Skessuhorn - 27.11.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 17
Gleðilega hátíð!
1. des. - 1. sunnudagur í aðventu
Aðventuguðsþjónusta kl. 11
Strengjasveit frá Tónlistarskóla Akraness
Ræðumaður: Bjarnheiður Hallsdóttir
8. des. - 2. sunnudagur í aðventu
Jólasunnudagaskóli kl. 11
15. des. - 3. sunnudagur í aðventu
Jólaball Sunnudagaskólans kl. 11
Jólasöngvar kl. 14
Hljómur, kór eldri borgara syngur
22. des. - 4. sunnudagur í aðventu
Aðventukyrrðarstund kl. 11
24. des. - Aðfangadagur
Aftansöngur kl. 18
Miðnæturmessa með jólasöngvum kl. 23
25. des. – Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
15. des. – 3. sunnudagur í aðventu
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
Kirkjukaffi eftir stundina
25. des. – Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 15
31. des. – Gamlársdagur
Guðsþjónusta kl. 13.30
8. des. – 2. sunnudagur í aðventu
Fjölskylduguðsþjónusta
með aðventuívafi kl. 11
25. des. – Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 13.30
Aðventu- og jóladagskrá
Garða- og Saurbæjarprestakalls
Akraneskirkja Innra-Hólmskirkja
Hallgrímskirkja í Saurbæ
1. jan. 2020 – Nýársdagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Leirárkirkja
Jólatónleikar Kórs Akraneskirkju
í Tónbergi, fimmtudaginn 19. des.
15. des. – 3. sunnudagur í aðventu
Aðventustund kl. 14
Kór Saurbæjarprestakalls syngur
ásamt einsöngvurum úr kórnum
24. des. - Aðfangadagur
Aftansöngur kl. 23
Höfði
1. des. – 1. sunnudagur í aðventu
Strengjasveit frá Tónlistarskóla Akraness
Ræðumaður: Bjarnheiður Hallsdóttir
Við hvetjum aðstandendur til að sækja
aðventustundina með sínu fólki á Höfða
26. des. – Annar í jólum
Hátíðarguðsþjónusta kl. 12.45
31. des. – Gamlársdagur
Guðsþjónusta kl. 11.30
Á fundi miðstjórnar Alþýðusam-
bands Íslands nýverið var m.a. rætt
um undirboð á markaði. Hið vænt-
anlega flugfélag Play barst með-
al annars í tal. Í pistli Drífu Snæ-
dal, forseta ASÍ, segir um málið:
„Það þótti tíðindum sæta að nýtt
flugfélag var stofnað hér á landi
og fréttir berast af því að kostnaði
verði haldið í lágmarki með öllum
ráðum, m.a. með því að halda laun-
um niðri. Fyrirtækið hefur ekki birt
kjarasamning sem það þykist hafa
gert um störf flugliða og fær fólk
sem sækir um störf varla að vita
kaup og kjör. Þær vísbendingar sem
okkur hafa borist hníga í þá átt að
greiða á grunnlaun langt undir því
sem almennir kjarasamningar segja
til um,“ skrifar Drífa. Hún hvetur
fyrirtækið til að birta kjarasamn-
inginn og leggja allt á borðið. „Ekki
aðeins á fólk sem hyggst sækja um
störf hjá Play rétt á þessari vitn-
eskju heldur skiptir það okkur öll
máli ef verið er að stunda undirboð
á vinnumarkaði. Ég ætlast líka til
þess að fjárfestar og þeir sem eiga í
viðskiptum við fyrirtækið krefji það
um þessar upplýsingar. Það verð-
ur ekki liðið að fyrirtæki starfi á ís-
lenskum vinnumarkaði með undir-
boðum,“ skrifar Drífa Snædal.
mm
Hafin er vinna við aðgerðabundna
stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á
Íslandi til ársins 2025. Verkefnið
er sameiginlegt verkefni atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytisins,
Sambands sveitarfélaga, Samtaka
ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðv-
ar ferðamála. Boðað hefur ver-
ið til opinna vinnustofa í tengslum
við stefnumótunina og verða slíkar
vinnustofur haldnar í öllum lands-
hlutum. Hér á Vesturlandi fer
ein slík fram á morgun, fimmtu-
daginn 28. nóvember frá klukk-
an 13-16 á Hótel B-59 í Borgar-
nesi. „Vinnustofan er opin öllum,
og er mikilvægt að fá að borðinu
alla hagsmunaaðila í ferðaþjón-
ustunni; grasrót, fyrirtæki, stofn-
anir og félagasamtök. Á vinnu-
stofunni verða ræddar sviðsmynd-
ir um þróun ferðaþjónustunnar
til næstu ára og þær leiðir sem er
mikilvægt að fara til að ná framtíð-
arsýn og leiðarljósi ferðaþjónust-
unnar um að vera leiðandi í sjálf-
bærni,“ segir í tilkynningu. Vinnu-
stofan er um þrjár klukkustundir.
Unnið er í hópum að mismunandi
meginmálefnum sem varða ávinn-
ing heimamanna, upplifun ferða-
manna, verðmæta markaði, álags-
stýringu og gæði áfangastaða, arð-
semi og nýsköpum og loftslagsmál
og orkuskipti.
Síðastliðinn föstudag stóðu
Ferðamálastofa og KPMG fyrir
fundi þar sem kynntar voru niður-
stöður nýrrar skýrslu um afkomu
fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu
2018, með samanburði við fyrri ár.
Í skýrslunni kom meðal annars fram
að gengi krónunnar lækkaði á árinu
2018, sem hefði að óbreyttu átt að
leiða til betri afkomu, en kostnað-
arhækkanir unnu á móti tekjuauk-
anum sem skapaðist vegna lækkun-
arinnar. Betri afkoma var af rekstri
hótela í Reykjavík en úti á landi
sem versnar eftir því sem fjær dreg-
ur höfuðborgarsvæðinu. Það styður
þá ályktun að ferðamenn fari minna
út á land en áður. Afkoma bílaleiga
og hópbílafyrirtækja versnaði milli
2017 og 2018 og var afkoma bíla-
leiga að meðaltali við núllið en tap
hjá hópbílafyrirtækjum. Afkoma
ferðaskrifstofa batnaði milli ára
þrátt fyrir óbreyttar tekjur vegna
lægri kostnaðar og var hagnaður
að meðaltali bæði árin. Afkoma af-
þreyingarfyrirtækja stóð nánast í
stað milli áranna 2017-2018 í krón-
um talið þrátt fyrir hækkun tekna.
Almennt var hagnaður af rekstri
þeirra bæði árin.
mm
Vinnustofan á Vesturlandi fer fram á B-59 í Borgarnesi.
Vinnustofa til að móta aðgerðaáætlun
og stefnumótun í ferðaþjónustu
Telur Play ætla að
hefja starfsemi með
undirboðum