Skessuhorn - 27.11.2019, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTóBER 2019 19
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Litla frænka mín heitir Kristbjörg
Ragney Eiríksdóttir. Hún er 8 ára
og hana dreymir um að verða risa-
eðlufræðingur. Við leikum mik-
ið saman og ef þið hafið einhvern
tímann heyrt óhljóð í neðri bænum
í Borgarnesi þá er það mögulega ég
að hlaupa á eftir henni, öskrandi og
organdi eins og grameðla. Þegar ég
var að útskýra fyrir litlu frænku að
uppáhalds frændi hennar, sem ég tel
mig vera, væri að flytja til Nígers þá
varð hún voða leið. En það kom þó
bros á hana þegar ég fór að tala um
að í Níger væri fullt af steingerving-
um af risaeðlum, og kannski gæti
ég keypt steingerða tönn, bein eða
í versta falli kúk úr risaeðlu og kom-
ið með til hennar. Þið verðið að átta
ykkur á því að hún elskar risaeðlur
mest of öllu. Uppáhalds bíómyndin
hennar er Jurassic Park. Hún getur
teiknað og nefnt fullt af risaeðlum
og þegar ég spjalla við hana hljómar
eins og að hún muni ekki láta neitt
stöðva sig til að verða eldklár vís-
indakona og risaeðlufræðingur.
Það er svo gaman þegar börn
hafa svona brennandi áhuga og flott
markmið, og ég sem frændi vil auð-
vitað gera mitt besta til að styðja við
hana. Að finna steingerving í Níg-
er til að koma með heim til Íslands
og gefa frænku í jólagjöf hefur verið
mér ofarlega í huga. Ég varð strax
vongóður þegar ég kom hingað
því nýja flugstöðin í höfuðborginni
Niamey bíður ferðalanga velkomna
með risastórri risaeðlubeinagrind
af einhverskonar óhugnanlegri kjö-
tætu.
Einn daginn kom síðan tæki-
færi til að kaupa steingerving. Oft
er ég einn á gangi á útimörkuðun-
um hérna og stundum hafa Tuareg
menn frá eyðimörkinni komið upp
að mér. Þeir eru oftast hávaxnir og
klæddir í bláa víða kyrtla með túrb-
ana og andlitsblæjur á höfði sem
flæða niður eftir öxlunum, næstum
því eins og skikkjur. Við fyrstu sýn
eru þeir stundum ögn ógnvekjandi,
en það hefur mér að minnsta kosti
fundist þegar þeir ganga ákveðnir
í áttina til mín og draga upp sverð
og hnífa. En svo líður mér eins og
bjána því þeir eru síðan svo vinalegir
og ætluðu bara að sýna og selja mér
þessi fallega skreyttu vopn. Í mér býr
síungur strákur sem elskaði að lesa
Hringadrottinssögu og vill auðvitað
kaupa skínandi sverð handa sjálf-
um sér, en svo man ég eftir íslensku
vopnalögunum og síðan kurteisis-
lega afþakka ég þetta alltsaman. En
eitt sinn, þegar ég afsakaði mig við
einn af þessum mönnum og gerði
mig tilbúinn til að ganga burt, þá
greip hann í mig og sagði að hann
hefði annað til sölu. Hann bað mig
um að koma með sér afsíðis og síð-
an laumulega dró upp úr földum
vasa í kyrtlinum sínum eitthvað vaf-
ið í leður. Hann leysti leðrið frá og
við mér blasir steingerð tönn, stór
og hvöss eins og gamaldags rýting-
ur. Ég tala hvorki frönsku né tuareg
tungumálin en með hjálp frá þýð-
ingarforriti á símanum mínum náð-
um við að ræða saman. Hann sagði
mér að þetta væri tönn úr steini sem
strákur í þorpinu hans hefði fund-
ið í klettunum í eyðimörkinni, þar
höfðu hvítir menn verið að vinna
fyrir löngu en í dag væri enn hægt
að finna þarna allskonar bein og
tennur.
Þetta var tækifærið sem ég hafði
beðið eftir. Ég gerði mig tilbúinn til
að draga fram veskið og borga hvað
sem þetta kostaði, ég myndi ævin-
lega vera besti frændinn ef ég gæti
komið heim með svona flottan grip
handa litlu frænku. En það var eitt-
hvað sem hélt aftur að mér, það var
eitthvað furðulegt í gangi hérna. Af
hverju gat hann komið hlaupandi að
mér með sverð og hnífa til að selja á
meðan við vorum á meðal fólks, en
svo varð allt laumulegt þegar kom
að því að selja tönnina? Ég reyndi
að spyrja hann út í þetta en fátt var
um svör. Hvort sem það var þýðing-
arforritið eða bara orðin frá honum
sjálfum þá var það alveg á hreinu að
ég myndi ekki frá nein skýr svör. Ég
ákvað að hafa varann á mér og ekki
kaupa tönnina.
Síðar þegar ég kom heim þá
ræddi ég þetta undarlega atvik við
kærustuna mína. Hún útskýrði allt
fyrir mér og smám saman áttaði ég
mig á þessu öllu saman. Yfir mig
kom aulahrollur og ég skammaðist
mín niður í tær. Það er víst alveg
harðbannað að flytja steingervinga
úr landi. Vísindamenn vinna með
stjórnvöldum til að grafa upp risa-
eðlubeinin, rannsaka þau og setja á
söfn, en áratugum saman hafa út-
lendingar komið og stolið stein-
gervingum. Ennþá í dag tapast
vitneskja um þessar stórmerkilegu
fornu skepnur þegar steingerving-
ar eru ólöglega grafnir upp, teknir
í sundur og seldir sem minjagrip-
ir. Til að stemma stigu gegn þessu
setur lögreglan hér stundum upp
minjagripasölugildrur. Um leið og
einhver kaupir steingervinginn á
markaðinum þá kemur lögreglan úr
felum og handtekur kauða. Ef þetta
tækifæri mitt um daginn hefði ekki
verið gildra þá hefði ég samt sem
áður verið sekur um að ætla, með-
vitað eða ómeðvitað, að smygla burt
menningar- og náttúruminjum frá
Níger. Hvað hefði ég sagt ef ein-
hver erlendur ferðamaður ætlaði að
smygla burt arnareggi eða víkinga-
fornminjum frá Íslandi? Líklegast
hefði ég orðið bálreiður og froðu-
fellandi heimtað á Fésbókinni að
það ætti að kjöldraga þennan ferða-
mann öðrum óþokkum til viðvör-
unar.
Risaeðlur og risaeðlubein gætu
orðið mjög mikilvæg fyrir fram-
tíð Nígers. Það lærðum við þeg-
ar kærustunni og mér var boðið til
að hlusta á einn virtasta risaeðlu-
fræðing heims halda fyrirlestur fyr-
ir bandaríska sendiráðið. Paul Se-
reno er prófessor frá Háskólanum
í Chicago, hann vinnur einnig fyr-
ir National Geographic Society og
er síðan án gríns svo mikill töffari
að ég hugsaði strax um Indiana Jo-
nes þegar ég sá hann halda fyrir-
lesturinn. Hann hefur ferðast vítt
og breitt til að grafa upp stein-
gervinga en hann hefur unnið sér-
staklega mikið í eyðimörkinni hér í
Níger og gert hérna stórmerkilegar
uppgötvanir. Hann sagði að Níg-
er ætti eftir að verða miðpunktur
þegar kæmi að risaeðlum og nátt-
úruminjasögu í Afríku vegna þess
að sérstakar aðstæður í eyðimörk-
inni gera það að verkum að hér er
hægt að finna fleiri minjar en nokk-
ursstaðar á jörðinni. Hann hefur
fundið hér tugi af risaeðlum sem
aldrei hafa fundist áður, og ekki
bara það, meira að segja fann hann
líka grafreit fornmanna sem bjuggu
hér fyrir 10.000 árum þegar Sahara
eyðimörkin var mögulega græn og
gróðri vaxin. Draumur hans er að
reisa söfn og skóla hér í Niamey og
í eyðimerkurborginni Agadez til að
heimafólk sem og ferðamenn geti
lært að meta þessa mögnuðu sögu
Nígers betur.
Mér þótti alveg magnað að hlusta
á hann, en mér þótti samt mjög
leitt þegar ég hafði næst samband
heim til að láta litlu frænku vita
að ég myndi ekki geta gefið henni
einn einasta risaeðlusteingerving,
ekki tönn, ekki bein, ekki einu sinni
steingerðan risaeðlukúk. Sú litla hló
en varð síðan alvarleg og hugsi um
tíma, síðan sagði hún að þetta væri
allt í lagi. Þetta væri best svona því
vísindamenn ættu að grafa upp risa-
eðlur svo allir gætu vitað meira um
þær. Hún myndi bara koma til Níg-
ers þegar hún væri orðin risaeðlu-
fræðingur og grafa sjálf upp heilu
beinagrindurnar af risaeðlum.
Þetta svar frá henni hefði ekki átt
að koma mér á óvart. Þetta er það
sem ég hef lært af því að ræða við
hana sem og að vinna með börnum
í gegnum tíðina. Þau eru svo mögn-
uð og geta verið svo skilningsrík og
klár. Þegar ég hugsa um hvernig þau
munu verða í framtíðinni, kannski
hér í Níger til að skoða söfn, fara í
skóla eða grafa upp minjar, þá brosi
ég bara vongóður út að eyrum.
Geir Konráð Theódórsson
Höf. er Borgnesingur á ferð um
Níger og kynnir sér leyndardóma
risaeðlanna.
Ógnvekjandi risaeðla.
Risaeðlur og skilningsrík
börn eru framtíð Nígers
Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir með
risaeðlutöskuna sína.