Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201910
Upphaf aðventu í Borgarbyggð
sunnudaginn 1. desember 2019
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Jólaljósin verða tendruð á jólatré Borgarbyggðar
í Skallagrímsgarði kl. 16:00
Dagskrá:
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir formaður Byggðarráðs flytur
ávarp og tendrar jólaljósin
Jólalög verða sungin af Barnakór Borgarness undir stjórn
Steinunnar Árnadóttur og söngleikjadeild Tónlistarskóla
Borgarfjarðar
Jólasveinarnir koma til byggða og dansað verður í
kringum jólatréð
Nemendur Grunnskólans í Borgarnesi bjóða upp á heitt
kakó og nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar bjóða
upp á smákökur
Gleðileg hátíð
Samkórinn Hljómur, sem er kór
FEBAN á Akranesi, leggur í vik-
unni land undir fót og stefnir á að
halda tónleika í Eldborgarsal Hörp-
unnar í Reykjavík á fullveldisdag-
inn, sunnudaginn 1. desember. Þar
mun kórinn syngja ásamt sjö öðrum
kórum af landinu. Lárus Sighvats-
son er stjórnandi Hljóms: „Á haust-
dögum komu skilaboð frá Garðari
Cortes um að hann væri búinn að
panta stóra salinn í Hörpu til tón-
leikahalds á fullveldisdaginn 1. des-
ember og óskaði hann eftir þátt-
töku Hljóms í þessum tónleikum.
Tilefnið er ærið enda þessi merki-
legi dagur í sögu þjóðar að gleym-
ast mörgum og því finnst okkur
þetta gott framtak,“ segir Lárus í
samtali við Skessuhorn. „Ákváðu
kórfélagar strax að taka þessu boði.
Hafa því verið stífar æfinga und-
anfarnar vikur. Tónleikarnir verða
með þeim hætti að sungin verða
ellefu kórlög, bæði ættjarðarlög
og eftir íslensk tónskáld. Að auki
syngja kórarnir fjögur lög þar sem
gestir í sal eru hvattir til að syngja
með í fjöldasöng og síðan mun tón-
leikunum ljúka með fjórum lögum
sem tengjast jólum.“
Tónleikarnir í Hörpu hefjast
klukkan 16 og verða þegar mest er
300 söngvarar á sviði Elborgarsal-
arins. Allir kórar fá nokkra miða til
sölu og segir Lárus að miðaverði sé
stillt í hóf, en það er 3000 krónur.
Kór FEBAN er nú á sínu 29.
starfsári og er starfsemin með
miklum krafti. „Fastir liðir í starfi
kórsins er að syngja tvisvar á vetri
í messu í Akraneskirkju. Þá tekur
kórinn á móti eða heimsækir kór
eldriborgara í Hveragerði og einn-
ig koma saman til skiptis einu sinni
á vori FEBAN kórinn og kórar frá
Borgarnesi og Kópavogi. Í lok hvers
starfsárs er svo kóramót með kór-
um frá Selfossi, Mosfellsbæ, Hafn-
arfirði og Reykjanesbæ og verður
það mót næst á Selfossi í maí. Í dag
eru skráðir félagar í Hljómi 43 og
æft tvisvar í viku. Formaður kór-
stjórnar er Rögnvaldur Einarsson.
mm
Hljómur, kór Feban, ásamt Lárusi Sighvatssyni. Ljósm. Björn Lúðvíksson.
Eldhugar stefna á stóra
sviðið í Hörpu