekki er
þó gert ráð fyrir að fyrstu bílarnir
verði afhentir fullbúnir til notkun-
ar fyrr en í september á næsta ári.
Sjúkrabílaflotinn á landsvísu, og
þar með hér á Vesturlandi, er orð-
inn verulega gamall og úr sér geng-
inn, enda komust Sjúkratrygging-
ar og Rauði krossinn ekki að sam-
komulaginu um endurnýjun samn-
ings fyrr en í sumar eftir nokkurra
ára tafs jafnvel þótt fyrir lægi að
þörfin fyrir nýja bíla væri orðin að-
kallandi. Um alvarleika þeirra tafa
hefur verið fjallað í fjölda frétta í
Skessuhorni á liðnum árum.
Það var Fastus sem átti tilboðið
sem skoraði hæst í útboðinu og var
því tekið. Bílarnir 25 eru af tegund-
inni Mercedes Benz Sprinter. Þeir
eru stórir og rúmgóðir sem trygg-
ir sjúklingum góðar aðstæður, auð-
veldar sjúkraflutningamönnum
að sinna þeim um borð og eykur
þannig öryggi þjónustunnar. Í út-
boðinu var áhersla lögð á að nýir
bílar myndu uppfylla ströngustu
kröfur sérfræðinga varðandi öryggi,
aðbúnað og vinnuumhverfi.
Samkvæmt fyrrnefndu samkomu-
lagi Sjúkratrygginga og RKÍ er gert
ráð fyrir að alls verði 68 sjúkra-
bifreiðar endurnýjaðar fyrir árslok
2022, en flotinn samanstendur af
um 80 bílum. Samkomulagið gerir
því ráð fyrir að á samningstímanum
verði endurnýjun á stærstum hluta
þeirra sjúkrabíla sem nú eru í notk-
un og að endurnýjaðir verði allir
sjúkrabílar sem nú eru í fremstu röð
viðbragðs.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra segir þetta stóran og
kærkominn áfanga: „Í heilbrigð-
isstefnu til ársins 2030 er sérstök
áhersla lögð á skilvirka og öfluga
sjúkraflutninga sem lið í því að jafna
aðgengi landsmanna að góðri heil-
brigðisþjónustu óháð búsetu. End-
urnýjun sjúkrabifreiða og búnaðar
skiptir þar miklu máli, til að halda
uppi tilskildum gæðum, tryggja ör-
yggi sjúklinga og sjúkraflutninga-
manna og standa undir umfangi
þjónustunnar til framtíðar,“ segir
heilbrigðisráðherra. mm
Ástand sjúkrabílaflotans í umdæmi HVE á Vesturlandi hefur verið afar bágborið undanfarin ár. Meðfylgjandi mynd er úr safni
Skessuhorns og tekin eftir að sjúkrabíll hafði bilað í útkalli. Ljósm. kgk.
Fyrstu nýju sjúkrabílarnir verða
af gerðinni Benz Sprinter
Egilsholti 1, 310 Borgarnes
Tel. 430 5500
Allt í aðventukransinn
Greni - Strákransar - Bindivír - Kerti - Borðar
Jólakúlur - Jólastyttur - Skrautkúlur - Oasis
-Epli - Skrautnálar -Sveppir -Kirsuber
Skrautgreinar
Gjafavara
í úrvali
Kynnið ykkur úrvaliðwww.kb.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8