Skessuhorn - 27.11.2019, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 15
Jólaskemmtun á Akratorgi
Soroptimistar á Akranesi og ná-
grenni hafa í ár tekið höndum sam-
an með Soroptimistasystrum um
land allt við að vekja athygli á mik-
ilvægi þess að vinna markvisst að
útrýmingu kynbundins ofbeldis.
Nú stendur yfir 16 daga ákall
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), þar sem
ríki, stofnanir, samtök, fyrirtæki og
einstaklingar eru hvött til að taka
þátt í því að draga athygli almenn-
ings að þessari vá; þessum alvarlegu
mannréttindabrotum. Þetta er ár-
visst átak sem hefst 25. nóvember,
á degi sem Sameinuðu þjóðirnar
völdu sem alþjóðlegan dag vitund-
arvakningar um ofbeldi gegn stúlk-
um og konum. Því lýkur á mann-
réttindadegi SÞ 10. desember, sem
jafnframt er alþjóðlegur dagur So-
roptimista.
Táknlitur átaksins er appelsínu-
gulur, litur vonar. Á ensku er slag-
orðið Orange the world eða Roða-
gyllum heiminn. Liturinn var val-
inn til að minna okkur á að eftir sól-
setur rís sólin upp að nýju. Það má
því víða sjá roðagyllt hús, tanka og
torg í tilefni þessa mikilvæga mál-
efnis og ljósagöngur farnar í bæjum
og borgum.
Alþjóðasamband Soroptimista
hefur allt frá árinu 1991 sett það á
oddinn að berjast gegn því að stúlk-
ur og konur séu beittar ofbeldi og
órétti. Sambandið hvetur til þess
að ríkjasambönd Soroptimista, ein-
staka klúbbar og systur finni leiðir
til að setja þessi mannréttindabrot
í brennidepil í sínum samfélögum
þessa 16 daga. Tengist þetta beint
við fimmta heimsmarkmið Samein-
uðu þjóðanna, sem fjallar um leiðir
til að stuðla að jafnrétti kynjanna,
með því að staða allra kvenna og
stúlkna verði styrkt. Þar segir m.a:
„Hvers kyns ofbeldi gagnvart kon-
um og stúlkum á opinberum vett-
vangi sem og í einkalífi, þ.m.t.
mansal, kynferðisleg misneyting
og misneyting af öðru tagi, verði
ekki liðin og regluverk sem styður
við ofbeldi afnumið. Allir skaðleg-
ir siðir, eins og barnahjónabönd,
snemmbúin og þvinguð hjónabönd
og limlesting kynfæra kvenna og
stúlkna, verði lagðir niður.“
Soroptimistaklúbbur Akraness
hefur í ár hvatt stofnanir og fyrir-
tæki til að roðagylla byggingar til
að vekja athygli á málstaðnum og
skoða hvað annað þau gætu gert til
að leggja málinu lið. Að þessu tilefni
verður klúbburinn með roðagylltan
markað laugardaginn 30. nóvem-
ber frá kl. 14:00-17:00. Markaður-
inn verður í Galleríi Bjarna Þórs að
Kirkjubraut 1, Akranesi. Ágóðinn
rennur til Kvennaathvarfsins.
Sigríður Kristín Gísladóttir
Elísabet Ragnarsdóttir og Svandís Stefánsdóttir eru hér að útbúa fuglakornskúlur
til að hengja upp í tré. Soroptimistasystur verða með roðagylltan markað í Galleríi
Bjarna Þórs næstkomandi laugardag kl. 14-17.
Roðagyllum heiminn -
burt með ofbeldi
Pennagrein