Skessuhorn - 27.11.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201918
Bæjarstjórnarfundur unga fólks-
ins var haldinn í 18. skipti í bæj-
arþingsalnum á Akranesi þriðju-
daginn 19. nóvember síðastliðinn.
Þá taka fulltrúar úr Ungmenna-
ráði Akraness sæti í bæjarstjórn
og kynna niðurstöður ungmenna-
þings, sem haldið var í september,
fyrir bæjarstjórn Akraness og bæj-
arstjóra. Í bæjarstjórn unga fólksins
tóku sæti að þessu sinni þau Björg-
vin Þór Þórarinsson, fulltrúi nem-
enda Fjölbrautaskóla Vesturlands,
Elsa María Einarsdóttir, fulltrúi
Arnardals, Hekla Kristleifsdóttir,
fulltrúi nemenda Brekkubæjarskóla,
Helgi Hrafn Bergþórsson, fulltrúi
Tónlistarskólans á Akranesi, Mar-
ey Edda Helgadóttir, fulltrúi nem-
enda Grundaskóla, Sóley Brynj-
arsdóttir, fulltrúi Íþróttabandalags
Akraness og Ylfa Örk Davíðsdótt-
ir, fulltrúi Hvíta hússins. Hér verð-
ur stiklað á stóru um það sem fram
kom í máli þeirra.
Vellíðan allra
skiptir máli
Björgvin gerði málefni FVA að um-
talsefni sínu. Sagði hann ástandið
þar líklega ekki hafa farið framhjá
neinum en að sjónarmið nemenda
hefði aldrei komið fram. Sagði hann
að þegar kæmi að stjórnun skólans
fengju nemendur engar upplýs-
ingar. „Nær allt sem nemendur fá
að frétta af gangi mála berst með
munnmælum,“ sagði Björgvin.
Hann sagði mikilvægt að nemend-
ur vissu hvað væri að gerast í kring-
um þá svo þeir gætu hjálpað til og
orðið partur af lausninni. „Vellíð-
an kennara kemur okkur við, ekki
bara vegna þess að það kemur niður
á náminu okkar, heldur líka vegna
þess að við umgöngumst þetta fólk
átta tíma á dag, fimm daga í viku og
okkur þykir vænt um þau.“
Fleiri verkefni
Elsa ræddi málefni vinnuskólans
og kallaði eftir því að þar yrði ung-
mennum boðið upp á að starfa við
fleira en garðvinnu. Vísaði hún til
niðurstaðna ungmennaþings, þar
sem kom fram að ungmenni vildu
gjarnan læra eitthvað tengt pen-
ingamálum, en einnig smíðar, mál-
un og fleiri hluti sem kæmu til með
að nýtast öllum í framtíðinni. Varp-
aði hún fram þeirri hugmynd að
breyttu fyrirkomulagi vinnuskólans
að fyrirtæki og stofnanir í bænum
gætu tekið þátt í starfsemi hans.
Umhverfismál og
barnasáttmálinn
Hekla gerði umhverfismálin að
umfjöllunarefni sínu. Hún lýsti
ánægju sinni með að frítt væri í
strætó innanbæjar á Akranesi en
kvaðst vilja sjá fleiri nýta sér þann
fararmáta. Sömuleiðis kallaði hún
eftir fleiri göngu- og hjólastígum
til að hvetja fólk til að fara ferða
sinna þannig. Þá brýndi hún fólk
til að vera duglegra við flokkun úr-
gangs og endurnýtingu. Það mætti
gera með aukinni fræðslu og með
því að koma upp fleiri flokkunar-
stöðvum.
Sömuleiðis hvatti hún Akranes til
að taka þátt í innleiðingu á verkefni
Unicef, Barnvæn samfélög. Verk-
efnið miðar að því að stjórnvöld
hefji markvissa innleiðingu barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna og
tileinki sér barnaréttindanálgun í
sínum verkefnum, stefnumótun og
ákvörðunum.
Of langur biðlisti
í tónlistarnám
Helgi kallaði eftir því að stöðugild-
um við Tónlistarskólann á Akranesi
yrði fjölgað, til að koma til móts við
um 100 manns sem væru á biðlista
eftir námi við skólann. Hann sagði
jákvætt hve margir vildu nema tón-
list á Akranesi og kallaði auk þess
eftir því að fundið yrði æfingahús-
næði fyrir hljómsveitir í bænum.
Einnig sagði hann að fólk í hjóla-
stól kæmist ekki upp á sviðið í Tón-
bergi til að troða upp og hvatti til
þess að ráðin yrði bót í því máli.
Kynfræðsla ekki tabú
Marey talaði um kynfræðslu í skól-
um í framsögu sinni, sem ung-
mennum þætti of lítil. Fræðslu um
blæðingar og kynfærin hefðu hún
og samnemendur hennar feng-
ið í 6. bekk og í 9. bekk hefði farið
yfir kynsjúkdóma og getnaðarvarn-
ir. Taldi Marey að þó þessi fræðsla
væri mikilvæg, upplifðu ungmenn-
in hana oft eins og væri verið að
hræða þau. „Við þurfum miklu
frekar uppbyggjandi og upplýsandi
fræðslu í stað þess að fræðast bara
um það sem er hættulegt,“ sagði
hún. Kynfræðsla ætti ekki aðeins
að fjalla um það sem gæti gerst eða
farið úrskeiðis, mikilvægt væri að
fræða líka með jákvæðum og upp-
byggjandi hætti. Einnig taldi hún
að verja þyrfti meira púðri í fræðslu
um hvað væri eðlilegt og hvað ekki
í samböndum og samskiptum.
Sömuleiðis kallaði hún eftir meiri
fræðslu um hvaðeina sem tengist
peningum, ábyrgð í fjármálum og
mikilvægi sparsemi.
Ræddi mikilvægi svefns
Sóley ræddi um heilsu í ávarpi sínu.
Hún lýsti yfir ánægju sinni með
að Akranes væri orðið þátttakandi
í verkefninu Heilsueflandi samfé-
lag. Hvatti hún bæjaryfirvöld til að
bjóða fulltrúa ungmenna í starfs-
hóp verkefnisins, sem stofnaður var
þegar samningur um þátttöku var
undirritaður. Þá ræddi Sóley svefn
unglinga og sagði rannsóknir hafa
sýnt að unglingar á Akranesi og Ís-
landi almennt fengju ekki nægan
svefn, svæfu ekki nema sex tíma eða
minna hverja nótt. Til að reyna að
ráða bót í máli hvatti hún foreldra
til að fræða börn sín um mikilvægi
svefns. Einnig brýndi hún íþrótta-
félög til að gæta þess að tímasetja
æfingar ekki seint á kvöldin.
Má ekki normalísera
fíkniefni
Ylfa gerði vaxandi neyslu fíkni-
efna að umræðuefni sínu og vísaði
til þess að tölur sýndu að hún hefði
aukist meðal ungmenna. „Þetta er
ömurleg þróun,“ sagði Ylfa og lýsti
áhyggjum sínum yfir því að búið
væri að „normalísera“ fíkniefni.
„Við ungmennin heyrum og vit-
um hvað er í gangi,“ sagði hún og
kallaði eftir jákvæðum forvörnum.
Lagði hún til að Ungmennaráði
Akraness yrði veitt fé til að fara af
stað með jafningjafræðslu og kom-
ið yrði fram með jákvæðar fyrir-
myndir.
kgk
Bæjarstjórn unga fólksins fundaði
Bæjarstjórnarfulltrúar hlýða á framsögur ungmennanna og punkta hjá sér.
Bæjarstjórn unga fólksins. Standandi f.v. Hekla Kristleifsdóttir, Helgi Hrafn Bergþórsson og Ylfa Örk Davíðsdóttir. Fyrir framan sitja f.v. Elsa María Einarsdóttir, Marey
Edda Helgadóttir, Sóley Brynjarsdóttir og Björgvin Þór Þórarinsson.
Björgvin Þór leggur við hlustir. Hekla í ræðustól.