Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201924
Kvenfélagið Hringurinn í Stykkis-
hólmi, Lionsklúbbur Stykkishólms
og Lionsklúbburinn Harpa komu
færandi hendi á Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands í Hólminum síð-
astliðinn fimmtudag. Færðu fé-
lögin endurhæfingardeildinni nýtt
göngubretti að gjöf. Að sögn Helgu
Guðmundsdóttur, formanns kven-
félagsins, hefur verkefnið staðið
yfir í tvö ár. „Endurhæfingadeild-
in fagnaði 40 ára afmæli í fyrra og
háls- og bakdeildin 25 ára afmæli
2017. Þá ákváðum við kvenfélags-
konur að færa endurhæfingadeild-
inni peningagjöf og í framhaldinu
af því kviknaði þessi hugmynd, því
við vildum klára dæmið og safna
allri upphæðinni sem svona göngu-
bretti kostar,“ segir Helga í sam-
tali við Skessuhorn. „Þegar við fór-
um að skoða málið, í samvinnu við
Hrefnu Frímannsdóttur yfirsjúkra-
þjálfara, þá komumst við að því að
svona bretti kostaði miklu meira
en við réðum við. Þá fengum við
Lionsmenn með okkur í þetta og
áður höfðu Lionskonur gefið pen-
ingaupphæð sem einnig var nýttar
til kaupanna. Það voru því kvenfé-
lagið og Lionsklúbbarnir tveir sem
tóku höndum saman við að gefa
þessa gjöf,“ segir hún.
Sama dag afhentu kvenfélags-
konur Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi nýtt sjónvarp að gjöf.
„Sjónvarpið, sem er 62 tommur að
stærð, var sett upp í matsal dvalar-
heimilisins,“ segir Helga.
Að lokum má nefna að fyrsta
sunnudag í aðventu, 1. desemb-
er, stendur kvenfélagið fyrir basar
í Grunnskólanum í Stykkishólmi,
venju samkvæmt. „Allur ágóði af
basarnum mun renna til góðra mál-
efna í Stykkishólmi eins og alltaf,“
segir Helga Guðmundsdóttir að
endingu. kgk/ Ljósm. sá.
Aðaltvímenningi Bridgefélags
Borgarfjarðar lauk síðastlið-
ið mánudagskvöld. Heiðar Árni
Baldursson og Logi Sigurðsson
leiddu mótið allan tímann og
luku keppni með 62,6% skori.
Anna Heiða Baldursdóttir og
Ingimundur Jónsson komu næst
þeim með 59,3% skor og þriðju
urðu Rúnar Ragnarsson og Guð-
jón Karlsson með 56,4%. Við
verðlaunaafhendingu kom fram
að Baldur í Múlakoti ætti að fá
sérstök uppeldisverðlaun enda á
hann börn í tveimur efstu sætum
á mótinu. Sjálfur lét hann níunda
sæti duga ásamt Jóni makker sín-
um.
Næstu þrjú mánudagskvöld
verða leiknir stakir tvímenning-
ar en föstudaginn 13. desember
verður jólasveinatvímenningur
félagsins haldinn. Þá verður að
vanda dregið saman í pör og and-
inn léttur sem ávalt.
mm/ij
Síðastliðinn laugardag var Þor-
steinsmótið í tvímenningi í bridds
haldið í Grunnskóla Borgarfjarðar á
Kleppjárnsreykjum, fyrrum vinnu-
stað kennarans Þorsteins Péturs-
sonar frá Hömrum, sem mótið er
til minningar um. Metþátttaka var
að þessu sinni, en alls voru 42 pör
sem tóku þátt. Mótið er silfurstiga-
mót líkt og fyrri ár. Öflugir bridds-
spilarar mættu og öttu kappi við
heimamenn og aðra, en mót þetta
er með sterkustu briddsmótum sem
haldin eru utan höfuðborgarsvæð-
isins ár hvert.
Úrslit urðu þau að sunnan-
mennirnir Gunnlaugur Karls-
son og Kjartan Ingvarsson sigr-
uðu með 59,6% skori. Í öðru
sæti voru heimamenn í Bridge-
félagi Borgarfjarðar, þeir Eyjólf-
ur Kristinn Örnólfsson og Lár-
us Pétursson með 57,4% skor. Í
þriðja sæti urðu Vigfús Vigfússon
og Jóhanna Gísladóttir sömuleið-
is með 57,4% skori en stigi minna
í farteskinu. Úrslit í heild sinni
má finna á bridge.is. Auk pen-
ingaverðlauna fyrir þrjú efstu sæt-
in á mótinu, voru útdráttarverð-
Hér eru þær Helga Guðmundsóttir, formaður Kvenfélagsins Hringsins í Stykkis-
hólmi, Kristín Hannesdóttir, forstöðukona Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi
og Alma Diego, gjaldkeri kvenfélagsins, þegar sjónvarpið var afhent.
Færðu góðar gjafir
Frá afhendingu göngubrettisins. F.v. Kolbeinn Björnsson, formaður Lionsklúbbs
Stykkishólms, Hrefna Frímannsdóttir, yfirsjúkraþjálfari hjá HVE í Stykkishólmi,
Elísabet Lára Björgvinsdóttir, formaður Lionsklúbbsins Hörpunnar og Helga Guð-
mundsdóttir sem er formaður Kvenfélagsins Hringsins í Stykkishólmi.
Logi og Heiðar
sigurvegarar BB
Setið við spilaborðin.
Þorsteinsmótið var spilað á laugardaginn
laun sem fyrirtæki í heimabyggð
og fleiri gáfu vinninga í. Kvenfé-
lag Reykdæla sá svo um kaffiveit-
ingar og voru spilarar sem blaða-
maður ræddi við á einu máli um
að margrómað hlaðborð kven-
félagskvenna ætti sinn þátt í góðri
mætinu á þetta mót.
mm
Sigurvegarar í mótinu: F.v. Gunnlaugur Karlsson og Kjartan
Ingvarsson hampa hér veglegum farandbikar, en að auki
fengu þeir peningaverðlaun. Ljósm. ág.
Eyjólfur Kristinn og Lárus náðu bestum árangri heimafólks;
öðru sæti á mótinu. Ljósm. se.