Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 23
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.,
Vesturbraut 20
Þriðjudaginn 3. desember
Miðvikudaginn 4. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
9
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 5. desember
Föstudaginn 6. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Árlegur Malavímarkaður var hald-
inn í Grundaskóla á Akranesi í há-
deginu á fimmtudaginn. Nemend-
ur og starfsfólk skólans höfðu und-
irbúið markaðinn með að búa til
og safna saman munum til að selja.
Allur ágóði af sölunni rennur til
styrktar skólastarfi í Malaví, sem
er eitt fátækasta ríki heims. Settir
voru upp sölubásar um skólann þar
sem meðal annars voru seld hand-
verk eftir krakkana, notuð föt, ým-
islegt góðgæti og fleira, auk þess
sem gestum bauðst að kaupa vöffl-
ur og kaffi eða pylsur á meðan hægt
var að hlýða á tónlistaratriði nem-
enda. Markaðurinn er alltaf mjög
vel sóttur og var engin breyting þar
á. Mikill fjöldi fólks kom í skólann
og styrktu málefnið.
arg
Vátryggingafélag Íslands hefur kært
útboð Borgarbyggðar á vátrygg-
ingum sveitarfélagsins. Kærunefnd
útboðsmála tilkynnti um að kær-
an hefði verið lögð fram með bréfi
dags. 13.11 síðastliðinn. Gerð er
krafa um að útboðið verði stöðvað
þar til búið verður að taka afstöðu
til kærunnar. Ástæðan er krafa um
rekstur tryggingaumboðs í sveitar-
félaginu. Í útboðsgögnum Borgar-
byggðar sagði um þann þátt: „Bjóð-
andi starfræki starfsstöð í Borgar-
byggð með starfsmanni a.m.k. 16
tíma á viku. Starfsstöð í Borgar-
byggð skuli að lágmarki vera komin
sex mánuðum eftir að samningur er
undirritaður við viðkomandi bjóð-
anda um verkið og skal hún starf-
rækt a.m.k. út samningstímann.“ Á
fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar síðastliðinn fimmtudag var sam-
þykkt að fela sviðsstjóra fjármála-
og stjórnsýslusviðs að svara er-
indinu.
mm
VÍS kærir tryggingaútboð
Margt um manninn
á Malavímarkaði
Þessar voru kátar á Malavímarkaði í Grundaskóla á fimmtudaginn.
Þessar stelpur seldu fallega innpakkað
baðsalt.
Margir kíktu á Malavímarkaðinn.
Þessar tvær sungu fyrir gesti.
Þessir stóðu vaktina í fatasölunni.
Þessir voru að selja fallegar gjafaöskjur.